Ferill 511. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
511
. mál.
858. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skyndiskoðanir Landhelgisgæslunnar.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
Hvað hafa starfsmenn Landhelgisgæslunnar farið um borð í mörg skip á miðunum frá ársbyrjun 1994 til þessa dags?
Hvaða helstu athugasemdir hafa komið fram við þessar skoðanir
um öryggisbúnað,
um lögskráningu,
um athugun á veiðarfærum?
Eru dæmi um að sama skip hafi fengið áminningu eða því verið stefnt í land oftar en einu sinni og ef svo er, hve oft og hve mörg skip?
Hvernig hefur verið tekið á ítrekuðum brotum? Hvað mörg slík mál hafa verið afgreidd og hve mörg eru óafgreidd?