Ferill 503. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 503 . mál.


885. Frumvarp til laga



um breytingar á sérákvæðum í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

(Lagt fyrir Alþingi á 120. löggjafarþingi 1995–96.)



I. KAFLI

Forsætisráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 59/1928, um friðun Þingvalla.

1. gr.

    2. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
    Forsætisráðherra skipar þjóðgarðsvörð til fimm ára í senn samkvæmt tillögu þingvallanefndar. Þjóðgarðsvörður skal jafnframt vera framkvæmdastjóri þingvallanefndar. Hann ræður aðra starfsmenn.
    

Breyting á lögum nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands.

2. gr.

    1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
    Forsætisráðherra felur starfsmanni forsætisráðuneytis að gegna störfum ritara ráðherrafunda.
    

3. gr.


    7. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra kveður á um skiptingu ráðuneytis í skrifstofur og starfsdeildir eftir verkefnum.
    

4. gr.


    Eftirtaldar breytingar verða á 11. gr. laganna.
    1. mgr. orðast svo:
                  Skrifstofu ráðuneytis stýrir skrifstofustjóri og starfsdeild deildarstjóri undir umsjón ráðuneytisstjóra.
    2. mgr. fellur brott.
    3. mgr. orðast svo:
                  Nú er starfsmaður ráðuneytis ráðinn deildarstjóri eða skipaður skrifstofustjóri þess ráðuneytis og þarf þá eigi að auglýsa starfið sem hann er fluttur í.
    

5. gr.


    Aftan við 1. málsl. 12. gr. laganna kemur nýr málsliður er orðast svo: Heimilt er þó ráðherra að ráða starfsmenn í ráðuneyti undir öðrum starfsheitum.
    

6. gr.


    13. gr. laganna orðast svo:
    Forseti Íslands skipar ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra til fimm ára í senn.
    Ráðherra ræður aðra starfsmenn ráðuneytis.
    

7. gr.


    Í stað orðsins „deildarstjóri“ í 14. gr. laganna kemur: skrifstofustjóri.
    

Breyting á lögum nr. 54/1974, um Þjóðhagsstofnun.


8. gr.

    2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:
    Stofnunin nefnist Þjóðhagsstofnun og heyrir undir forsætisráðherra. Ráðherra skipar forstjóra hennar til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 64/1985, um Byggðastofnun.


9. gr.

    1. tölul. 5. gr. laganna fellur brott. Töluliðir 2 til og með 9 breytast í samræmi við það í töluliði 1 til og með 8.
    

10. gr.


    6. gr. laganna orðast svo:
    Forsætisráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn til að annast daglega stjórn stofnunarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 12/1986, um ríkisendurskoðun.


11. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. laganna:
    1. málsl. orðast svo: Forseti Alþingis skipar forstöðumann stofnunarinnar til fimm ára í senn og nefnist hann ríkisendurskoðandi.
    4. og 5. málsl. falla brott.
    

Breyting á lögum nr. 13/1987, um umboðsmann Alþingis.


12. gr.

    1. og 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: Kjör umboðsmanns Alþingis fer fram á Alþingi. Kosningin gildir til fimm ára.
    

13. gr.


    Síðari málsl. 14. gr. laganna fellur brott.
    

Breyting á lögum nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis.


14. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo: Forseti Alþingis skipar skrifstofustjóra til fimm ára í senn.
    

II. KAFLI


Dóms- og kirkjumálaráðuneyti.


Breyting á lögum nr. 94/1962, um almannavarnir, með síðari breytingu.


15. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 4. mgr. 6. gr. laganna eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 85/1985:
    1. málsl. orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra almannavarnaráðs til fimm ára í senn að fengnum tillögum ráðsins.
    2. málsl. orðast svo: Framkvæmdastjóri ræður annað starfslið.
    Í stað orðsins „skipaður“ í 4. málsl. komi: ráðinn.
    

Breyting á lögum nr. 25/1967, um Landhelgisgæslu Íslands.


16. gr.


    3. gr. laganna orðast svo:
    Forseti Íslands skipar forstjóra til fimm ára í senn til þess að stjórna Landhelgisgæslunni svo og til að vera ráðherra til aðstoðar um allt er lýtur að málefnum hennar.
    

17. gr.


    Í stað orðanna „lög nr. 56/1963 og lög nr. 82/1961, V. kafli“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: lög um lögreglumenn og um meðferð opinberra mála.
    

Breyting á lögum nr. 56/1972, um lögreglumenn.


18. gr.

    Við 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laganna bætist: til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 75/1973, um Hæstarétt Íslands, með síðari breytingum.


19. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna, eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 39/1994, orðast svo: Forseti Íslands skipar hæstaréttardómara ótímabundið.
    

20. gr.


    1. mgr. 8. gr. laganna, eins og henni var breytt með 5. gr. laga nr. 67/1982, orðast svo:
    Forseti Hæstaréttar skipar dóminum ritara til fimm ára í senn, ræður sérfróða aðstoðarmenn og annað starfslið.
    

Breyting á lögum nr. 18/1975, um trúfélög.


21. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 17. gr. laganna orðast svo: Hann skal hafa almenn hæfisskilyrði til opinberra starfa, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

Breyting á lögum nr. 108/1976, um rannsóknarlögreglu ríkisins, með síðari


breytingu.


22. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. laganna eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 5/1978:
    1. mgr. orðast svo:
                  Forseti Íslands skipar yfirmann rannsóknarlögreglu ríkisins til fimm ára í senn og nefnist hann rannsóknarlögreglustjóri ríkisins.
    1. málsl. 3. mgr. orðast svo: Ráðherra skipar vararannsóknarlögreglustjóra ríkisins til fimm ára í senn.
    4. mgr. orðast svo:
                  Ráðherra skipar sérhæft starfslið rannsóknarlögreglu ríkisins til fimm ára í senn, þar á meðal deildarstjóra og/eða fulltrúa með lögfræðiprófi. Rannsóknarlögreglustjóri ræður annað starfslið.

Breyting á lögum nr. 96/1980, um biskupskosningu.


23. gr.

    Við 2. mgr. 6. gr. laganna bætist: til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 44/1987, um veitingu prestakalla.


24. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 3. mgr. 6. gr. laganna:
    Aftan við orðið „embættið“ kemur: til fimm ára í senn.
    Aftan við orðið „veitingu“ kemur: til sama tíma.
    

25. gr.


    Í stað orðanna „en eigi lengur en til fjögurra ára í senn“ í 2. málsl. i.f. 3. mgr. 7. gr. laganna kemur: til fimm ára í senn.
    

26. gr.


    Eftirtaldar breytingar verða á 2. mgr. 17. gr. laganna:
    Aftan við orðið „ráðherra“ í 1. málsl. kemur: til fimm ára í senn.
    Við 2. málsl. bætist: til fimm ára í senn.
    

Breyting á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingu.


27. gr.

    3. mgr. 114. gr. laganna, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 12/1992, orðast svo:
    Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Umferðarráðs til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar þess.
    

Breyting á lögum nr. 48/1988, um fangelsi og fangavist.


28. gr.

    1. málsl. 4. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstjóra fangelsismálastofnunar og sérhæft starfslið til fimm ára í senn.
    

29. gr.


    1. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstöðumann fangelsis til fimm ára í senn.
    

30. gr.


    2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar fangaverði til fimm ára í senn, en forstöðumaður stofnunar ræður aðra starfsmenn.
    

Breyting á lögum nr. 92/1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði.


31. gr.


    1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar héraðsdómara ótímabundið.
    

32. gr.


    Á eftir orðinu „héraðsdómstól“ í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna, eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 80/1995, kemur: til fimm ára í senn.
    

33. gr.

    1. málsl. 14. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar sýslumenn til fimm ára í senn.
    

34. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 15. gr. laganna:
    Á eftir orðinu „deildarstjóra“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: til fimm ára í senn.
    Á eftir 1. málsl. 3. mgr. kemur nýr málsl. er orðast svo:
                  Ráðherra skipar sérhæft starfslið til fimm ára í senn, en sýslumaður ræður annað starfslið.
    

Breyting á lögum nr. 62/1990, um skipan prestakalla og prófastdæma


og um starfsmenn þjóðkirkjunnar.


35. gr.

    7. gr. laganna orðast svo:
    Þingvallaprestakalli skv. 1. gr. gegnir prestur er ráðherra skipar til fimm ára í senn að fengnum tillögum biskups og þingvallanefndar.
    

36. gr.

    Aftan við orðið „embætti“ í 1. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: til fimm ára í senn.
    

37. gr.

    Í stað orðanna „skilyrðum 3. gr. laga nr. 38/1954,“ í 5. tölul. 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: starfsgengisskilyrðum laga.
    

38. gr.

    Í stað orðanna „sbr. m.a. lög nr. 38/1954“ í 18. gr. laganna kemur: sbr. meðal annars lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

39. gr.

    Í stað orðanna „26. gr. laga nr. 38/1954“ í 23. gr. laganna kemur: lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

40. gr.

    Í stað orðanna „Kirkjumálaráðherra skipar prófasta úr hópi þjónandi presta í prófastsdæminu“ í upphafi 1. mgr. 27. gr. laganna kemur: Ráðherra skipar prófast úr hópi þjónandi presta í prófastsdæminu til sama tíma og skipun hans í prestsembætti stendur til.
    

41. gr.

    1. málsl. 2. mgr. 35. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar biskup til fimm ára í senn.
    

42. gr.

    1. mgr. 43. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar vígslubiskupa til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála.


43. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 25. gr. laganna:
    Á eftir orðinu „skipaður“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: ótímabundið.
    2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Honum til aðstoðar eru vararíkissaksóknari og saksóknarar sem ráðherra skipar til fimm ára í senn.
    Í stað 4. málsl. 2. mgr. koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Sérhæft starfslið við embætti ríkissaksóknara, þar á meðal löglærða fulltrúa, skipar ráðherra til fimm ára í senn að fengnum tillögum ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari ræður annað starfslið.

III. KAFLI

Félagsmálaráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 33/1978 um sáttastörf í vinnudeilum.

44. gr.

    Í stað orðsins „fjögurra“ í 1. og 3. mgr. 1. gr. laganna kemur: fimm.
    

45. gr.

    Orðin „í samræmi við lög nr. 97/1974, um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismálum ríkisstofnana“ í 2. málsl. 2. gr. laganna falla brott.
    

Breyting á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.


46. gr.

    1. mgr. 76. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra skipar forstjóra Vinnueftirlits ríkisins til fimm ára í senn og setur honum erindisbréf, hvort tveggja að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 28/1991, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.


47. gr.

    Í stað 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Jafnréttisráð hefur skrifstofu og skipar ráðherra framkvæmdastjóra þess til fimm ára senn. Framkvæmdastjóri ræður aðra starfsmenn.
    

Breyting á lögum nr. 41/1992, um brunavarnir og brunamál.


48. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 3. mgr. 3. gr. laganna kemur: fimm.
    

Breyting á lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðra.


49. gr.

    1. málsl. 2. mgr. 12. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra svæðisskrifstofa til fimm ára í senn, að fenginni umsögn svæðisráða.
    

50. gr.

    3. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstöðumann og framkvæmdastjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins.


51. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: fimm.
    

IV. KAFLI

Fjármálaráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga,

með síðari breytingu.

52. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 90. gr. laganna, sbr. 19. gr. laga nr. 84/1985, orðast svo: Hann ber ábyrgð á störfum ríkisbókhaldsins og skal skipaður af ráðherra til fimm ára í senn.

Breyting á lögum nr. 63/1969, um verzlun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf.


53. gr.

    1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra skipar forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til fimm ára í senn og setur honum erindisbréf. Forstjóri ræður aðra fasta starfsmenn.
    

Breyting á lögum nr. 103/1974, um lántökur ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja.


54. gr.

    Í stað orðanna „III. kafla laga nr. 38/1954,“ í 6. gr. laganna komi: lögum.
    

Breyting á lögum nr. 94/1976, um skráningu og mat fasteigna, með síðari


breytingu.


55. gr.

    7. gr. laganna, eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 51/1994, orðast svo:
    Fasteignamat ríkisins starfar undir stjórn forstjóra sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Forstjóri ræður starfsfólk og kaupir sérfræðilega aðstoð eftir því sem nauðsyn ber til og heimildir fjárlaga hverju sinni segja til um.
    

Breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.


56. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 86. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar skattstjóra til fimm ára í senn.
    

57. gr.

    Í stað orðsins „skipa“ í 1. málsl. 87. gr. laganna komi: ráða.
    

58. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 88. gr. laganna:
    1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Ráðherra skipar ríkisskattstjóra til fimm ára í senn.
    2. mgr., eins og henni var breytt með 13. gr. laga nr. 111/1992, orðast svo:
                  Þá skipar ráðherra vararíkisskattstjóra til fimm ára í senn sem skal fullnægja sömu skilyrðum og ríkisskattstjóri.
    

59. gr.

    1. málsl. 89. gr. laganna, eins og henni var breytt með 14. gr. laga nr. 111/1992, orðast svo: Ráðherra skipar skattrannsóknarstjóra ríkisins til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 51/1985, um ríkislögmann.


60. gr.

    1. málsl. 2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar ríkislögmann til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 52/1987, um opinber innkaup.


61. gr.

    Í stað orðsins „fjögurra“ í 1. málsl. 4. gr. laganna kemur: fimm.
    

Breyting á tollalögum nr. 55/1987.


62. gr.

    Á eftir orðinu „tollstjóri“ í 2. málsl. 31. gr. laganna, eins og henni var breytt með 95. gr. laga nr. 92/1991, kemur: sem ráðherra skipar til fimm ára í senn.

63. gr.

    Við 1. mgr. 32. gr. laganna bætist nýr málsliður, er verður 1. málsl., og orðast svo: Fjármálaráðherra skipar ríkistollstjóra til fimm ára í senn.
    

64. gr.

    Við 1. málsl. 33. gr. laganna bætist: sem fjármálaráðherra skipar til fimm ára í senn.
    

65. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 35. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar tollgæslumenn til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins.


66. gr.

    1. málsl. 8. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar forstjóra Lánasýslu ríkisins til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 30/1992, um yfirskattanefnd.


67. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: fimm.
    

V. KAFLI

Hagstofa Íslands.

Breyting á lögum nr. 24/1913, um hagstofu Íslands, með síðari breytingu.

68. gr.

