Ferill 110. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 110 . mál.
192. Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar og Bryndísar Hlöðversdóttur um vinnueftirlitsgjald.
Innheimt vinnueftirlitsgjald var eftirfarandi (í millj. kr.):
1993
142,7
1994
133,6
1995
130,2
Alls
406,5
Áætlað er að innheimt vinnueftirlitsgjald verði 139,3 millj. kr. á árinu 1996.
Samkvæmt greiðsluuppgjöri A-hluta ríkissjóðs voru greiðslur til Vinnueftirlits ríkisins eftirfarandi (í millj. kr.):
1993
140,1
1994
134,2
1995
141,4
Alls
415,7
Mismunur innheimts vinnueftirlitsgjalds og greiddra framlaga var eftirfarandi (í millj. kr.):
1993
–2,5
1994
0,5
1995
11,2
Alls
9,2
Á árunum 1993–95 hafa greiðslur úr ríkissjóði numið 9,2 millj. kr. umfram innheimt vinnueftirlitsgjald.
Svörin við fyrirspurninni byggjast á upplýsingum frá ríkisbókhaldi.