Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 270 . mál.


523. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna.

Frá Bryndísi Hlöðversdóttur og Sigríði Jóhannesdóttur.



    Hefur ráðherra formlega slitið starfi nefndar sem fékk það hlutverk að endurskoða lögin um Lánasjóð íslenskra námsmanna? Ef svo er, hvers vegna var það gert?
    Hafði nefndin skilað áliti?
    Hver var efnisleg niðurstaða nefndarinnar og hvaða breytingar lagði hún til að yrðu gerðar á lögum um LÍN?
    Hvenær er að vænta lagafrumvarps um breytingar á lögum um LÍN?