![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Málefni sjúkrahúsa verða til umræðu og afgreiðslu við 3. umr., svo og 6. greinar liðir almennt. Þar á meðal verður tekið á því máli sem næsta brtt. fjallar um með þeim hætti sem lýst hefur verið í 2. umr. Það er því ósk mín að flm. kalli tillögu sína aftur.