Tæknifrjóvgun

Miðvikudaginn 19. mars 1997, kl. 14:29:28 (4650)

1997-03-19 14:29:28# 121. lþ. 93.2 fundur 393. mál: #A tæknifrjóvgun# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur

[14:29]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið þá er mikilvægt að hraða þessu máli og það hefur orðið of mikill dráttur á framkvæmd þess að setja reglugerðir við þau lög sem samþykkt voru hér fyrir meira en ári síðan. En eins og ég sagði í svari mínu áðan þá er keppt að því að afgreiða þessar reglugerðir fyrir miðjan maí og það er unnið kappsamlega að því.