Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 337 . mál.


609. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um skipan nefnda og stöðuveitingar á vegum ráðuneyta.

Frá Guðnýju Guðbjörnsdóttur.



    Hvaða nefndir hafa ráðherrar skipað á þessu kjörtímabili? Hver eru markmið þeirra, hverjir sitja í þeim, hver er formaður og hvenær er ráðgert að hver nefnd skili áliti?
    Hvert er hlutfall kynja:
         
    
    nefndarmanna í hverri nefnd,
         
    
    formanna nefndanna,
         
    
    nefndarmanna í heild?
    Í hvaða stöður hafa ráðherrar skipað eða ráðið á þessu kjörtímabili?
    Hvert er hlutfall kynja:
         
    
    umsækjenda um hverja stöðu,
         
    
    þeirra sem skipaðir voru í stöðurnar?
    Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneytum.


Skriflegt svar óskast.