    5. gr. laganna, eins og henni var breytt með 8. gr. laga nr. 71/1919, orðast svo:
    Hagstofunni stýrir hagstofustjóri skipaður af forseta Íslands til fimm ára í senn. Vanalega hefur sá einn rétt til þess starfa, er lokið hefur háskólaprófi í stjórnfræði.
    

VI. KAFLI

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.

Breyting á áfengislögum nr. 82/1969.

69. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 26. gr. laganna:
    1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Ráðherra skipar sér til aðstoðar áfengisvarnaráðunaut til fimm ára í senn.
    Í stað orðsins „ríkisstjórnin“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: ráðherra.
    Í stað orðanna „kjarasamninga opinberra starfsmanna“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

Breyting á lögum nr. 35/1980, um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.



70. gr.

    2. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra skipar framkvæmdastjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar. Ráðherra skipar yfirlækni til fimm ára í senn að fengnum tillögum stöðunefndar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Framkvæmdastjóri ræður yfirheyrnar- og taluppeldisfræðing og aðra starfsmenn stofnunarinnar.

Breyting á lögum nr. 18/1984, um þjónustu- og endurhæfingastöð sjónskertra.


71. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar yfirlækni til fimm ára í senn að fengnum tillögum stöðunefndar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu.
    

Breyting á lögum nr. 117/1985, um geislavarnir.


72. gr.

    1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstöðumann stofnunarinnar til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar.
    

Breyting á lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingu.


73. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. laganna:
    1. málsl. orðast svo: Forseti Íslands skipar landlækni til fimm ára í senn.
    Á eftir orðinu „aðstoðarlandlækni“ í 3. málsl. kemur: til fimm ára í senn.
    

74. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 6. gr. laganna eins og henni var breytt með 7. gr. laga nr. 148/1994:
    Í stað orðsins „fjögurra“ í 1., 2. og 4. málsl. 2. mgr. kemur: fimm.
    Í stað orðsins „fjögurra“ í 3. mgr. kemur: fimm.
    

75. gr.

    5. málsl. 3. mgr. 21. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra heilsugæslustöðva í Reykjavík og hafa þeir sömu skyldur og framkvæmdastjórar sjúkrahúsa skv. 29. gr., sbr. og 8. mgr. 30. gr.
    

76. gr.

    Í 6. mgr. 29. gr. laganna falla brott orðin: yfirlæknum, hjúkrunarforstjórum og.
    

77. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 30. gr. laganna:
    Í stað 4. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Við ríkisspítalana skal starfa einn forstjóri skipaður af ráðherra til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnarnefndar. Ráðherra skipar forstöðumenn sviða samkvæmt stjórnskipulagi ríkisspítala til fimm ára í senn.
    Í stað orðsins „ráða“ í 4. málsl. 6. mgr. kemur: skipa.
    Aftan við 4. málsl. 6. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: Framkvæmdastjórar sjúkrahúsa ríkisins eru skipaðir af ráðherra til fimm ára í senn.
    Á eftir 3. málsl. 7. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: Ráðherra staðfestir stjórnskipulag ríkisspítala að fengnum tillögum stjórnarnefndar og forstjóra.
    8. mgr. orðast svo:
                  Forstjóri ríkisspítala skv. 1. mgr. 30. gr. og framkvæmdastjórar sjúkrahúsa skv. 3. mgr. 30. gr. ráða annað starfslið sjúkrahúsa ríkisins. Um ákvörðun launa fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

78. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 31. gr. laganna:
    Í stað orðanna „skipaðir af ráðherra“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: ráðnir af forstjóra skv. 1. mgr. 30. gr. eða framkvæmdastjóra skv. 5. mgr. 29. gr. eftir því sem við á.
    Í stað orðsins „skipaðir af ráðherra“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: ráðnir af forstjóra skv. 1. mgr. 30. gr. eða framkvæmdastjóra skv. 5. mgr. 29. gr. eftir því sem við á.
    Í stað orðsins „Skipa“ í 5. mgr. kemur: Ráða.
    

Breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar.


79. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 3. gr. laganna:
    1. mgr. orðast svo:
                  Ráðherra skipar forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins og tryggingayfirlækni til fimm ára í senn, að fengnum tillögum tryggingaráðs.
    2. mgr. orðast svo:
                  Forstjóri ræður skrifstofustjóra, tryggingafræðing, aðalgjaldkera og deildarstjóra að fengnum tillögum tryggingaráðs og tryggingalækni að fengnum tillögum tryggingaráðs og tryggingayfirlæknis. Forstjóri ræður einnig aðra starfsmenn.
    

80. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna fellur brott.
    

VII. KAFLI

Iðnaðarráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 64/1965, um rannsóknir í þágu atvinnuveganna

með síðari breytingu.

81. gr.

    1. mgr. 50. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 107/1974, orðast svo:
    Ráðherra skipar forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar. Forstjóri ræður sérfræðinga við stofnunina að fengnum tillögum stjórnar.
    

82. gr.

    2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 107/1974, orðast svo:
    Ráðherra ákveður deildaskiptingu í rannsóknastofnunum. Forstjóri ræður deildarstjóra að fengnu áliti stjórnar viðkomandi stofnunar. Deildarstjórar og sérfræðingar skulu hafa lokið meistaraprófi eða öðrum hliðstæðum háskólaprófum í fræðigrein sinni. Þó skal forstjóra heimilt að víkja frá þessu ákvæði, hafi umsækjandi á annan hátt sannað vísindalega hæfni sína.
    

Breyting á orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum.


83. gr.

    1. málsl. 3. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Orkustofnunar til fimm ára í senn.
    

84. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 5. gr. laganna:
    1. málsl. orðast svo: Orkumálastjóri ræður starfsmenn Orkustofnunar.
    Í stað orðanna „kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 55/1962“ í 2. málsl. kemur: um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

85. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 60. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 53/1985:
    1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Ráðherra skipar forstjóra Rafmangsveitna ríkisins til fimm ára í senn.
    1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Rafmagnsveitustjóri ræður starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins.
    Í stað orðanna „kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 55/1962“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

Breyting á lögum nr. 47/1968, um vörumerki.


86. gr.

    2. málsl. 12. gr. laganna orðast svo: Skráninguna annast vörumerkjaskráritari er ráðherra skipar til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 41/1978, um Iðntæknistofnun.


87. gr.

    Í stað orðsins „4ra“ í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: fimm.
    

88. gr.

    1. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:
    Forstjóri ræður framkvæmdastjóra aðaldeilda að fengnum tillögum stjórnar.
    

89. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 10. gr. laganna:
    Orðin „í umboði stjórnar og“ í 1. mgr. falla brott.
    2. mgr. orðast svo:
                  Starfslið stofnunarinnar skal ýmist ráðið ótímabundið með gagnkvæmum uppsagnarfresti eða til ákveðins tíma, t.d. til ákveðinna verkefna.
    

Breyting á lögum nr. 60/1979, um Rafmagnseftirlit ríkisins.


90. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Rafmagnseftirlits ríkisins til fimm ára í senn.
    

91. gr.

    3. gr. laganna orðast svo:
    Rafmagnseftirlitsstjóri ræður starfsmenn stofnunarinnar.
    

VIII. KAFLI

Landbúnaðarráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 91/1936, um garðyrkjuskóla ríkisins.

92. gr.

    1. málsl. 6. gr. laganna orðast svo: Við garðyrkjuskólann skal skipaður forstöðumaður til fimm ára í senn, og honum fengin aðstoð við kennslu og annan rekstur eftir þörfum.
    

Breyting á lögum nr. 3/1955, um skógrækt.


93. gr.

    2. málsl. 2. gr. laganna orðast svo: Forseti Íslands skipar skógræktarstjóra til fimm ára, er annast framkvæmd þessara mála.
    94. gr.
    1. málsl. 3. gr. laganna orðast svo: Skógræktarstjóri ræður skógarverði.
    

Breyting á lögum nr. 17/1965, um landgræðslu með síðari breytingu.


95. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 3. gr. laganna, eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 54/1975:
    2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Hann skipar landgræðslustjóra til fimm ára í senn.
    1. málsl. 3. mgr. orðast svo: Landgræðslustjóri ræður fulltrúa landgræðslustjóra og skulu þeir fullnægja hliðstæðum menntunarskilyrðum.
    

96. gr.

    4. gr. laganna orðast svo:
    Landgræðslustjóra er heimilt að ráða landgræðsluverði sér til aðstoðar.
    

Breyting á lögum nr. 64/1965, um rannsóknir í þágu atvinnuveganna


með síðari breytingu.


97. gr.

    1. málsl. 32. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 107/1974, orðast svo: Ráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn. Forstjóri ræður sérfræðinga við Rannsóknastofnun landbúnaðarins að fengnum tillögum stjórnarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði með síðari breytingu.


98. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 86. gr. laganna, eins og henni var breytt með 6. gr. laga nr. 63/1994, orðast svo: Ráðherra skipar veiðimálastjóra til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 55/1978, um búnaðarfræðslu.


99. gr.

    7. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra skipar skólastjóra til fimm ára í senn og hafa þeir á hendi stjórn skóla, skólabús, rannsókna og annarrar starfsemi skólans.
    

100. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. laganna:
    1. mgr. orðast svo:
                  Skólastjóri ræður fasta kennara og stundakennara.
    3. mgr. orðast svo:
                  Ráða má bústjóra við skólabúin með sömu kjörum og kennara, enda hafi þeir sambærilega menntun.
    

101. gr.

    1. og 2. mgr. 21. gr. laganna orðast svo:
    Skólastjóri ræður fasta kennara, sem fullnægja skulu sömu kröfum og gerðar eru til háskólakennara og njóta sömu kjara.
    Ráða skal a.m.k. 5 aðalkennara og auk þess aðstoðarkennara, að fengnum tillögum deildarstjórnar. Skólastjóri ræður einnig stundakennara.

Breyting á lögum nr. 77/1981, um dýralækna, með síðari breytingu.


102. gr.

    1. mgr. 5. gr. laganna, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 54/1989, orðast svo:
    Forseti Íslands skipar yfirdýralækni, héraðsdýralækna og dýralækni fisksjúkdóma til fimm ára í senn.
    

103. gr.

    Í stað orðsins „launalögum“ í 3. málsl. 16. gr. laganna, eins og henni var breytt með 41. gr. laga nr. 108/1988, kemur: ákvörðun kjaranefndar.
    

Breyting á lögum nr. 63/1989, um Hagþjónustu landbúnaðarins.


104. gr.

    Við 3. gr. laganna bætist við ný málsgrein, 3. mgr., er orðast svo:
    Ráðherra skipar forstöðumann til fimm ára í senn.
    

105. gr.

    1. tölul. 4. gr. laganna fellur brott. Töluliðir 2 og 3 breytast í samræmi við það í töluliði 1 og 2.
    

Breyting á lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.


106. gr.

    Í stað 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: Skal það nefnast aðfangaeftirlit og skipar ráðherra forstöðumann þess til fimm ára í senn. Forstöðumaður hefur á hendi umsjón með framkvæmd laga þessara og reglugerða sem settar verða samkvæmt þeim.
    

IX. KAFLI

Menntamálaráðuneyti.

Breyting á íþróttalögum nr. 49/1956.

107. gr.

    3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna falli brott.
    

Breyting á lögum nr. 38/1965, um Myndlista- og handíðaskóla Íslands.


108. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. laganna:
    3. mgr. orðast svo:
                  Skólastjóri skal skipaður af ráðherra til fimm ára í senn að fengnum tillögum skólastjórnar. Fastir kennarar skulu ráðnir af skólastjóra að fengnum tillögum skólastjórnar.
    4. mgr. fellur brott.
    

109. gr.

    Í stað orðanna „skipa, auk skólastjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: ráða.
    

Breyting á lögum nr. 22/1972, um Stýrimannaskólann í Reykjavík.


110. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 10. gr. laganna:
    Í stað 1. málsl. 1. mgr. kemur: Ráðherra skipar skólastjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum skólanefndar. Skólastjóri ræður fasta kennara eftir þörfum að fengnum tillögum skólanefndar.
    2. mgr. orðast svo:
                  Um ákvörðun launa skólastjóra og kennara fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

Breyting á lögum nr. 65/1972, um Íþróttakennaraskóla Íslands.


111. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. laganna:
    1. mgr. orðast svo:
                  Skólastjóri skal skipaður af ráðherra til fimm ára í senn. Fastir kennarar og aðrir fastir starfsmenn skólans skulu ráðnir af skólastjóra að fengnum tillögum skólaráðs og skólanefndar.
    Í stað orðsins „skipaður“ í 2. mgr. kemur: ráðinn.
    

112. gr.

    1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
    Launakjör skólastjóra, kennara og annarra fastra starfsmanna skulu ákveðin samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    

Breyting á lögum nr. 66/1972, um Tækniskóla Íslands.


113. gr.

    2. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra fer með yfirstjórn skólans og skipar skólanefnd. Ráðherra skipar rektor til fimm ára í senn.
    

114. gr.

    3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
    Ennfremur ræður hann kennara og annað starfsfólk skólans.
    

115. gr.

    Í stað orðsins „skipa“ í 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: ráða.
    

Breyting á lögum nr. 70/1972, um Stofnun Árna Magnússonar.


116. gr.

    2. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Þeir skulu ráðnir af forstöðumanni að fenginni umsögn stjórnarnefndar.
    

Breyting á lögum nr. 10/1973, um Fósturskóla Íslands.


117. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 17. gr. laganna:
    2. mgr. orðast svo:
                  Ráðherra skipar skólastjóra til fimm ára í senn. Skólastjóri ræður kennara og aðra starfsmenn að fengnum tillögum skólanefndar. Greini skólastjóra og skólanefnd á, skulu tillögur skólastjóra lagðar fyrir ráðuneytið jafnframt tillögum skólanefndar.
    3. mgr. fellur brott.
    

Breyting á lögum nr. 37/1975, um Leiklistarskóla Íslands.


118. gr.

    1. málsl. 3. gr. laganna orðast svo: Við skólann starfar skólastjóri, sem skipaður skal af ráðherra til fimm ára í senn.

Breyting á lögum nr. 58/1978, um Þjóðleikhús.


119. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 6. gr. laganna:
    Í stað orðanna „ræður þjóðleikhússtjóra til fjögurra ára í senn“ í 1. mgr. kemur: skipar þjóðleikhússtjóra til fimm ára í senn.
    2. mgr. orðast svo:
                  Skipaður skal maður með staðgóða þekkingu á starfi leikhúsa. Starfið skal auglýsa samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Endurnýja má skipun þjóðleikhússtjóra einu sinni til næstu fimm ára, ef meiri hluti þjóðleikhúsráðs mælir með því. Ella skal skipa annan þjóðleikhússtjóra, eftir að starfið hefur verið auglýst að nýju og að fenginni umsögn þjóðleikhúsráðs.
    

