Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 188 . mál.


209. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um breytingar á mengunarvarnareglugerð.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvaða ástæður liggja að baki breytingu á 65. gr. mengunarvarnareglugerðar nr. 48/1994, sbr. reglugerð nr. 394/1996?
    Hefur breyting ákvæðisins áhrif á málsmeðferðarreglur um veitingu starfsleyfis á grundvelli ákvæða mengunarvarnareglugerðar, sbr. ákvæði 26. gr. laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988?
    Með hvaða stoð í lögum er reglugerð nr. 394/1996 sett?