Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 186 . mál.
207. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um lífeyrisskuldbindingar vegna starfsmanna stjórnmálaflokkanna.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
Hvaða lífeyrisskuldbindingar hvíla á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins vegna starfsmanna stjórnmálaflokkanna, hvers um sig og samtals? Hve margir starfsmenn eiga í hlut hjá hverjum flokki, hver er meðaltalsfjárhæð skuldbindingarinnar og meðalstarfstíminn? Hve mikið af lífeyrisskuldbindingunum verður innheimt hjá stjórnmálaflokkunum?
Skriflegt svar óskast.