120. gr.

    Í stað orðanna „menntamálaráðuneytið skipar“ í 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: þjóðleikhússtjóri ræður.

121. gr.

    Í stað orðsins „ráðinn“ í 2. málsl. 10. gr. laganna kemur: skipaður.
    

122. gr.

    Í stað orðsins „ráðinn“ í 1. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: skipaður.

Breyting á lögum nr. 35/1982, um Blindrabókasafn Íslands.


123. gr.

    3. málsl. 4. gr. laganna orðast svo: Forstöðumaður Blindrabókasafns ræður starfslið stofnunarinnar að fengnum tillögum stjórnar safnsins.
    

124. gr.

    Í stað orðsins „þriggja“ í 3. málsl. 6. gr. laganna kemur: fimm.
    

Breyting á lögum nr. 94/1984, um kvikmyndamál.


125. gr.

    1. málsl. 4. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra sjóðsins til fimm ára í senn að fengnum tillögum sjóðsstjórnar.
    

Breyting á lögum nr. 11/1985, um vélstjóranám.


126. gr.

    Eftirtaldar braytingar verða á 5. gr. laganna:
    3.–5. málsl. 1. mgr. orðast svo: Ráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn. Skólameistari ræður kennara og annað starfslið. Um ákvörðun launa fer að lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    Í stað orðsins „menntamálaráðuneytinu“ í 3. málsl. 3. mgr. kemur: veitingarvaldshafa.
    4. mgr. fellur brott.
    

Breyting á lögum nr. 40/1985, um Þroskaþjálfaskóla Íslands.


127. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:
    Í stað orðanna „og fastráðna kennara“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: til fimm ára í senn að fenginni umsögn skólanefndar.
    1. málsl. 3. mgr. orðast svo: Skólastjóri ræður kennara að skólanum að fengnum tillögum skólastjórnar.
    

Breyting á lögum nr. 66/1985, um Þjóðskjalasafn Íslands.


128. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 1. gr. laganna:
    4. mgr. orðast svo:
                  Forseti Íslands skipar þjóðskjalavörð til fimm ára í senn, samkvæmt tillögu ráðherra að fenginni umsögn stjórnarnefndar safnsins. Þjóðskjalavörður annast daglegan rekstur og stjórn safnsins og kemur fram fyrir hönd þess út á við.
    5. mgr. orðast svo:
                  Þjóðskjalavörður ræður skjalaverði og aðra fasta starfsmenn að fenginni tillögu stjórnarnefndar. Við safnið starfi skjalfræðingur eða sagnfræðingur með skjalfræðimenntun.
    

Breyting á útvarpslögum nr. 68/1985.


129. gr.

    1. mgr. 18. gr. laganna orðast svo
    Forseti Íslands skipar útvarpsstjóra til fimm ára í senn. Útvarpsstjóri annast rekstur Ríkisútvarpsins, sér um fjárreiður þess og semur ár hvert fjárhagsáætlun þess.
    

130. gr.

    6. mgr. 21. gr. laganna orðast svo:
    Starfsmenn Ríkisútvarps skulu ráðnir af útvarpsstjóra. Framkvæmdastjórar og starfsfólk dagskrár skal ráðið að fengnum tillögum útvarpsráðs.
    

Breyting á lögum nr. 50/1986, um Rannsóknadeild fisksjúkdóma.


131. gr.

    1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
    Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði ræður deildarstjóra Rannsóknadeildar fisksjúkdóma, sbr. lög nr. 67/1990, og setur honum erindisbréf.
    

Breyting á lögum nr. 29/1988, um Kennaraháskóla Íslands.


132. gr.

    4. mgr. 31. gr. laganna orðast svo:
    Heimilt er að tillögu skólaráðs að ráða dósent eða lektor tímabundið til allt að tveggja ára í senn. Um tilhögun slíkrar ráðningar skal setja ákvæði í reglugerð.
    

133. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 32. gr. laganna:
    1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Forseti Íslands skipar prófessora til fimm ára í senn, en rektor ræður dósenta og lektora.
    Á eftir orðinu „skipa“ í 2. málsl. 2. mgr. bætast við orðin: eða ráða.
    Í 6. mgr. falla brott orðin „og dósent úr dósentsstöðu í prófessorsstöðu“.
    

134. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 33. gr. laganna:
    1. mgr. fellur brott.
    1. málsl. 3. mgr. orðast svo: Rektor ræður, að fengnum tillögum skólaráðs, fulltrúa rektors, fjármálastjóra, kennslustjóra, aðalbókavörð, bókaverði, endurmenntunarstjóra, aðstoðarmenn endurmenntunarstjóra, námsráðgjafa, deildarstjóra, húsverði, forstöðumann gagnasmiðju, tækjavörð og annað starfslið við stjórnsýslu eftir því sem fé er veitt á fjárlögum.
    

Breyting á lögum nr. 57/1988, um framhaldsskóla, með síðari breytingu.


135. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 12. gr. laganna eins og henni var breytt með 7. gr. laga nr. 72/1989:
    2. mgr. orðast svo:
                  Ráðherra skipar skólameistara (rektor) til fimm ára í senn að fengnum tillögum hlutaðeigandi skólanefndar.
    5. mgr. orðast svo:
                  Skólameistari ræður aðstoðarskólameistara, áfangastjóra og deildarstjóra að fengnum tillögum skólanefndar
    

136. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 1. málsl. 13. gr. laganna:
    Orðin „settur eða“ falla brott.
    Á eftir orðunum „skólameistari eða“ kemur: ráðinn.
    

137. gr.

    Orðin „ráðinn, settur eða skipaður“ í 1. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna, eins og henni var breytt með 9. gr. laga nr. 72/1989, falla brott.
    

Breyting á lögum nr. 58/1988, um Listasafn Íslands.


138. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:
    Í stað orðsins „ræður“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: skipar.
    Í stað orðsins „Ráðinn“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Skipaður
    Í stað orðsins „ráðningu“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: skipun
    Í stað orðsins „ráðningar“ í 3. málsl. 3. mgr. kemur: skipunar
    

139. gr.

    5. gr. laganna orðast svo:
    Forstöðumaður ræður nauðsynlegt starfslið þegar fé er veitt í því skyni á fjárlögum.
    

Breyting á þjóðminjalögum nr. 88/1989, með síðari breytingum.


140. gr.

    Í 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. laganna, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 98/1994, falla brott orðin „til fimm ára í senn“.
    

141. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 5. gr. laganna, eins og henni var breytt með 4. gr. laga nr. 98/1994:
    3. málsl. 2. mgr. orðast svo: Þjóðminjavörður ræður safnstjóra að fengnum tillögum þjóðminjaráðs.
    Orðin „Deildarstjórar skulu ráðnir til fimm ára í senn.“ í 4. mgr. falla brott.

Breyting á lögum nr. 2/1990, um Íslenska málnefnd.


142. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:
    2. mgr. orðast svo:
                  Að fengnum tillögum málnefndar ræður forstöðumaður starfsfólk eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum. Forstöðumaður stjórnar daglegum rekstri málstöðvarinnar, gefur árlega skýrslu um starfsemi stöðvarinnar og leysir af hendi önnur þau verkefni sem málnefndin felur honum.
    3. mgr. fellur brott.
    

Breyting á lögum nr. 58/1990, um launasjóð stórmeistara í skák.


143. gr.


    Í 2. málsl. 5. gr. laganna falla brott orðin „nr. 38/1954“.
    

Breyting á lögum nr. 67/1990, um Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum.


144. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. laganna:
    3. málsl. fellur brott.
    4. málsl. orðast svo: Um ráðningu hans fer eins og segir í háskólalögum um prófessora.
    

145. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 6. gr. laganna:
    Í stað orðanna „Menntamálaráðherra skipar“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Forstöðumaður ræður.
    Orðin „forstöðumanns og“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
    Í stað orðsins „þriggja“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: tveggja.
    

Breyting á lögum nr. 129/1990, um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og


heyrnarskertra.


146. gr.

    5. gr. laganna orðast svo:
    Forstöðumaður ræður annað starfsfólk að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar í samræmi við starfsmannaheimildir.
    

Breyting á lögum nr. 131/1990, um Háskóla Íslands.


147. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 10. gr. laganna:
    Í stað orðsins „fimm“ í 3. málsl. 3. mgr. kemur: tveggja.
    Í stað orðsins „fimm“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: tveggja.
    

148. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 11. gr. laganna:
    1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Forseti Íslands skipar prófessora til fimm ára í senn, en rektor ræður dósenta og lektora.
    Í 6. mgr. falla brott orðin „og dósent í prófessorsembætti“.
    Í 7. mgr. falla brott orðin „eftir sömu reglum og gilda um flutning dósents í prófessorsembætti“.
    

149. gr.

    12. gr. laganna orðast svo:
    Þegar sérstaklega stendur á, getur rektor, samkvæmt tillögu háskóladeildar og með samþykki háskólaráðs, boðið vísindamanni að taka við kennarastarfi við háskólann, án þess að það sé auglýst laust til umsóknar.
    Rektor skal heimilt, samkvæmt tillögu háskóladeildar, að auglýsa kennarastarf laust til umsóknar, svo að starfið verði veitt ári áður en hinn nýráðni kennari hefur kennslu sína. Kveða skal á um það hverju sinni, frá hvaða tíma launagreiðslur hins nýráðna kennara hefjist.
    

Breyting á lögum nr. 21/1992, um Lánasjóð íslenskra námsmanna.


150. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 4. mgr. 4. gr. laganna:
    Í stað orðsins „ræður“ í 1. málsl. kemur: skipar.
    Í stað orðsins „fjögurra“ í 1. málsl. kemur: fimm.
    Í 2. málsl. falla brott orðin „að fenginni heimild ráðuneytis, sbr. ákvæði laga nr. 97/1974.“
    

Breyting á lögum nr. 51/1992, um Háskólann á Akureyri, með síðari breytingu.


151. gr.

    Í stað orðsins „menntamálaráðuneyti“ í 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: ráðherra.
    

152. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 10. gr. laganna eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 70/1994:
    2. mgr. orðast svo:
                  Forseti Íslands skipar prófessora til fimm ára í senn. Rektor ræður dósenta, lektora og stundakennara.
    Á eftir orðinu „skipa“ í 3. mgr. bætast við orðin: eða ráða.
    Í stað orðsins „embættinu“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: stöðunni.
    Í stað orðsins „embættið“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: staðan.
    Í stað orðsins „embætti“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: stöðu.
    Í 3. málsl. 5. mgr. falla brott orðin „og dósent í prófessorsembætti“.
    

Breyting á lögum nr. 76/1993, um Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála.


153. gr.

    Í stað orðsins „ráðinn“ í 1. málsl. 5. gr. laganna kemur: skipaður.
    

Breyting á lögum nr. 61/1994, um Rannsóknarráð Íslands.


154. gr.

    1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra til fimm ára í senn.
    

Breyting á lögum nr. 71/1994, um Landsbókasafn – Háskólabókasafn.


155. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: fimm
    

156. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:
    Í 1. málsl. falla brott orðin „til sex ára í senn“.
    2. málsl. fellur brott.
    

X. KAFLI

Samgönguráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 119/1950, um stjórn flugmála, með síðari breytingu.

157. gr.

    2. gr. laganna, sbr. lög nr. 26/1954, orðast svo:
    Ráðherra skipar flugmálastjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum flugráðs. Flugmálastjóri veitir Flugmálastjórn Íslands forstöðu og annast daglega stjórn hennar. Í erindisbréfi flugmálastjóra, er ráðherra setur að fengnum tillögum flugráðs, skal nánar kveðið á um störf hans.
    Ráðherra ræður framkvæmdastjóra að fengnum tillögum flugmálastjóra og flugráðs. Flugmálastjóri ræður aðra starfsmenn flugmálastjórnar.
    Hlutverk flugmálastjórnar er að fara með framkvæmdarvald samkvæmt lögum um loftferðir og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum á sviði flugmála.
    

Breyting á lögum nr. 36/1977, um stjórn og starfrækslu póst- og símamála.

158. gr.

    4. gr. laganna orðast svo:
    Forseti Íslands skipar póst- og símamálastjóra til fimm ára í senn. Póst- og símamálastjóri veitir póst- og símamálastofnun forstöðu.
    Póst- og símamálastjóri ræður annað starfsfólk stofnunarinnar, að fengnum tillögum starfsmannaráðs póst- og símamálastofnunar, sbr. 10. gr.
    

Breyting á vegalögum nr. 45/1994.


159. gr.

    Í stað 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna koma þrír nýir málsliðir er orðast svo: Til að stjórna framkvæmdum í þessum málum skipar forseti Íslands vegamálastjóra til fimm ára í senn og veitir hann Vegagerðinni forstöðu. Ráðherra ræður aðstoðarvegamálastjóra og framkvæmdastjóra að fengnum tillögum vegamálstjóra. Vegamálastjóri ræður aðra starfsmenn vegagerðarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 117/1994, um skipulag ferðamála.


160. gr.

    1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
    Að fenginni umsögn Ferðamálaráðs skipar ráðherra ferðamálastjóra til fimm ára í senn. Ferðamálastjóri annast daglega stjórn Ferðamálaráðs samkvæmt því sem ráðið ákveður.
    

XI. KAFLI

Sjávarútvegsráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 64/1965, um rannsóknir í þágu atvinnuveganna.

161. gr.

    22. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra skipar forstjóra og aðstoðarforstjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar. Ráðherra ræður forstöðumenn sviða að fengnum tillögum stjórnar og forstjóra. Forstjóri ræður sérfræðinga við stofnunina og annað starfsfólk. Forstjóri skal hafa lokið prófi í raunvísindum og vera sérfróður um fiskiðnað. Ráðherra ákveður stjórnskipulag Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.
    

Breyting á lögum nr. 36/1992, um Fiskistofu.


162. gr.

    1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstöðumann Fiskistofu, fiskistofustjóra, til fimm ára í senn.
    

XII. KAFLI

Umhverfisráðuneyti.

Breyting á skipulagslögum nr. 19/1964.

163. gr.

    1. málsl. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar skipulagsstjóra ríkisins til fimm ára í senn að fengnum tillögum skipulagsstjórnar.
    

