1996-12-21 00:20:14# 121. lþ. 55.8 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., JónK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur

[24:20]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Þar sem heimild til sölu lóða við Vífilsstaðaspítala er inni á 6. gr. og andvirðinu á að verja til barnaspítala tel ég að fyrir þessu máli sé séð þar á viðhlítandi hátt í ljósi þeirrar umræðu og yfirlýsinga sem fram hafa farið. Því mun ég og þingflokkur Framsfl. greiða atkvæði gegn þessari brtt.