Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 512 . mál.


921. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um losun koltvísýrings.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hver var heildarlosun koltvísýrings (CO 2 ) hér á landi árið 1990, hver er hún nú og hver má ætla að hún verði árið 2000, m.a. að teknu tilliti til stóriðjuuppbyggingar?
    Hvernig ætlar ríkisstjórnin að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar um að losun koltvísýrings hérlendis verði ekki meiri árið 2000 en hún var árið 1990?