Breyting á lögum nr. 47/1971 um náttúruvernd.


164. gr.

    1. málsl. 8. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs til fimm ára í senn og veitir hann skrifstofu þess forstöðu.
    

Breyting á lögum nr. 30/1985, um Veðurstofu Íslands.


165. gr.

    2. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:
    Veðurstofustjóri ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 31/1985, um Landmælingar Íslands.


166. gr.

    3. gr. laganna orðast svo:
    Forstjóri ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit,


með síðari breytingu.


167. gr.

    Eftirtaldar breytingar verða á 14. gr. laganna eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 70/1995:
    Í stað orðsins „fjögurra“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: fimm.
    5. málsl. 3. mgr. orðast svo: Þeir skulu ráðnir af framkvæmdastjóra að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.
    

Breyting á lögum nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.


168. gr.

    4. málsl. 7. gr. laganna orðast svo: Forstjóri ræður deildarstjóra og sérfræðinga að fengnum tillögum stjórnar.
    

Breyting á lögum nr. 64/1994, um verndun, friðun og veiðar á villtum fuglum


og villtum spendýrum.


169. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar veiðistjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum ráðgjafanefndar um villt dýr.

XIII. KAFLI

Utanríkisráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands.

170. gr.

    9. gr. laganna orðast svo:
    Forseti Íslands skipar til fimm ára í senn þá starfsmenn sem taldir eru í 1. og 2. flokki samkvæmt 8. gr. Ráðherra skipar kjörræðismenn ótímabundið, en forseti Íslands aðalræðismenn með sama hætti. Aðrir starfsmenn eru ráðnir.
    

171. gr.

    10. gr. laganna orðast svo:
    Starfsmenn utanríkisþjónustunnar eru skyldir til að starfa sem fulltrúar utanríkisþjónustunnar erlendis eða í utanríkisráðuneytinu samkvæmt ákvörðun ráðherra. Eigi þarf nýja skipun, þótt embættismaður sé fluttur milli staða eða starfa innan sama flokks samkvæmt 8. gr. þessara laga en skipunartími hans framlengist við flutninginn til fimm ára í senn.
    

XIV. KAFLI

Viðskiptaráðuneyti.

Breyting á lögum nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands.

172. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: fimm.
    

173. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 2. málsl. 2. mgr. 26. gr. laganna kemur: fimm.
    

Breyting á samkeppnislögum nr. 8/1993.


174. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: fimm.
    

Breyting á lögum nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi.


175. gr.

    Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 3. mgr. 50. gr. laganna kemur: fimm.
    

Breyting á lögum nr. 43/1993, um viðskiptabanka og sparisjóði.


176. gr.

    1. málsl. 29. gr. laganna orðast svo: Bankastjórn ríkisviðskiptabanka skal skipuð þremur bankastjórum sem skulu eigi skipaðir til lengri tíma en fimm ára í senn.
    

XV. KAFLI

Gildistaka.

177. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1996.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Ríkisstjórnin hefur markað nýja stefnu í starfsmannamálum ríkisins og leitað eftir atbeina Alþingis til að hrinda henni í framkvæmd með samþykkt frumvarps til nýrra starfsmannalaga (hér eftir auðkennt: stmlfrv.). Ákvæði þeirra víkja þó eftir sem áður fyrir sérákvæðum í öðrum lögum eins og hnykkt er á í 3. gr. stmlfrv. Markmið starfsmannastefnunnar ná því ekki að fullu fram að ganga nema sérákvæði um einstaka embættismenn og hópa starfsmanna verði í öllu verulegu færð til samræmis við meginreglur almennu laganna, eins og þær birtast í stmlfrv. Í þessu felst samnefnari allra þeirra breytinga sem hér er lagt til að gerðar verði á sérákvæðum í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og teljast þessar helstar:
    Afnám æviráðningar
    Í 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að lögfest verði sú meginregla að skipun í embætti verði framvegis tímabundin til fimm ára í senn. Af þessum sökum er lagt til að öllum sérákvæðum um ótímabundna skipun í embætti verði breytt í samræmi við meginreglu stmlfrv. utan skipun í dómaraembætti sem óvarlegt þykir að tímabinda með hliðsjón af 61. gr. stjórnarskrárinnar og í embætti ríkissaksóknara sem svipuð sjónarmið þykja eiga við um.
    Skipun í embætti
    Í 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að lögfest verði sú meginregla að forstöðumenn stofnana og aðrir þeir starfsmenn stofnana sem taldar eru í 22. gr. sama frumvarps komi að störfum sínum með skipun í embætti. Í samræmi við þetta er nokkrum ákvæðum sem mæla fyrir um að forstöðumenn skuli ráðnir til starfa, tímabundið eða ótímbundið, breytt í tímabundna skipun. Í nokkrum tilvikum er lagt til að staðgenglar þeirra eða næstráðendur komi að störfum sínum með sama hætti.
    Ótímabundin ráðning í starf
    2. mgr. 5. gr. stmlfrv. gerir jafnframt ráð fyrir að forstöðumenn ráði aðra starfsmenn stofnana. Í samræmi við þetta er ákvæðum sem fela ráðherra eða stjórn stofnunar að skipa eða ráða annað starfslið breytt og forstöðumanni falið ráðning þess, nema sérstök rök standi til annars. Það á t.d. við um staðgengla forstöðumanna eða næstráðendur, eins og lýst hefur verið, lögreglumenn og aðra þá sem fela má lögregluvald lögum samkvæmt og starfsstéttir sem talist hafa til embættismanna og ekki þykir rétt að breyta að svo stöddu, svo sem prestar og prófessorar.
    Tímabundin ráðning afnumin eða stytt
    Í 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. er lagt til að lögfest verði sú meginregla að ráðning í starf skuli almennt vera ótímabundin með gagnkvæmum uppsagnarrétti með þriggja mánaða fyrirvara. Skv. 2. mgr. sömu greinar er þó heimilt að ráða í starf tímabundið en þó aldrei lengur en til tveggja ára. Í samræmi við þetta er tímabundin ráðning starfsliðs almennt felld niður nema sérstök rök standi til annars og þá bundin við tveggja ára hámark.
    Frumvarpið miðar við gildandi lög þegar það er lagt fram. Í einhverjum tilvikum eru því lagðar til breytingar á lögum sem ríkisstjórnin hefur þegar beitt sér fyrir breytingum á í öðrum frumvörpum. Meðan ekki er ljóst hvaða afgreiðslu slík frumvörp fá á Alþingi þótti þó ekki önnur leið fær en að halda í þessu frumvarpi öllum þeim breytingum sem nauðsynlegt er að gera á gildandi lögum. Eftir atvikum þarf síðan að fella úr þessu frumvarpi ákvæði um breytingar á lögum sem þingið afgreiðir með öðrum hætti.
    Loks ber að leggja áherslu á að ákvæði þessa frumvarps leiða öll með einum eða öðrum hætti af frumvarpi til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    Frumvarpinu er skipt í kafla eftir því undir hvaða ráðuneyti heyrir eftirlit með framkvæmd þeirra laga sem leitað er breytinga á og innan hvers kafla eftir aldursröð viðkomandi laga.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um I. kafla.


Um 1. gr.


    Gildandi ákvæði heimilar þingvallanefnd að ráða umsjónarmann á Þingvöllum til fimm ára í senn, en tímabundin ráðning til svo langs tíma verður almennt óheimil skv. 2. mgr. 41. gr. stmlfrv. Þá hafa lög um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkjunnar til skamms tíma falið sóknarpresti þingvallaprestakalls, sem dóms- og kirkjumálaráðherra skipar, að gegna jafnframt þeim starfa sínum starfi þjóðgarðsvarðar. Í 35. gr. þessa frumvarps er lagt til að hin lögbundna tenging þessara starfa verði rofin enda má færa að því gild rök að hún stríði gegn grundvallarreglum stjórnskipunarinnar um skipting starfa og valdmörk ráðherra. Þess í stað er í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. lagt til að forsætisráðherra verði falið að skipa þjóðgarðsvörð til fimm ára í senn, sbr. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv., þó að bindandi tillögu þingvallanefndar í samræmi við valdsvið hennar samkvæmt lögum um friðun þingvalla. Jafnframt þjóðgarðsvörslu er lagt til að þjóðgarðsvörður gegni störfum framkvæmdastjóra þingvallanefndar og ráði annað starfslið í samræmi við stefnumið stmlfrv.
    

Um 2. gr.


    Gildandi ákvæði mælir fyrir um að sá starfsmaður forsætisráðuneytis sem forsætisráðherra velur til að gegna jafnframt störfum ritara ráðherrafunda komi að því starfi sínu með skipun. Við það hugtak eru bæði samkvæmt gildandi starfsmannalögum og hinu nýja stmlfrv. bundin réttindi sem ekki þykja fara saman við það svigrúm sem rétt þykir að forsætisráðherra og eftir atvikum ríkisstjórn hafi til að ráðstafa þessum trúnaðarstarfa eins og hentast þykir hverju sinni, t.a.m. við stjórnarskipti. Af þessum sökum er lagt til að gerðar verði viðeigandi breytingar á ákvæðinu í samræmi við skyldu starfsmanns til að hlíta breytingum á starfi sínu og verksviði skv. 19. gr. stmlfrv.
    

Um 3. gr.


    Aðrar breytingar sem lagt er til að lög um Stjórnarráð Íslands taki leiða allar af þeirri breytingu sem lagt er til að gerð verði á 13. gr. laganna í 6. gr. þessa frumvarps. Hún felur í sér að einungis ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar í ráðuneytum komi að störfum sínum með tímabundinni skipun, en deildarstjórar verði ráðnir til starfa eins og annað starfslið ráðuneytanna. Þessi breyting er í samræmi við það stefnumið stmlfrv. að einungis æðstu stjórnendur og stundum staðgenglar þeirra eða aðrir næstráðendur verði skipaðir í embætti, sbr. 2. mgr. 5. gr. og hér 3. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. Gildandi starfsmannaákvæði stjórnarráðslaga taka hins vegar mið af öðrum ákvæðum sömu laga um innra skipulag ráðuneyta. Samhliða breytingum á starfsmannaákvæðunum þykir þess vegna nauðsynlegt að gera jafnframt nokkrar breytingar á þeirri tilhögun sem 7. og 11. gr. laganna gera ráð fyrir.
    Í 7. gr. gildandi laga um stjórnarráðið segir að ráðherra kveði á um skiptingu ráðuneytis í starfsdeildir eftir verkefnum og í 1. mgr. 11. gr. að þeim stýri deildarstjórar undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra en ráðherra getur einnig sett þeim erindisbréf skv. 4. mgr. sömu greinar. Þannig teljast grunneiningar ráðuneytanna vera deildir samkvæmt gildandi lögum en ekki er gert ráð fyrir skrifstofum sem sérstökum stjórnunareiningum. Eftir því sem umsvif hins opinbera hafa aukist og stjórnsýslan þróast hefur svo einfalt stjórnskipulag ekki reynst fullnægjandi, a.m.k. ekki í hinum stærri ráðuneytum, sem aftur hefur leitt af sér að innan þeirra hefur verið stofnað til skrifstofa sem sérstaks stjórnunarstigs yfir deildunum. Sú breyting sem lagt er til að gerð verði á 7. gr. miðar að því aðlaga lögin þeirri breytingu sem telja verður að þegar sé orðin á stjórnskipulagi ráðuneyta, sbr. niðurstöður könnunar sem forsætisráðuneytið gekkst fyrir í tengslum við gerð frumvarps til nýrra stjórnarráðslaga árið 1989 og lýst er í alþt. 1989–90, A-deild, bls. 4082–83.

Um 4. gr.


    Breyting á 1. mgr. 11. gr. samkvæmt staflið a er í samræmi við þær breytingar sem þegar hefur verið lýst og miðar að því að skýra stöðu skrifstofustjóra og deildarstjóra í ráðuneytum.
    Í staflið b er lagt til að felld verði brott heimild til að skipa deildarstjóra ráðuneytis skrifstofustjóra þess ráðuneytis, sem taki sjálfkrafa við störfum ráðuneytisstjóra í forföllum hans. Með öðrum breytingum á lögunum þykir þetta ákvæði óþarft en það gerði upphaflega ráð fyrir að aðeins einn skrifstofustjóri gæti starfað í hverju ráðuneyti og hefði sömu stöðu og deildarstjóri nema í forföllum ráðuneytisstjóra að hann tæki við störfum hans. Með brottfalli þessa ákvæðis er gert ráð fyrir að staðgengill ráðuneytisstjóra verði eftir sem áður valinn úr hópi skrifstofustjóra en falið það hlutverk sitt með erindisbréfi ráðherra skv. 4. mgr. 11. gr. laganna.
    Í staflið c er orðalag fært til samræmis við breytingar á ráðningarformi deildarstjóra skv. 6. gr. frumvarpsins.
    

Um 5. gr.


    Það er kunnara en frá þurfi að segja að starfsheiti í stjórnarráðinu eru nú orðin allmiklu fleiri en talin eru í 12. gr. stjórnarráðslaga. Til að koma einhverjum böndum á er lagt til að ráðning starfsmanna undir öðrum starfsheitum en þar greinir verði bundin heimild ráðherra.
    

Um 6. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og breyta skipun deildarstjóra og annarra starfsmanna ráðuneyta í ráðningu í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv.
    

Um 7. gr.


    Hér er lagt til að stöðu aðstoðarmanna ráðherra innan ráðuneyta verði breytt úr deildarstjórastöðu í stöðu skrifstofustjóra eins og eðlilegt er með hliðsjón af öðrum breytingum á stjórnarráðslögum og hinum sérstöku trúnaðarskyldum sem aðstoðarmenn hafa við ráðherra. Til að taka af allan vafa þykir hins vegar rétt að taka fram að breyting þessi miðar ekki á nokkurn hátt að því að gera þá að einhvers konar staðgenglum ráðherranna eða aðstoðarráðherrum.
    

Um 8. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun forstjóra Þjóðhagsstofnunar til fimm ára í senn í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Jafnframt er fellt brott úrelt sérnefni stöðunnar.
    

Um 9.–10. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæðum er forstjóri Byggðastofnunar ráðinn ótímabundið af stjórn stofnunarinnar með sex mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að ráðherra skipi forstjórann tímabundið.
    

