Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 433 . mál.


739. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um endurnýjun skipakosts Landhelgisgæslunnar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Hvað líður undirbúningi að endurnýjun skipakosts Landhelgisgæslunnar?
    Er þess að vænta að samið verði um smíði á nýju varðskipi á þessu ári?
    Hefur verið eða verður kannað sérstaklega hvort innlendar skipasmíðastöðvar geti annast smíði á nýjum gæslu- og björgunarskipum fyrir Landhelgisgæsluna?