Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 372 . mál.


650. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um starfsemi og nám í stýrimannaskólum.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hver var heildarfjöldi nemenda í stýrimanna- og skipstjórnarnámi á árunum 1990 til og með 1996, skipt niður á ár og skóla?
    Hversu margir nemendur hófu réttindanám árin 1990 til og með 1996, skipt niður á ár og skóla?
    Eru fyrirhugaðar breytingar á námi í stýrimannaskólum? Ef svo er, þá hverjar?
    Eru fyrirhugaðar breytingar á rekstri stýrimannaskólanna? Ef svo er, þá hverjar?
    Kemur til greina að flytja allt stýrimanna- og skipstjórnarnám á einn stað utan höfuðborgarsvæðisins?