Um 11. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er ríkisendurskoðandi ráðinn af forsetum Alþingis í sameiningu til sex ára í senn. Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er í staflið a lagt til að hann verði skipaður af forseta Alþingis til fimm ára í senn. Hæfisskilyrði ríkisendurskoðanda eru óbreytt, en í ljósi ítarlegra ákvæða 6. kafla stmlfrv. um aðdraganda að og skilyrði fyrir brottvikningu skipaðra manna úr embætti er í staflið b lagt til að brott falli sérregla um að forseti verði að njóta tilstyrks meirihluta Alþingis til slíkrar athafnar. Þá er einnig lagt til að brott falli úr þessari grein þýðingarlaust ákvæði um að ríkisendurskoðandi sé starfsmaður Alþingis og beri ábyrgð gagnvart því, enda bætir það engu við það sem þegar er fram komið í 1. gr. laganna og er til þess fallið að valda ruglingi eins og það er staðsett í 2. gr. og hugtakanotkun stmlfrv.
    

Um 12. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er umboðsmaður Alþingis kjörinn á Alþingi til fjögurra ára í senn. Í frumvarpi því er varð að lögum um umboðsmann Alþingis var lagt til að umboðsmanninn skyldi kjósa að loknum hverjum kosningum til Alþingis (alþt. 1986–87, A-deild, bls. 2556 og 2559). Í meðferð þingsins var tenging við kjörtímabil Alþingis rofin en lengd kjörtímabils umboðsmanns þess í stað bundin við fjögur ár. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að kjörtímabil hans verði lengt í fimm ár.
    

Um 13. gr.


    Samkvæmt fyrri málsl. 14. gr. laga um umboðsmann Alþingis skal hann sjálfur ráða starfsfólk embættis síns en ber skv. síðari málsl. sömu greinar að fara eftir reglum sem Alþingi setur um fjölda þess og launakjör. Í ljósi þeirra meginmarkmiða stmlfrv. að færa vald til að taka ákvarðanir um starfsmenn stofnana frá yfirstjórn stofnananna til forstöðumanna þeirra, auka sveigjanleika í starfsmannahaldi og einfalda launakerfi, þykir síðari málsliður greinarinnar skerða það sjálfræði sem þau stefna að og fyrri málsliður 14. gr. laganna virðist ætla umboðsmanni. Af þessum sökum er lagt til að síðari málsliður greinarinnar falli brott.
    

Um 14. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er skrifstofustjóri Alþingis ráðinn af forsætisnefnd til sex ára í senn. Í athugasemdum við þetta ákvæði frumvarps þess er varð að lögum um þingsköp Alþingis er skýrt að sex ára ráðningartími hans sé í samræmi við það sem farið sé að tíðkast um æðstu embættismenn ríkisins (alþt. 1991 vþ., A-deild, bls. 25). Í ljósi þess að gert er ráð fyrir að þessi hópur muni framvegis taka skipun til fimm ára í senn skv. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að hið sama gildi um skrifstofustjóra Alþingis.
    

Um II. kafla.


Um 15. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er framkvæmdastjóri almannavarnaráðs skipaður ótímabundið að fengnum tillögum ráðsins en ráðherra er þó heimilt að tímabinda skipun hans. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. stmlfrv. er í staflið a lagt til að skipun framkvæmdastjórans verði tímabundin.
    Í stað 2. málsl. málsgreinarinnar, sem geymt hefur heimild, sem nú verður óþörf, til að tímabinda skipun framkvæmdastjóra, er í staflið b lagt til að tekið verði upp nýtt ákvæði þess efnis að framkvæmdastjóri ráði annað starfslið ráðsins eins og 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. miðar að.
    Loks er í staflið c lagt til að fulltrúar almannavarnaráðs í kjördæmum landsins komi að þeim störfum sínum með ótímabundinni ráðningu í stað skipunar, enda geta þeir einir komið að störfum sínum með skipun sem taldir eru í 1. mgr. 22. gr. stmlfrv.
    

Um 16. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun forstjóra Landhelgisgæslunnar til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 17. gr.


    Lagt er til að úrelt lagatilvísun verði gerð að eyðuákvæði þannig greinin vísi til þeirra laga sem á hverjum tíma gilda um lögreglumenn og um meðferð opinberra mála.
    

Um 18. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun lögreglumanna í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 19. gr.


    61. gr. stjórnarskrárinnar virðist ganga út frá því sem meginreglu að dómarar skuli skipaðir í embætti ótímabundið, enda verði þeim ekki að fullu vikið úr embætti nema með dómi. Er því m.a. ætlað að tryggja sjálfstæði dómstólanna gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins. Vegna meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. um tímabundna skipun í embætti, nema annað sé tekið fram í lögum, er því einu bætt við gildandi ákvæði að skipun hæstaréttardómara skuli vera ótímabundin.
    

Um 20. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun hæstaréttarritara í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Jafnframt þykir eðlilegra að veitingarvald þessa embættis og ráðning annarra starfsmanna sé í höndum forseta hæstaréttar í stað réttarins í heild eins og gildandi ákvæði er orðað.
    

Um 21. gr.


    Lagt er til að lagatilvísun verði gerð að eyðuákvæði þannig að starfsgengisskilyrði presta og forstöðumanna skráðra trúfélaga ráðist af því sem á hverjum tíma gildir um starfsmenn ríkisins, sbr. 6. gr. stmlfrv. en þau eru í meginatriðum hin sömu og nú gilda skv. 3. gr. laga nr. 38/1954.
    

Um 22. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felst einungis í að tímabinda skipun rannsóknarlögreglustjóra til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið b felst í færa veitingarvald embættis vararannsóknarlögreglustjóra frá forseta til ráðherra í ljósi staðgengilshlutverks hans og tímabinda skipun í embættið í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði er annað starfslið rannsóknarlögreglunnar skipað af ráðherra. Í staflið c er lagt til að greint verði á milli sérhæfðs starfsliðs, þ. á m. löglærðs starfsliðs og rannsóknarlögreglumanna, annars vegar og annars starfsliðs, þ. á m. þess sem sinnir almennum skrifstofu- og ritarastörfum, hins vegar, á þann hátt að fyrrnefndi hópurinn kemur að störfum sínum eins og aðrir þeir sem falið er að fara með lögregluvald, þ.e. með tímabundinni skipun ráðherra, en síðarnefndi hópurinn, eins og meginþorri starfsmanna ríkisins, með ótímabundinni ráðningu forstöðumanns stofnunarinnar.
    

Um 23. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun biskupsins yfir Íslandi í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 24. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda veitingu prestsembættis að undangengnu vali í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. hvort heldur valið er með bindandi niðurstöðu samkvæmt staflið a eða án bindandi niðurstöðu samkvæmt stafið b.

Um 25. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að binda tímabundna veitingu prestsembættis samkvæmt köllun við fimm ár í stað fjögurra ára hámarks í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 26. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda veitingu prestsembættis að undangenginni kosningu í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. hvort heldur niðustaða kjörsins er bindandi samkvæmt staflið a eða ekki samkvæmt staflið b.
    

Um 27. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun framkvæmdastjóra Umferðarráðs til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 28. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun forstjóra fangelsismálastofnunar í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Jafnframt er lagt til að sérhæft starfslið stofnunarinnar komi að störfum sínum með tímabundinni skipun í stað ráðningar ráðherra í samræmi við það sem lagt er til að almennt gildi um þá sem sinna skyldum störfum á sviði löggæslu og réttarvörslu.
    

Um 29. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að ráðherra er í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. falið að skipa forstöðumenn fangelsa í stað þess að ráða þá. Jafnframt er skipun þeirra tímabundin í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 30. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að fangaverðir koma störfum sínum með tímabundinni skipun í stað ráðningar ráðherra í samræmi við það sem lagt er til að almennt gildi um þá sem falið er lögregluvald.
    

Um 31. gr.


    61. gr. stjórnarskrárinnar virðist ganga út frá því sem meginreglu að dómarar skuli skipaðir í embætti ótímabundið, enda verði þeim ekki að fullu vikið úr embætti nema með dómi. Er því m.a. ætlað að tryggja sjálfstæði dómstólanna gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins. Vegna meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. um tímabundna skipun í embætti, nema annað sé tekið fram í lögum, er því einu bætt við gildandi ákvæði að skipun héraðsdómara skuli vera ótímabundin.
    

Um 32. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun dómarafulltrúa í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Vegna nýlegra breytinga sem gerðar hafa verið á stöðu fulltrúanna þykir rétt að árétta að þeir starfa í umboði og á ábyrgð dómstjóra eða héraðsdómara, þar sem dómstjóri er ekki skipaður. Tímabinding skipunar þeirra þykir því ekki með nokkru móti vega að stjórnarskrárvörðu sjálfstæði dómstólanna eða tefla í tvísýnu stöðu þeirra til að annast lögmælt störf á óvilhallan hátt.
    

Um 33. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun sýslumanna til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 34. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felst einungis í að tímabinda skipun deildarstjóra við sýslumannsembætti í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði mæla að öðru leyti ekki fyrir um hvernig starfsmenn sýslumannsembætta koma að störfum sínum. Í samræmi við aðra þá sem falið er að fara með lögregluvald er lagt til að sérhæft starfslið sýslumanna, þ. á m. löglærðir fulltrúar, komi að störfum sínum með tímabundinni skipun ráðherra, en annað starfslið, þ. á m. þeir sem sinna almennum skrifstofu- og ritarastörfum, verði ráðið af sýslumanni.
    

Um 35. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun prestsins á Þingvöllum í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Jafnframt er lagt til að fellt verði úr þessum lögum ákvæði um stöðu hans sem þjóðgarðsvarðar, enda þykir eðlilegra og í samræmi við þá stefnu stmlfrv. að völd og ábyrgð fari saman að ráðning hans sé í höndum þess stjórnvalds sem fer með málefni þjóðgarðsins og er að mestu leyti í höndum þingkjörinnar stjórnar, þingvallanefndar. Það stjórnvald getur eftir sem áður falið sama manni að hafa bæði þessi störf með höndum.
    

Um 36. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun sóknarpresta í embætti í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 37. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að gera það að eyðuákvæði þannig að það vísi til þeirra almennu hæfisskilyrða sem á hverjum tíma gilda samkvæmt lögum um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Gildandi hæfisskilyrði í 3. gr. laga nr. 38/1954 eru í meginatriðum óbreytt í 6. gr. stmlfrv.
    

Um 38. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að gera það að eyðuákvæði þannig að það vísi til þeirra laga sem á hverjum tíma gilda um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
    

Um 39. gr.


    Greinin sem leitað er breytinga á skyldar sóknarprest til að taka að sér aukaþjónustu sókna innan prófastsdæmis, samkvæmt boði biskups gegn launum skv. 26. gr. gildandi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríksins, nr. 38/1954. Sú grein mælir fyrir um að starfsmanni sem gegnir samkvæmt fyrirmælum stjórnvalds jafnhliða sínum starfa öðrum starfa, fái hálf þau föstu byrjunarlaun sem þeim starfa fylgja svo og allar aukatekjur. Breyting sú sem hér er lögð til felst í að gera lagatilvísun ákvæðsins að eyðuákvæði þannig að það vísi til þeirra laga sem á hverjum tíma gilda um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Af því leiðir samkvæmt stmlfrv. að þóknun fyrir aukastörf sem þessi verður metin af kjaranefnd skv. 1. mgr. 9. gr., sbr. 39. gr. stmlfrv.
    

Um 40. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að binda skipun prófasts við sama tíma og skipun hans í prestsembætti stendur til þegar hann tekur við prófastsembættinu.

Um 41. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun biskups í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 42. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun vígslubiskupa í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 43. gr.


    Vegna meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. um að skipun í embætti sé tímabundin, nema annað sé tekið fram í lögum, er því einu bætt við gildandi ákvæði samkvæmt staflið a að skipun ríkissaksóknara sé ótímbundin, en um sjáflstæði hans í starfi þykja gilda sams konar sjónarmið og um dómara.
    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið b felst í að tímabinda skipun vararíkissaksóknara og saksóknara í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Jafnframt er ráðherra falið veitingarvaldið í stað forseta.
    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar ráðherra annað starfslið við embætti ríkissaksóknara. Með hliðsjón af 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að sérhæft starfslið embættis hans, þ.m.t. löglærðir fulltrúar, verði skipaðir tímabundið, en ríkissaksóknara falið að ráða annað starfslið, s.s. þá sem gegna almennum skrifstofu- og ritarastörfum.
    

Um III. kafla.


Um 44. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að lengja tímabundna skipun ríkissáttasemjara og vararíkissáttasemjara úr fjórum árum í fimm til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 45. gr.


    Í gildandi ákvæði segir að ríkissáttasemjari ráði sér starfslið í samræmi við lög um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismálum ríkisstofnana. Í 3. tölul. 55. gr. stmlfrv. er lagt til að lög þessi falli brott. Í samræmi við það er lagt til að tilvísun þessi falli brott enda þykja starfsmannalög og fjárlög hverju sinni veita forstöðumönnum nægilegt aðhald við mat á starfsmannaþörf og ráðningar.
    

Um 46. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun forstjóra Vinnueftirlits ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og taka af tvímæli um að tillögur stjórnar stofnunarinnar eru ekki bindandi fyrir ráðherra.
    

Um 47. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði ræður Jafnréttisráð framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn. Breytingin er í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. um að forstöðumaður sé skipaður af ráðherra en annað starfslið ráðið af forstöðumanni. Jafnframt er lagt til að framkvæmdastjórinn sé skipaður tímabundið í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 48. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að stytta tímabundna skipun brunamálastjóra í fimm ár í stað sex til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 49. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun framkvæmdastjóra svæðisskrifstofa fyrir málefni fatlaðra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 50. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun forstöðumanns og framkvæmdastjóra Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 51. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að stytta tímabundna skipun framkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar ríkisins úr sex árum í fimm til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um IV. kafla.


Um 52. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun ríkisbókara í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 53. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skulu bæði forstjóri og aðrir starfsmenn Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins vera skipaðir af ráðherra og hann setja þeim erindisbréf. Í breytingunni felst að starfsmenn verða ráðnir af forstjóra í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. en skipun forstjóra er tímabundin í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Um veitingu erindisbréfa fyrir starfsmenn fer að 8. gr. stmlfrv.
    

Um 54. gr.


    Lagt er til að lagatilvísun verði gerð að eyðuákvæði þannig að um brot starfsmanns gegn lögum um lántökur ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja fari að ákvæðum starfsmannalaga eins og þau eru á hverjum tíma.
    

