Ferill 349. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
349
. mál.
622. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um ferliverk á öðrum sjúkrahúsum en Ríkisspítölum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
Hve mörg ferliverk voru unnin á öðrum sjúkrahúsum en Ríkisspítölum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur á árunum 1993–96, sundurliðað eftir árum?
Hvernig skiptast ferliverk á sérfræðigreinar?
Hvert er hámark þeirrar upphæðar sem sjúklingur hefur þurft að greiða
fyrir skurðaðgerð á bæklunardeild,
fyrir augnaðgerð,
fyrir speglun, t.d. maga- eða ristilspeglun?
Svar óskast sundurliðað eftir árunum 1993–96.
Hvað greiða læknar fyrir aðstöðu og þjónustu sem spítali veitir?
Hafa þær greiðslur verið samræmdar?
Skriflegt svar óskast.