Fundargerð 121. þingi, þingsetningarfundi, boðaður 1996-10-01 09:05, stóð 14:09:50 til 14:47:18 gert 1 16:26
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 1. okt.


Þingsetning.

Árið 1996, þriðjudaginn 1. október, var hundrað tuttugasta og fyrsta löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það nítugasta og níunda aðalþing í röðinni en hundrað þrítugasta og sjötta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Sváfnir Sveinbjarnarson steig í stólinn og lagði út af Mark. 2:14--28.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Arnbjörg Sveinsdóttir, 5. þm. Austurl.
  2. Ágúst Einarsson, 11. þm. Reykn.
  3. Árni R. Árnason, 6. þm. Reykn.
  4. Árni Johnsen, 3. þm. Suðurl.
  5. Árni M. Mathiesen, 2. þm. Reykn.
  6. Ásta R. Jóhannesdóttir, 18. þm. Reykv.
  7. Björn Bjarnason, 3. þm. Reykv.
  8. Bryndís Hlöðversdóttir, 12. þm. Reykv.
  9. Davíð Oddsson, 1. þm. Reykv.
  10. Egill Jónsson, 3. þm. Austurl.
  11. Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.
  12. Einar Oddur Kristjánsson, 3. þm. Vestf.
  13. Finnur Ingólfsson, 7. þm. Reykv.
  14. Friðrik Sophusson, 2. þm. Reykv.
  15. Geir H. Haarde, 4. þm. Reykv.
  16. Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl.
  17. Guðjón Guðmundsson, 4. þm. Vesturl.
  18. Guðmundur Bjarnason, 1. þm. Norðurl. e.
  19. Guðmundur Hallvarðsson, 10. þm. Reykv.
  20. Guðmundur Árni Stefánsson, 9. þm. Reykn.
  21. Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl.
  22. Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv.
  23. Gunnlaugur M. Sigmundsson, 2. þm. Vestf.
  24. Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.
  25. Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e.
  26. Hjálmar Árnason, 7. þm. Reykn.
  27. Hjálmar Jónsson, 2. þm. Norðurl. v.
  28. Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl.
  29. Ingibjörg Pálmadóttir, 1. þm. Vesturl.
  30. Ísólfur Gylfi Pálmason, 4. þm. Suðurl.
  31. Jóhanna Sigurðardóttir, 13. þm. Reykv.
  32. Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv.
  33. Jón Kristjánsson, 2. þm. Austurl.
  34. Kristinn H. Gunnarsson, 5. þm. Vestf.
  35. Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv.
  36. Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn.
  37. Kristján Pálsson, 10. þm. Reykn.
  38. Lára Margrét Ragnarsdóttir, 6. þm. Reykv.
  39. Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl.
  40. Magnús Stefánsson, 3. þm. Vesturl.
  41. Margrét Frímannsdóttir, 5. þm. Suðurl.
  42. Ólafur G. Einarsson, 1. þm. Reykn.
  43. Ólafur Örn Haraldsson, 11. þm. Reykv.
  44. Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v.
  45. Pétur H. Blöndal, 16. þm. Reykv.
  46. Ragnar Arnalds, 4. þm. Norðurl. v.
  47. Rannveig Guðmundsdóttir, 5. þm. Reykn.
  48. Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf.
  49. Sigríður Jóhannesdóttir, 8. þm. Reykn.
  50. Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Reykn.
  51. Siv Friðleifsdóttir, 4. þm. Reykn.
  52. Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv.
  53. Stefán Guðmundsson, 3. þm. Norðurl. v.
  54. Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e.
  55. Sturla Böðvarsson, 2. þm. Vesturl.
  56. Svanfríður Jónasdóttir, 6. þm. Norðurl. e.
  57. Svavar Gestsson, 8. þm. Reykv.
  58. Tómas Ingi Olrich, 5. þm. Norðurl. e.
  59. Valgerður Sverrisdóttir, 3. þm. Norðurl. e.
  60. Vilhjálmur Egilsson, 5. þm. Norðurl. v.
  61. Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl.
  62. Ögmundur Jónasson, 17. þm. Reykv.
  63. Össur Skarphéðinsson, 15. þm. Reykv.


Forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis kom forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls.

[14:14]

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 1. október 1996.

Um leið og ég birti þetta er öllum er setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 17. september 1996.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 1. október 1996.``

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ræddi um hlutverk Alþingis fyrr og nú og óskaði því alls velfarnaðar í vandasömum störfum.

Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Þingmennskuafsal Ólafs Ragnars Grímssonar.

[14:31]

Aldursforseti, Ragnar Arnalds, tilkynnti að hinn 10. júlí hafi Alþingi borist bréf frá Ólafi Ragnari Grímssyni þar sem hann tilkynnti, í samræmi við úrslit forsetakosninga og ákvæði stjórnarskrár, að hann biðjist lausnar sem alþingismaður Reykjaneskjördæmis. Við sæti Ólafs Ragnars Grímssonar tekur 1. varamaður Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi, Sigríður Jóhannesdóttir kennari.


Varamaður tekur þingsæti.

[14:33]

Aldursforseti las eftirfarandi bréf:

,,Þar sem Hjálmar Árnason, 7. þm. Reykn., er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 2. varaþingmaður Framsfl. í Reykn., Unnur Stefánsdóttir leikskólakennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans og forföllum 1. varaþingmanns Framsfl. í Reykn.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Valgerður Sverrisdóttir,

formaður þingflokks Framsóknarflokksins.``

,,Undirrituð hefur verið beðin um að taka sæti á Alþingi Íslendinga við upphaf þings haustið 1996.

Ég biðst velvirðingar á því að vegna anna get ég því miður ekki tekið sæti á Alþingi Íslendinga í byrjun október 1996.

Virðingarfyllst,

Drífa Sigfúsdóttir varaþingmaður.``


Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[14:35]

Hinn nýkjörni forseti gekk til forsetastóls og ávarpaði þingmenn.

Fundi frestað kl. 14:47.

---------------