Um 55. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er forstjóri og fast starfsfólk Fasteignamats ríkisins ráðið af ráðherra en starfsfólk til tímabundinna starfa ráðið af forstjóra. Í breytingunni felst að forstjóri verður tímabundið skipaður af ráðherra en starfsfólk ráðið af forstjóra í samræmi við 2. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Þá þykir ekki ástæða til að halda í sérstaka heimild forstjóra til að ráða starfsfólk til tímabundinna starfa með hliðsjón af meginreglu 1. mgr. 41. gr. stmlfrv.
    

Um 56. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun skattstjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 57. gr.


    Í samræmi við stefnmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að umboðsmenn skattstjóra komi að þeim störfum með ráðningu, enda verður einungis skipað í störf hjá þeim stofnunum sem taldar eru í 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. Í ljósi þess að tilteknir starfsmenn sveitarfélaga geta verið skikkaðir til að taka við starfanum samkvæmt síðari málslið 1. mgr. 87. gr. þykir þó rétt að ráðning þeirra verði áfram í höndum ráðherra.

Um 58. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun ríkisskattstjóra og vararíkisskattstjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 59. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun skattrannsóknarstjóra ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 60. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun ríkislögmanns í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 61. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að lengja tímabundna skipun forstjóra Innkaupastofnunar ríkisins, sem nú kallar sig Ríkiskaup, úr fjórum árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 62. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun tollstjórans í Reykjavík í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 63. gr.


    Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og 8. sbr. 7. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að tekið verði upp afdráttarlaust ákvæði í lögin um að ríkistollstjóri komi að starfi sínu með tímabundinni skipun, sbr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 64. gr.


    Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og 8. sbr. 7. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að tekið verði upp afdráttarlaust ákvæði í lögin um að tollgæslustjóri komi að starfi sínu með tímabundinni skipun, sbr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 65. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru tollgæslumenn ráðnir til starfa. Í öðrum ákvæðum frumvarpsins er lagt til að þeir, sem falið er að halda uppi lögum og reglu og sinna öryggisgæslu og eftirliti, komi að jafnaði að stöfum sínum með tímabundinni skipun. Af þessum sökum er lagt til að sama regla gildi um tollgæslumenn í samræmi við 7. tölul. 1. mgr. 22. gr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 66. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun forstjóra Lánasýslu ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 67. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að stytta skipunartíma yfirskattanefndar úr sex árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. enda hafa fjórir nefndarmenn starfið að aðalstarfi.

Um V. kafla.


Um 68. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun hagstofustjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og fela veitingarvaldið forseta í samræmi við 13. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, sbr. 4. gr. s.l. Jafnframt er fellt brott úrelt ákvæði um aðstoðarmann hagstofustjóra þar eð hagstofan starfar auk stofnlaga sinna samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands og fer um starfsmannahald að þeim lögum.
    

Um VI. kafla.


Um 69. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felur í sér að skipun áfengisvarnaráðunautar er tímabundin í samræmi við 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og veitingavaldið falið ráðherra þeim er fer með mál er varða áfengisvarnir samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands í stað ríkisstjórnar. Jafnframt er heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra falið að setja honum erindisbréf samkvæmt staflið b í stað ríkisstjórnar. Loks segir í gildandi ákvæði að um launakjör áfengisvarnaráðunautar fari samkvæmt ákvæðum laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Í staflið c er tilvísun þessari breytt og færð til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins en skv. 39. gr. stmlfrv. taka embættismenn laun samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
    

Um 70. gr.


    Gildandi ákvæði kveður á um að ráðherra skipi yfirlækni og yfirheyrnar- og taluppeldisfræðing, en aðrir starfsmenn eru ráðnir af stjórn stöðvarinnar. Á meðal þeirra starfsmanna er einnig framkvæmdastjóri. Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að framkvæmdastjóri og yfirlæknir stöðvarinnar verði skipaðir af ráðherra til fimm ára í senn í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv., en annað starfslið ráðið af framkvæmdastjóra í stað stjórnar í samræmi við það markmið stmlfrv., sem m.a. birtist í 38. gr. stmlfrv., að auka á ábyrgð og tækifæri forstöðumanna til að skila betri árangri.
    

Um 71. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun yfirlæknis Þjónustu- og endurhæfingastöðvar sjónskertra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 72. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun forstöðumanns Geislavarna ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 73. gr.


    Breytingar á gildandi ákvæði felast einungis í að tímabinda skipun landlæknis og aðstoðarlandlæknis í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 74. gr.


    Breyting á gildandi ákvæðum felst einungis í að lengja tímabundna skipun héraðslækna og héraðshjúkrunarfræðinga úr fjórum árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 75. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru framkvæmdastjórar heilsugæslustöðva í Reykjavík ráðnir af stjórnum þeirra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að þeir verði skipaðir af ráðherra til fimm ára í senn sbr. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Jafnframt er þeim falið að annast starfsmannamál stöðvanna með vísan til 29. gr. laganna, sbr. 8. mgr. 30. gr. eins og lagt er til að því ákvæði verði breytt.
    

Um 76. gr.


    Með því lagt er til að forstjóri ríkisspítala og framkvæmdastjórum annarra heilbrigðisstofnana verði falið að ráða yfirlækna og hjúkrunarforstjóra skv. 78. gr. frumvarps þessa og þeir eru við önnur sjúkrahús ráðnir af sjúkrahússtjórnum skv. 3. mgr. 31. gr. laga um heilbrigðisþjónustu er lagt til að brott falli ákvæði um að ráðherra setji yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum erindisbréf en útgáfa slíkra bréfa er skv. stmlfrv. falin veitingarvaldshafa.
    

Um 77. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felst í að tímabinda skipun forstjóra ríkisspítala í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og fela ráðherra að skipa forstöðumenn sviða ríkisspítalanna til sama tíma í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði eru framkvæmdastjórar sjúkrahúsa ráðnir til starfa. Sem forstöðumenn stofnana er í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 8. tölul. 1. mgr. 22. gr., lagt til í stafliðum b og c að þeir komi að störfum sínum með skipun til fimm ára í senn sbr. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur staðfest sérstakt stjórnskipulag ríkisspítala. Með vísan til þeirra starfsmanna sem lagt er til að ráðherra skipi samkvæmt staflið a þykir rétt að lögin geri ráð fyrir að slíkt stjórnskipulag sé fyrir hendi. Í staflið d er því lagt til að tekið sé upp ákvæði um það og hvernig að setningu þess skuli staðið.
    Í samræmi við breytingar í stafliðum b og c er loks í staflið e lagt til að forstjóra ríkisspítala og framkvæmdastjórum sjúkrahúsa verði í samræmi við stefnumið stmlfrv. falið að annast um starfsmannahald þeirra stofnana sem þeir stýra í stað stjórna þeirra.
    

Um 78. gr.


    Gildandi ákvæði mælir fyrir um að yfirlæknar og hjúkrunarforstjórar við sjúkrahús ríkisins og aðrar heilbrigðisstofnanir skuli vera skipaðir af ráðherra en við önnur sjúkrahús ráðnir af viðkomandi sjúkrahússtjórn.
    Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. og framangreindar breytingar á þessum lögum er í þessari grein lagt til að yfirlæknar og hjúkrunarforstjórar við sjúkrahús ríkisins og aðrar heilbrigðisstofnanir verði ráðnir af forstöðumanni viðkomandi stofnunar. Að svo stöddu þykir hins vegar ekki rétt að færa ráðningu þeirra eða annars starfsliðs úr höndum stjórnar að því er önnur sjúkrahús varðar.
    

Um 79. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felst einungis í að tímabinda skipun forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins og tryggingayfirlæknis í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í staflið b lagt til að forstjóri ráði annað starfslið.
    

Um 80. gr.


    Fellt er brott ákvæði sem fært hefur verið í 79. gr. frumvarps þessa og lagt til að verði 2. málsl. 2. mgr. 3. gr. laga um almannatryggingar.
    

Um VII. kafla.


Um 81. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt fyrri málslið felst einungis í að tímabinda skipun forstöðumanns Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði eru sérfræðingar stofnunarinnar skipaðir af ráðherra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í síðari málslið lagt til að þeir verði ráðnir af forstjóra.
    

Um 82. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru deildarstjórar rannsóknastofnana atvinnulífsins skipaðir af ráðherra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að þeir verði framvegis ráðnir af forstjóra og honum veittar heimildir til að víkja frá þeim starfsgengisskilyrðum sem í ákvæðinu greinir í stað ráðherra.
    

Um 83. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun orkumálastjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 84. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru fastir starfsmenn Orkustofnunar skipaðir af ráðherra að fengnum tillögum orkumálastjóra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í staflið a lagt til að þeir verði ráðnir af orkumálastjóra.
    Í staflið b er er tilvísun færð til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 9. gr. stmlfrv.
    

Um 85. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði í staflið a felst einungis í að tímabinda skipun rafmagnsveitustjóra ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði eru fastir starfsmenn Rafmagnsveitu ríkisins skipaðir af ráðherra að fengnum tillögum rafmagnsveiturstjóra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í staflið b lagt til að þeir verði ráðnir af rafmagnsveitustjóra.
    Í staflið c er tilvísun færð til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 9. gr. stmlfrv.
    

Um 86. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun vörumerkjaskráritara í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 87. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að lengja tímabundna skipun forstjóra Iðntæknistofnunar úr fjórum í fimm ár í senn í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 88. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði ræður stjórn Iðntæknistofnunar framkvæmdastjóra aðaldeilda stofnunarinnar tímabundið til fjögurra ára í senn. Í samræmi við það markmið starfsmannastefnu ríkisstjórnarinnar að auka á ábyrgð og sjálfstæði forstöðumanna ríkisstofnana er lagt til að ráðning þeirra verði falin forstjóra að fengnum tillögum stjórnar. Jafnframt er í samræmi við meginreglu 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. og skuldbindingu fjármálaráðherra í kjarasamningum við stéttarfélög opinberra starfsmanna frá árinu 1989 lagt til að þessir eins og aðrir starfsmenn verði ráðnir ótímabundið með gagnkvæmum uppsagnarrétti.
    

Um 89. gr.


    Í samræmi við þá breytingu sem lögð er til í 88. gr. þessa frumvarps og af sömu ástæðum er í staflið a lagt til að brott falli að forstjóri þiggi umboð sitt til að ráða aðra starfsmenn frá stjórn stofnunarinnar.
    Í staflið b er lagt til að felld verði brott úrelt notkun hugtaka um fasta og lausa ráðningu starfsmanna og ákvæðið aðlagað meginreglu 41. gr. stmlfrv.
    

Um 90. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun rafmagnseftirlitsstjóra ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 91. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er starfslið rafmagnseftirlitsins skipað og ráðið af ráðherra að fengnum tillögum rafmagnseftirlitsstjóra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að það verði ráðið af rafmagnseftirlitsstjóra.
    

Um VIII. kafla.


Um 92. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun forstöðumanns garðyrkjuskóla ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 93. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun skógræktarstjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 94. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru skógarverðir skipaðir af ráðherra að fengnum tillögum skógræktarstjóra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að þeir verði ráðnir af skógræktarstjóra.
    

Um 95. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felst einungis í að tímabinda skipun landgræðslustjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði eru fulltrúar landgræðslustjóra skipaðir af ráðherra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í staflið b lagt til að þeir verði ráðnir af landgræðslustjóra.
    

Um 96. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skal landgræðslustjóri leita samþykkis ráðherra til að ráða landgræðsluverði. Í samræmi við markmið starfsmannastefnu ríkisstjórnarinnar um valddreifingu og aukið sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna ríkisstofnana er lagt til að þetta skilyrði falli brott.
    

Um 97. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru bæði forstjóri og sérfræðingar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins skipaðir af ráðherra. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að skipun forstjóra verði tímabundin til fimm ára í senn og í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að sérfræðingar stofnunarinnar verði ráðnir af forstjóra.
    

Um 98. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun veiðimálastjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 99. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun skólastjóra búnaðarskólanna í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 100. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar landbúnaðarráðherra fasta kennara við búnaðarskólana. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í staflið a lagt til að þeir verði ráðnir af skólastjóra.
    Gildandi ákvæði veitir heimild til að skipa bústjóra við skólabú búnaðarskólanna. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er í staflið b lagt til að heimilað verði að ráða þá þegar svo ber undir.
    

Um 101. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar landbúnaðarráðherra fasta kennara við búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að þeir verði ráðnir af skólastjóra. Jafnframt er felld niður tilvísun í lög nr. 97/1974, um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismálum ríkisstofnana, en þau falla úr gildi skv. 3. tölul. 55. gr. stmlfrv.
    

Um 102. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun héraðsdýralækna og dýralæknis fisksjúkdóma og stytta hámark skipunartíma yfirdýralæknis úr sex árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 103. gr.


    Gildandi ákvæði geymir úrelta tilvísun í ákvörðun launa héraðsdýralækna samkvæmt launalögum. Skv. 39. gr. stmlfrv. skulu laun skipaðra embættismanna, þ. á m. héraðsdýralækna, ákveðin af kjaranefnd. Er því lagt til að ákvæðið taki samsvarandi breytingum en það mælir að öðru leyti fyrir um hámarksstyrk til sveitarfélaga til að greiða mönnum, sem ekki eru dýralæknar að mennt, laun fyrir að annast tiltekin dýralæknisstörf meðan dýralæknir fæst ekki í umdæmi.
    

Um 104. og 105. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er forstöðumaður Hagþjónustu landbúnaðarins ráðinn af stjórn stofnunarinnar. Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna sbr. 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að forstöðumaðurinn verði skipaður af ráðherra til fimm ára í senn, sbr. einnig meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.

Um 106. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í einungis í að tímabinda skipun forstöðumanns aðfangaeftirlits með fóðri, áburði og sáðvöru í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um IX. kafla.


Um 107. gr.


    Lagt er til að felld verði brott heimild til að veita íþróttafulltrúa skipun í embætti að liðnum þremur árum í starfi í samræmi við 1. mgr. 22. gr. stmlfrv.
    

Um 108. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru bæði skólastjóri og kennarar Myndlista- og handíðaskólans skipaðir af ráðherra. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er í staflið a lagt til að skipun skólastjóra verði tímabundin og honum falið að ráða kennara í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. Þá er tillöguréttur við val á skólastjóra og kennurum fluttur til skólastjórnar skv. 2. mgr. 9. gr. laganna í stað fræðsluráðs.
    Í staflið b er lagt til að fellt verði brott úrelt ákvæði um að launakjör og kennsluskylda skólastjóra og kennara fari samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, enda mæla núgildandi lög um það efni ekki fyrir um slík atriði.
    

