Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 392 . mál.


686. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um skýrslu um umhverfisáhrif frá álverinu í Straumsvík.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



    Hverjar eru niðurstöður rannsóknar Harðar Kristinssonar grasafræðings í skýrslu sem vitnað var í í morgunútvarpi Rásar 2, mánudaginn 3. mars 1997, um umhverfisáhrif frá álverinu í Straumsvík og væntanlega var unnin árið 1985?
    Á hvern hátt hefur hreinsibúnaður álversins vegna mengunarvarna breyst frá því að rannsóknin var gerð?






























Prentað upp.