Ferill 483. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 483 . mál.


1028. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald.

Frá meiri hluta iðnaðarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Þorkel Helgason, ráðuneytisstjóra iðnaðarráðuneytisins, Pál Gunnar Pálsson frá iðnaðaráðuneytinu og Jón Steindór Valdimarsson frá Samtökum iðnaðarins. Auk þess barst erindi frá Ríkisbókhaldi.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til eina breytingu á lögum um iðnaðarmálagjald til viðbótar við efni frumvarpsins og stafar hún af því að ákvæði 2. mgr. 1. gr. laganna er óþarft með hliðsjón af samkeppnislögum.
    Árni R. Árnason var fjarstaddur afgreiðslu málsins.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Við bætist ný grein, er verði 1. gr., svohljóðandi:
    2. mgr. 1. gr. laganna fellur brott.

Alþingi, 21. maí 1996.



Stefán Guðmundsson,

Guðjón Guðmundsson.

Hjálmar Árnason.


form., frsm.



Pétur H. Blöndal.

Sigríður A. Þórðardóttir.