Ferill 9. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 9 . mál.


9. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum.

Flm.: Margrét Frímannsdóttir.



1. gr.


    Á eftir g-lið 1. mgr. 36. gr. laganna kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Sérfræðiþjónusta barna og unglinga á sviði sálfræði og félagsráðgjafar skv. 37. gr. a.

2. gr.


    Á eftir 37. gr. laganna kemur ný grein, 37. gr. a, svohljóðandi:
    Fyrir sérfræðiþjónustu barna og unglinga, 18 ára og yngri, á sviði sálfræði og félagsráðgjafar sem veitt er utan sjúkrahúsa greiða sjúkratryggingar samkvæmt reglum og gjaldskrá sem ráðherra setur að fengnum tillögum tryggingaráðs. Gjaldskráin gildir bæði um sérfræðiþjónustu sem veitt er af hinu opinbera og öðrum. Í stað gjaldskrár ráðherra er Tryggingastofnun þó heimilt að semja um gjaldskrá er gildi um þjónustuna.
    Sérfræðiþjónusta barna og unglinga utan sjúkrahúsa á sviði sálfræði og félagsráðgjafar er því aðeins greidd að fyrir liggi sérstök umsókn og samþykki sjúkratrygginga.
    Reikningi fyrir sérfræðiþjónustu skal framvísað á reikningsformi sem Tryggingastofnun ákveður.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lögð til sú breyting á löggjöf um almannatryggingar að sérfræðiþjónusta fyrir börn og ungmenni utan sjúkrastofnana og skólakerfisins á sviði sálfræði og félagsráðgjafar verði að hluta greidd úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Hér er einungis átt við viðurkennda sérfræðiþjónustu. Ýmislegt bendir til þess að vaxandi þörf sé fyrir slíka sérfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni. Þessi þjónusta er og á að vera fastur liður í starfsemi skólanna. Börn og ungmenni, sem dvelja á sjúkrastofnunum, geta átt kost á sérfræðiþjónustu án þess að þurfa að greiða fyrir hana. Sérfræðiþjónusta í skólakerfinu hefur öðlast fastari sess á síðustu árum en engu að síður er það staðreynd að fjöldi barna og ungmenna þurfa á sérfræðiþjónustu að halda utan skóla og sjúkrastofnana. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur ítrekað bent á nauðsyn þess að börnum, sem lengi hafa átt við erfiða líkamlega sjúkdóma að stríða, standi til boða sérfræðiþjónusta sem greidd verði að fullu eða að hluta úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Félagið hefur einnig bent á að ekki aðeins barnið eða unglingurinn, sem hefur átt við alvarleg


Prentað upp.
veikindi að stríða, þurfi á sérfræðiþjónustu að halda heldur og ekki síður fjölskylda barnsins. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur ráðið sálfræðing til þess að sinna þessari þjónustu sem margar fjölskyldur krabbameinsveikra barna nýta sér. Félagið hefur þannig reynt að bregðast við vanda sem til staðar er hjá þessum fjölskyldum. Það er hins vegar ljóst að til lengri tíma litið getur félagið ekki staðið alfarið undir þessari þjónustu, enda verður ekki séð að þjóðfélagið geti ýtt þessu verkefni yfir á félagasamtök.
    Það er einnig ljóst að börn og ungmenni, sem hafa mátt þola hvers konar ofbeldi, þurfa oft um langan tíma á þjónustu sérfræðinga að halda sem og þau börn og ungmenni sem hafa leiðst út í neyslu fíkniefna. Fleiri ástæður mætti að sjálfsögðu nefna, þörfin fyrir sérfræðiþjónustu við börn og ungmenni fer stöðugt vaxandi.
    Það er staðreynd að mjög margar fjölskyldur búa við það bágan efnahag að geta ekki mætt þeim kostnaði sem því fylgir að fjölskyldumeðlimur þurfi í lengri eða skemmri tíma að nýta sér þjónustu sálfræðinga og félagsráðgjafa. Við slíkt verður ekki unað, sérstaklega ekki þegar um er að ræða börn eða ungmenni, og því er þetta frumvarp flutt.