Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 68 . mál.
68. Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um fíkniefnaneyslu barna.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
Eru þær upplýsingar réttar, sem fram komu í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 9. október sl., að um 200 börn undir 16 ára aldri séu ofurseld fíkniefnum? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra bregðast við?