Um 109. gr.


    Breyting á gildandi lagaákvæði er í samræmi við þá breytingu sem lögð er til í 108. gr. frumvarps þessa og felur í sér að skólastjóri ráði fasta kennara, sbr. 2. mgr. 5. gr. stmlfrv.
    

Um 110. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðuneytið skólastjóra og fasta kennara eftir þörfum að fengnum tillögum skólastjóra. Jafnframt að laun þeirra skuli ákveðin í kjarasamningum starfsmanna ríkisins eða í kjaradómi.
    Í staflið a er annars vegar lagt til að ráðherra skipi skólastjóra til fimm ára í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og hins vegar að hann ráði fasta kennara við skólann í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. Jafnframt er lagt til að lögbundið verði að leita álits skólanefndar við val á umsækjendum en hún starfar skv. 2. mgr. 14. gr. laga um Stýrimannaskólann.
    Í staflið b er lagt til að launaákvæði vísi til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins en skv. 1. mgr. 9. gr. stmlfrv. skulu laun ákvörðuð af kjaranefnd, sbr. 39. gr. frumvarpsins, eða samkvæmt kjarasamningum, sbr. 47. gr. sama frumvarps.
    

Um 111. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar forseti Íslands skólastjóra Íþróttakennaraskólans en ráðherra annað fast starfsfólk. Í staflið a er í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. lagt til að ráðherra verði falið skipa skólastjórann og skólastjóranum að ráða annað starfslið. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að skipun skólastjóra verði tímabundin til fimm ára í senn.
    Breyting í staflið b leiðir af síðastgreindri breytingu með því að kennarar koma að störfum sínum með ráðningu í stað skipunar.
    

Um 112. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru launakjör skólastjóra og starfsmanna Íþróttakennaraskólans ákveðin samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Með breytingunni er lagt til að lagatilvísun sé breytt og færð til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 9. gr. stmlfrv.

Um 113. og 114. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðuneytið rektor, kennara og skólanefnd Tækniskóla Íslands. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að skipun rektors verði tímabundin og að kennarar og annað starfslið skólans verði ráðið af honum í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr.
    

Um 115. gr.


    Gildandi ákvæði kveður á um að heimilt sé að skipa deildarstjóra úr röðum kennara Tækniskóla Íslands. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að heilmildin taki til ráðningar þeirra í stað skipunar.
    

Um 116. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru sérfræðingar Stofnunar Árna Magnússonar skipaðir eða settir af menntamálaráðherra. Breytingin felur annars vegar í sér að forstöðumaður ráði sérfræðinga til starfa í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., og hins vegar að stjórnarnefnd verði umsagnaraðili við ráðningu sérfræðinga og geti þannig haft áhrif á val á umsækjendum.

Um 117. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar forseti Íslands skólastjóra Fósturskóla Íslands, en ráðherra skipar annað fast starfsfólk, að fengnum tillögum skólanefndar. Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a, felst annars vegar í því að tímabinda skipun skólastjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og hins vegar í að færa veitingarvaldið til ráðherra. Einnig er lagt til að skólastjóri ráði kennara og aðra starfsmenn skólans í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr.
    Í staflið b er lagt til að ákvæði um að skólastjóri ráði stundakennara og annað starfsfólk falli brott. Breyting sú sem lögð er til í staflið a gerir það ákvæði óþarft.
    

Um 118. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að lengja tímabundna skipun skólastjóra Leiklistarskóla Íslands í fimm ár úr fjórum í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 119. gr.


    Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til í staflið a að þjóðleikhússtjóri komi að stöðu sinni með skipun og í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. að hún standi til fimm ára í senn í stað fjögurra.
    Í staflið b er gildandi ákvæði einungis breytt til samræmis við þá breytingu sem lögð er til í staflið a.

Um 120. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðuneytið fjármálafulltrúa Þjóðleikhússins. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að fjármálafulltrúinn verði ráðinn af þjóðleikhússtjóra.
    

Um 121. gr.


     Gildandi ákvæði gerir ráð fyrir að þjóðleikhússtjóri sé ráðinn til starfa. Breytingin er til að samræma ákvæðið breytingu að staflið a í 119. gr. þessa frumvarps.
    Um 122. gr.
    Gildandi ákvæði gerir ráð fyrir að þjóðleikhússtjóri sé ráðinn til starfa. Breytingin er til að samræma ákvæðið breytingu í staflið a í 119. gr. þessa frumvarps.
    

Um 123. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru starfsmenn Blindrabókasafns Íslands ráðnir af stjórn Blindrabókasafnsins, að fengnum tillögum forstöðumanns og með samþykki menntamálaráðuneytis. Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna, sbr. 2. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 22. gr. stmlfrv., er lagt til að starfsmenn verði ráðnir af forstöðumanni. Lagt er til að stjórn Blindrabókasafns Íslands hafi í stað veitingarvalds, tillögurétt við ráðningu starfsmanna og geti með þeim hætti haft áhrif á val starfsmanna.
    

Um 124. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í því að tímabundinn skipunartími forstöðumanns Blindrabókasafns Íslands verður fimm ár í stað þriggja ára í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 125. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Íslands ráðinn af menntamálaráðherra að fengnum tillögum sjóðsstjórnar. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að framkvæmdastjórinn verði skipaður af ráðherra til fimm ára í senn, sbr. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 126. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði ræður menntamálaráðuneytið skólameistara og fasta kennara, þeir teljast til embættismanna ríkisins og taka laun samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Jafnframt er tiltekið að skólameistari ráði stundakennara og að ráðherra setji skólameistara og kennurum erindisbréf.
    Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er í staflið a lagt til að skólameistari sem forstöðumaður stofnunarinnar komi að stöðu sinni með tímabundinni skipun, sbr. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv., og honum falið að ráða kennara, jafnt fasta kennara sem stundakennara. Þá er tilvísun um launaákvörðun færð til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 9. gr. stmlfrv., í stað laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
    Skv. 3. málsl. 3. mgr. 5. gr. laga um vélstjóranám skal skólanefnd fjalla um umsóknir um skólameistara- og kennarastöður og senda menntamálaráðuneytinu umsagnir um umsækjendur. Breyting samkvæmt staflið b leiðir af því að ráðning kennara er færð í hendur skólameistara samkvæmt staflið a og skólanefnd ber því að beina umsögnum sínum vegna slíkra starfa til hans.
    Skv. 4. mgr. 5. gr. laga um vélstjóranám setur ráðherra skólanefnd, skólameistara og kennurum erindisbréf. Í ljósi þess að stmlfrv. gerir ráð fyrir að veiting erindisbréfa sé ávallt í höndum veitingarvaldshafa og geymir um þau sérstök ákvæði í 8. og 38. gr. þykir ekki þörf á að hala slíku ákvæði í sérlögum.
    

Um 127. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðherra skólastjóra og fastráðna kennara Þroskaþjálfaskóla Íslands. Til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til í staflið a, að skólastjóri verði skipaður tímabundið. Einnig er lagt til að skipun kennara verði afnumin í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr.
    Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna, sbr. 2. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 22. gr. stmlfrv., er í staflið b lagt til að kennarar verði ráðnir af skólastjóra að fengnum tillögum skólastjórnar.
    

Um 128. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a, felst einungis í að tímabinda skipun þjóðskjalavarðar til samræmis við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðherra eða setur skjalaverði að fengnum tillögum stjórnarnefndar en þjóðaskjalavörður ræður aðra fasta starfsmenn með samþykki stjórnarnefndar. Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna, sbr. 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., er í staflið b lagt til að þjóðskjalavörður ráði fast starfsfólk, en stjórnarnefnd hafi tillögurétt við ráðningu þess.
    

Um 129. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun útvarpsstjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 130. gr


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru framkvæmdastjórar Ríkisútvarps skipaðir af menntamálaráðherra að fengnum tillögum útvarpsráðs og útvarpsstjóra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að þeir verði ráðnir af útvarpsstjóra að fengnum tillögum útvarpsráðs.
    

Um 131. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er deildarstjóri Rannsóknadeildar fisksjúkdóma skipaður af menntamálaráðherra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að deildarstjóri verði ráðinn af forstöðumanni Tilraunastöðvar háskólans í meinafræði enda lýtur deildin stjórn hans.
    

Um 132. gr.


    Gildandi ákvæði veitir heimild til að skipa dósent eða lektor tímabundinni skipun til allt að fimm ára í senn. Með breytingu í 133. gr. þessa frumvarps á 32. gr. laga um Kennaraháskóla Íslands er lagt til að dósentar og lektorar komi að stöðum sínum með ótímabundinni ráðningu í stað skipunar. Af þeim sökum er hér lagt til að heimild þessari verði breytt í tímabundna ráðningu og hún bundin við tveggja ára hámark í samræmi við 2. mgr. 41. gr. stmlfrv.
    

Um 133. gr.


    Um staflið a.
    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar forseti prófessora og menntamálaráðherra dósenta og lektora. Í samræmi við 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er annars vegar lagt til að skipun prófessora verði tímabundin til fimm ára í senn. Í samræmi við markmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. um aukið sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna á starfsmannahaldi er hins vegar lagt til að dósentar og lektorar verði ráðnir af rektor. Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. verður ráðning þeirra ótímabundin með gagnkvæmum uppsagnarrétti.
    Um staflið b.
    Í samræmi við þær breytingar sem verða á því hvernig kennarar koma að störfum sínum er lagt til að ákvæði um almenn hæfisskilyrði kennara taki samsvarandi breytingum.
    Um staflið c.
    Gildandi ákvæði veitir heimild til að flytja lektor úr lektorsstöðu í dósentsstöðu og dósent úr dósentsstöðu í prófessorsstöðu. Vegna þeirra breytinga sem verða á því hvernig kennarar koma að störfum sínum þykir ekki unnt að viðhalda þessu framgangskerfi að því er prófessora varðar og miðar breyting þessi að því að fella þann hluta þess brott.
    

Um 134. gr.


    1. mgr. 33. gr. laga um Kennaraháskóla Íslands, sem lagt er til að falli brott samkvæmt staflið a, mælir fyrir um tímabundna ráðningu kennslustjóra, fjármálastjóra og endurmenntunarstjóra og ótímabundna skipun aðalbókavarðar. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. er í staflið b lagt til að rektor ráði ótímabundið í þessi störf eins og önnur við skólann. Jafnframt felst í breytingu samkvæmt staflið b að ekki þarf að leita samþykkis menntamálaráðherra fyrir ráðningu í stöður enda þykja ákvæði stmlfrv., sér í lagi 38. gr. þess, og vísun til fjárlaga veita fullnægjandi aðhald hvað það varðar.
    

Um 135. gr.


    Samkvæmt 12. gr. laga um framhaldsskóla nr. 57/1988, eins og henni var breytt með 7. gr. laga nr. 72/1989, er skólameistari skipaður eða settur af ráðherra og kennarar, námsráðgjafar og skólasafnverðir annaðhvort skipaðir af ráðherra eða ráðnir af skólameistara. Með þeirri breytingu sem lögð er til í staflið a er í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. lagt til að ráðherra skipi ekki aðra en skólameistara og að sú skipun sé tímabundin í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Skólameistari ræður þá annað starfslið skólans eins og fram gengur af öðrum ákvæðum 12. gr.
    Breyting á 5. mgr. samkvæmt staflið b felst í að fella brott tímabundna ráðningu í þau starfsheiti sem þar greinir þar sem tímabundin ráðning verður almennt óheimil til lengri tíma en tveggja ára skv. 2. mgr. 41. gr. stmlfrv. Jafnframt er felld úr þeirri málsgrein skylda til að bera ákvarðanir um ráðningu í þau starfsheiti undir menntamálaráðuneytið í samræmi við þau markmið starfsmannastefnunnar sem birtast m.a. í 38. gr. stmlfrv. og miða að því að auka sjálfræði og ábyrgð forstöðumanna stofnana.
    

Um 136. gr.


    Þessar breytingar leiða af þeim breytingum á ráðningarformi skólameistara og kennara sem gerð hefur verið grein fyrir í athugasemdum við 135. gr. frumvarps þessa.
    

Um 137. gr.


    14. gr. laga um framhaldsskóla fjallar um sérstakt orlof sem kennarar eiga rétt til að liðnum tilteknum tíma í starfi óháð því hvernig þeir eru að störfum sínum komnir. Með því að þeir verða aðeins ráðnir samkvæmt þeirri breytingu sem lögð er til í 135. gr. frumvarps þessa þykir rétt að fella brott skírskotun til mismunandi ráðningarhátta sem þar með verður úrelt.
    

Um 138. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er forstöðumaður Listasafns Íslands ráðinn af menntamálaráðherra til fimm ára í senn. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt í staflið a, að hann verði skipaður til fimm ára í senn af menntamálaráðherra, sbr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Breytingar í staflið b, c og d felast einungis í því að aðlaga lagatextann þeirri breytingu.
    

Um 139. gr.


     Samkvæmt gildandi ákvæði ræður menntamálaráðherra nauðsynlegt starfslið Listasafns Íslands að fengnum tillögum forstöðumanns. Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna, sbr. 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., er lagt til að forstöðumaður ráði nauðsynlegt starfslið.
    Um 140. gr.
    Breyting á gildandi ákvæði felst í því að minjaverðir verða ráðnir ótímabundið í stað þess að binda ráðningu þeirra til fimm ára. Er það gert til samræmis við 1. mgr . 41. gr. stmlfrv. sem gerir ráð fyrir að starfsmenn ríkisins séu almennt ráðnir ótímabundið.
    

Um 141. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði ræður menntamálaráðherra safnstjóra til fimm ára í senn, að fengnum tillögum þjóðminjavarðar og þjóðminjaráðs. Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna, sbr. 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til í staflið a, að þjóðminjavörður ráði safnstjóra að fengnum tillögum þjóðminjaráðs. Ráðning hans verði ótímabundin í samræmi við meginreglu 1. mgr. 41. gr. stmlfrv.
    Breyting á gildandi ákvæði í staflið b, felst einungis í að fella niður tímabundna ráðningu deildarstjóra við Þjóðminjasafnið, til samræmis við 1. mgr. 41. gr. stmlfrv.
    

Um 142. gr


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðherra fastráðið starfsfólk að fengnum tillögum málnefndar. Í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna, sbr. 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., er lagt til í staflið a að forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar ráði starfsfólk að fengnum tillögum málnefndar.
    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið b felst einungis í því að 2. og 3. mgr. gildandi ákvæðis eru samræmdar og felldar saman í eina málsgrein með tilliti til þeirrar breytingar sem lögð er til í staflið a.
    

