Fjárlög 1997

Laugardaginn 14. desember 1996, kl. 11:23:47 (2219)

1996-12-14 11:23:47# 121. lþ. 44.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., SvanJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur

[11:23]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Undir forustu menntmrh. Sjálfstfl. og fulltrúa þeirra í stjórn LÍN hefur með ýmsum ráðstöfunum verið staðið þannig að málum að staða Lánasjóðs ísl. námsmanna hefur veikst frá ári til árs. Eiginfjárstaðan hefur versnað og veik staða sjóðsins hefur síðan verið notuð gegn námsmönnum. Við svo búið má ekki standa. Lánasjóður ísl. námsmanna er tæki til þess að jafna aðstöðu manna til náms á Íslandi, tryggja jafnrétti. Þess vegna segi ég já.