Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 318 . mál.


579. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um almenningssamgöngur á landsbyggðinni.

Frá Jóni Kristjánssyni.



    Hefur samgönguráðuneytið kynnt sér horfur í almenningssamgöngum á landsbyggðinni eftir uppsagnir Pósts og síma hf. og Flugleiða á samningum við sérleyfishafa?
    Mun ráðuneytið beita sér fyrir aðgerðum til þess að tryggja almenningssamgöngur í sessi við þessar nýju aðstæður?