Um 143. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að fella brott tilvísun í númer gildandi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og ákvæðið gert að eyðuákvæði þannig að það vísi til gildandi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins á hverjum tíma.
    

Um 144. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er forstöðumaður Tilraunstöðvar háskólans í meinafræði ráðinn til sex ára í senn en um ráðningu hans fer að öðru leyti eins og segir í háskólalögum um prófessora. Breytingin felst einungis í því að vísa um ráðningu hans til háskólalaga enda er hann jafnframt prófessor við læknadeild Háskólans.
    

Um 145. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar menntamálaráðherra sérfræðinga við Tilraunastöð háskólans í meinafræði, að fengnu áliti dómnefndar, forstöðumanns og stjórnar. Í staflið a er lagt til að forstöðumaður ráði sérfræðinga í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. Til samræmis við það er álitsréttur forstöðumanns við ráðningu sérfræðinga felldur brott í staflið b.
    Breyting á gildandi ákvæði í staflið c felst í því að tímabundnar stöður sérfræðinga verði veittar til tveggja ára í stað þriggja í samræmi við 2. mgr. 41. gr. stmlfrv., sem kveður á um að tímabundin ráðning skuli aldrei vara lengur en í tvö ár.
    

Um 146. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að forstöðumaður ræður starfsfólk stofnunarinnar að fengnum tillögum stjórnar. Samkvæmt gildandi ákvæði ræður stjórn stofnunarinnar starfsfólk. Breytingin er í samræmi við það stefnumið ríkisstjórnarinnar að auka á sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna sbr. 2. mgr. 5. gr. stmlfrv.
    

Um 147. gr.


    10. gr. laga um Háskóla Íslands fjallar um kennara við skólann.
    Um staflið a.
    Skv. 3. mgr. 10. gr. má tengja kennarastöðu tiltekinni stöðu eða starfsaðstöðu við opinbera stofnun utan Háskóla Íslands þegar skólinn hefur ekki tök á koma upp rannsóknaaðstöðu í viðkomandi kennslugrein. Heimilað er að veita slíka stöðu tímabundið til allt að fimm ára í senn. Með því að telja verður að hér sé um tímabundna ráðningu að ræða er í samræmi við 2. mgr. 41. gr. stmlfrv. lagt til að hámark hennar verði bundið við tvö ár.
    Um staflið b.
    Skv. 4. mgr. 10. gr. má skipa dósent eða lektor tímabundinni skipun til allt að fimm ára í senn. Með því að telja verður að hér séu um tímabundna ráðningu að ræða er í samræmi við 2. mgr. 41. gr. stmlfrv. lagt til að hámark hennar verði bundið við tvö ár.
    

Um 148. gr.


    Um staflið a.
    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar forseti prófessora og menntamálaráðherra dósenta og lektora. Í samræmi við 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er annars vegar lagt til að skipun prófessora verði tímabundin í fimm ár í senn. Í samræmi við markmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. um aukið sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna á starfsmannahaldi er hins vegar lagt til að dósentar og lektorar verði ráðnir af rektor. Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. verður ráðning þeirra ótímabundin með gagnkvæmum uppsagnarrétti.
    Um staflið b.
    Gildandi ákvæði veitir heimild til að flytja lektor í dósentsstöðu og dósent í prófessorsembætti samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Með því að ráðning í dósents- og lektorsstörf er færð í hendur rektors háskólans þykir ekki unnt að viðhalda sama framgangskerfi og verið hefur að því er varðar flutning dósents í prófessorsembætti. Stefnir breyting þessi að því að fella það niður.
    Um staflið c.
    Gildandi ákvæði mælir fyrir um að háskólaráð geti lagt til að forstöðumaður háskólastofnunar sé fluttur í prófessorsembætti eftir sömu reglum og gilda um flutning dósents í prófessorsembætti. Af sömu ástæðu og getur í athugasemd við staflið b er felld niður tilvísun í reglur um framgangskerfi dósenta í prófessorsembætti, en háskólaráð getur eftir sem áður gert tillögur í þessu skyni.
    

Um 149. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði miðar að því að fela rektor þær heimildir sem ráðherra hefur haft til að ráða vísindamenn til kennarastarfa við háskólann og leiðir af þeirri breytingu sem lagt er til að gerð verði á 11. gr. laga um Háskóla Íslands og þegar hefur verið gerð grein fyrir.
    

Um 150. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna ráðinn af ráðherra til fjögurra ára í senn að fengnum tillögum sjóðsstjórnar. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr., sbr. 8. tölul. 1. mgr. 22. gr., og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er með breytingum í staflið a og b lagt til að framkvæmdastjórinn verði skipaður til fimm ára í senn.
    Í samræmi við markmið stmlfrv. um aukna ábyrgð og sjálfstæði forstöðumanna ríkisstofnana er í staflið c lagt til að brott falli skylda til að leita eftir heimild ráðuneytis til að ráða starfsfólk og tilvísun til laga nr. 97/1974, sem lagt er til að felld verði úr gildi í 3. tölul. 55. gr. stmlfrv., felld brott en 38. gr. stmlfrv. þykir veita nægilega leiðbeiningu og aðhald í þessum efnum.
    

Um 151. gr.


    Gildandi ákvæði mælir fyrir um að menntamálaráðuneyti skipi rektor Háskólans á Akureyri til fimm ára í senn. Í raun réttri er embættið veitt af ráðherra og þykir rétt að færa hér orðalag ákvæðisins til betri vegar.
    

Um 152. gr.


    Um staflið a.
    Samkvæmt gildandi ákvæði skipar forseti prófessora og menntamálaráðuneytið dósenta, en lektorar eru ráðnir af háskólanefnd og stundakennarar af rektor. Í samræmi við 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. og meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er annars vegar lagt til að skipun prófessora verði tímabundin í fimm ár í senn. Í samræmi við markmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. um aukið sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna á starfsmannahaldi er hins vegar lagt til að dósentar, lektorar og stundakennarar verði ráðnir af rektor. Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. verður ráðning þeirra ótímabundin með gagnkvæmum uppsagnarrétti.
    Um stafliði b til e.
    Með því að kennarar koma að stöðum sínum með mismunandi hætti, sbr. framanritað, er orðalag fært því til samræmis en ákvæðin taka ekki efnislegum breytingum.
    Um staflið f.
    Með framangreindum breytingum á veitingarvaldi embætta prófessora og annarra starfa þykir ekki unnt að viðhalda sama framgangskerfi og verið hefur að því er varðar prófessora.
    

Um 153. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála ráðinn til fimm ára í senn. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að hann komi að stöðu sinni með skipun ráðherra til sama tíma.
    

Um 154. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs Íslands ráðinn af því sjálfu til fimm ára í senn. Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að hann komi að stöðu sinni með skipun ráðherra til sama tíma.
    

Um 155. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að stytta tímabundna skipun landsbókavarðar úr sex árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 156. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er aðstoðarlandsbókavörður ráðinn tímabundinni ráðningu til sex ára í senn. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 41. gr. stmlfrv. er lagt til að hann verði ráðinn ótímabundið með gagnkvæmum uppsagnarrétti enda verður tímabundin ráðning til lengri tíma en tveggja ára almennt óheimil skv. 2. mgr. sömu greinar. Af sömu ástæðu er einnig fellt niður ákvæði um endurráðningu aðstoðarlandsbókavarðar.
    

Um X. kafla.


Um 157. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun flugmálastjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði eru starfsmenn flugmálastjórnar skipaðir og ráðnir af ráðherra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er jafnframt lagt til að þeir verði ráðnir af flugmálastjóra, en ráðherra þó falið að ráða framkvæmdastjóra deilda og sviða að fengnum tillögum flugmálastjóra og flugráðs.
    Loks er lagt til að fellt verði brott úrelt ákvæði um að ráðherra ákveði laun flugmálastjóra og starfsmanna hans þar til þeir hafi verið teknir í launalög.
    

Um 158. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst annars vegar í að tímabinda skipun póst- og símamálastjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. og hins vegar í að fela honum að ráða annað starfslið stofnunarinnar í stað þess að vera skipað af ráðherra.
    

Um 159. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að tímabinda skipun vegamálastjóra í samræmi við 1. mgr. 23. gr. stmlfrv., fela ráðherra að ráða aðstoðarvegamálastjóra og framkvæmdastjóra einstakra sviða, þ.e. tæknisviðs og stjórnsýslusviðs, og vegamálastjóra að ráða aðra starfsmenn í samræmi við 5. gr. stmlfrv.
    

Um 160. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er ferðamálastjóri ráðinn af ráðherra til fjögurra ára í senn. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr., 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. og 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að ferðamálastjóri verði skipaður til fimm til ára í senn.
    

Um XI. kafla.


Um 161. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru bæði forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og sérfræðingar við stofnina skipaðir af ráðherra. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr. stmlfrv., sbr. 1. mgr. 22. gr., er lagt til að sérfræðingarnir og annað starfslið verði ráðið af forstjóra og skipun hans tímabundin í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Þá hefur sjávarútvegsráðuneytið nýverið beitt sér fyrir skipulagsbreytingum innan stofnunarinnar, þ. á m. þeim að aðstoðarforstjóri starfi við hlið forstjóra og sem staðgengill hans. Með hliðsjón af 1. mgr. 5. gr. og 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. þykir rétt að leggja til að hann verði einnig skipaður af ráðherra til fimm ára í senn.
    Loks hefur ráðuneytið kosið skipta starfsemi stofnunarinnar í svið í stað deilda eins og 2. mgr. 55. gr. laga um rannsóknir í þágu atvinnuveganna gerir ráð fyrir að séu grunneiningar rannsóknastofnana atvinnulífsins. Eftir atvikum þykir því rétt að leggja til að tekið verði upp sérstakt ákvæði um að ráðherra ákveði stjórnskipulag þessarar stofnunar í niðurlagi ákvæðsins og jafnframt að ráðherra ráði forstöðumenn sviða eins og 1. mgr. 5. gr. stmlfrv. geymir heimild til. Lagt er til að áhrif stjórnar og forstjóra stofnunarinnar við val þeirra verði tryggð með lögbundinni álitsumleitan.
    

Um 162. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er fiskistofustjóri ráðinn ótímabundið. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr., 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. og 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að hann verði skipaður til fimm ára senn.

Um XII. kafla.


Um 163. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun skipulagsstjóra ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 164. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði ræður Náttúruverndarráð framkvæmdastjóra til að veita skrifstofu þess forstöðu. Í samræmi við 2. mgr. 5. gr., 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. og 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt að hann verði skipaður af ráðherra til fimm ára í senn.
    

Um 165. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er starfslið Veðurstofu Íslands ráðið af ráðherra að fengnum tillögum veðurstofustjóra. Í samræmi við markmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að veðurstofustjóra verði falið að ráða annað starfslið stofnunarinnar.
    

Um 166. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði er starfslið Landmælinga Íslands ráðið af ráðherra að fengnum tillögum forstjóra stofnunarinnar. Í samræmi við markmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að forstjóra verði falið að ráða annað starfslið stofnunarinnar.
    

Um 167. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði samkvæmt staflið a felst einungis í að tímabinda skipun framkvæmdastjóra Hollustuverndar ríkisins í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    Samkvæmt gildandi ákvæði eru forstöðumenn verkefnasviða stofnunarinnar ráðnir af stjórn stofnunarinnar að fenginni umsögn framkvæmdastjóra. Í samræmi við það markmið starfsmannastefnu ríkisstjórnarinnar að auka sjálfstæði og ábyrgð forstöðumanna stofnana sbr. 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er í staflið b lagt til að forstöðumennirnir verði ráðnir af framkvæmdastjóra að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.
    

Um 168. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði eru deildarstjórar og sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar Íslands annaðhvort skipaðir eða fastráðnir af ráðherra. Í samræmi við markmið 2. mgr. 5. gr. stmlfrv. er lagt til að þeir verði ráðnir af forstjóra stofnunarinnar.
    

Um 169. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að tímabinda skipun veiðistjóra í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um XIII. kafla.


Um 170. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst í að skipun í stöður sendiherra og sendifulltrúa í utanríkisþjónustunni, sem svarar til staða ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra í stjórnarráðinu sbr. skilgreiningu 8. gr. laganna, verður tímabundin í fimm ár í senn í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og ráðningarháttu annarra starfsmanna stjórnarráðsins, eins og lagt er til að lögum um Stjórnarráð Íslands verði breytt sbr. 6. gr. frumvarps þessa, er gert ráð fyrir að aðrir starfsmenn, þ. á m. sendiráðunautar og sendiráðsritarar sem svara til deildarstjóra og fulltrúa í stjórnarráðinu, komi að störfum sínum með ótímabundinni ráðningu.

Um 171. gr.


    Í ljósi hinna sérstöku aðstæðna í utanríkisþjónustunni þykir rétt að leggja til að sú sérregla gildi um skipunartíma sendiherra og sendifulltrúa að hann framlengist sjálfkrafa við flutning þeirra milli staða og starfa innan sama flokks um fimm ár.
    

Um XIV. kafla.


Um 172. gr.


    Gildandi ákvæði mælir fyrir um að forstöðumaður bankaeftirlitsins skuli eigi skipaður til lengri tíma en sex ára í senn. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að hámark skipunartíma hans verði bundið við fimm ár.
    

Um 173. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skulu bankastjórar Seðlabankans eigi skipaðir til lengri tíma en sex ára í senn. Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv. er lagt til að hámark skipunartíma þeirra verði bundið við fimm ár.
    

Um 174. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í að stytta tímabundna skipun forstjóra Samkeppnisstofnunar úr sex árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 175. gr.


    Breyting á gildandi ákvæði felst einungis í því að stytta tímabundna skipun forstöðumanns Vátryggingaeftirlitsins úr sex árum í fimm í samræmi við meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um 176. gr.


    Samkvæmt gildandi ákvæði skulu bankastjórar ríkisviðskiptabankanna eigi ráðnir til lengri tíma en sex ára í senn. Í samræmi við stefnumið 2. mgr. 5. gr. og 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. stmlfrv. er lagt til að þeir komi að störfum sínum með tímabundinni skipun og hún bundin við fimm ára hámark, sbr. meginreglu 1. mgr. 23. gr. stmlfrv.
    

Um XV. kafla.


Um 177. gr.


    Gildistaka er hin sama og stmlfrv. og taka ný ákvæði laganna til þeirra sem skipaðir eru eða ráðnir eftir gildistöku þeirra.