Ferill 530. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 530 . mál.
882. Frumvarp til laga
um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
(Lagt fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996–97.)
I. KAFLI
Skyldutrygging, iðgjald og iðgjaldastofn.
1. gr.
Með lífeyrissjóði er átt við félag eða stofnun sem veitir viðtöku iðgjaldi til greiðslu lífeyris vegna elli, örorku eða andláts samkvæmt nánari ákvæðum í þessum kafla og III. kafla.
2. gr.
Um aðild að lífeyrissjóði fer eftir því sem kveðið er á um í sérlögum, kjarasamningum stéttarfélaga og atvinnurekenda eða ráðningarsamningum og í samþykktum hlutaðeigandi lífeyrissjóðs.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
Lágmarksiðgjald, a.m.k. 10% af iðgjaldastofni, skal renna til lífeyrissjóðs. Það sem er umfram þetta iðgjald, en innan skyldutryggingar, er viðbótariðgjald.
Viðbótariðgjaldi skal ráðstafa samkvæmt ákvörðun viðkomandi launamanns til samtryggingar hjá lífeyrissjóði eða í samræmi við samning um lífeyrissparnað eins og kveðið er á um í II. kafla. Tilkynni launamaður ekki launagreiðanda eða lífeyrissjóði með hæfilegum fyrirvara hvert viðbótariðgjaldið skal renna skal það varðveitt og ávaxtað hjá þeim lífeyrissjóði sem tekur við lágmarksiðgjaldinu.
6. gr.
Iðgjaldagreiðslutímabil skal eigi vera lengra en mánuður og skal gjalddagi eigi vera síðar en 15. næsta mánaðar. Eindagi skal vera eigi síðar en 30 dögum frá því að iðgjöld falla í gjalddaga. Að öðru leyti fer um iðgjaldagreiðslur samkvæmt þeim reglum sem settar eru í samþykktir viðkomandi lífeyrissjóðs eða samkvæmt samningum þeirra aðila sem tilgreindir eru í II. kafla þessara laga.
Launagreiðanda er skylt að halda eftir af launum iðgjaldshluta launþega og standa viðkomandi lífeyrissjóði skil á honum, ásamt iðgjaldshluta sínum. Sams konar skylda hvílir á launagreiðanda að því er varðar innheimtu og skil á viðbótariðgjaldi til aðila sem tilgreindir eru í II. kafla þessara laga.
Launagreiðendum og sjálfstæðum atvinnurekendum ber að tilkynna hlutaðeigandi lífeyrissjóði og aðila skv. II. kafla ef þeim ber ekki lengur að standa skil á iðgjöldum þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra hafa látið af störfum.
II. KAFLI
Samningar um lífeyrissparnað.
7. gr.
Rétthafa, skv. 1. mgr., er óheimilt að framselja, veðsetja eða á annan hátt ráðstafa innstæðu eða réttindum samkvæmt samningi um lífeyrissparnað. Ekki verður gerð aðför í réttindum samkvæmt slíkum samningi og enginn skuldheimtumaður í dánarbúi eða þrotabúi hefur rétt til að skerða réttindin á nokkurn hátt.
8. gr.
9. gr.
10. gr.
11. gr.
Þegar rétthafi er orðinn 60 ára er heimilt að hefja útborgun lífeyrissparnaðar og vaxta með jöfnum árlegum greiðslum á ekki skemmri tíma en 15 árum eða á þeim tíma sem rétthafa vantar upp á 75 ára aldur.
Verði rétthafi öryrki og orkutapið sem hann verður fyrir er 100% á hann rétt á að fá lífeyrissparnað og vexti greidda út með jöfnum árlegum greiðslum á 15 árum. Nú er örorkuprósentan lægri en 100% og lækkar þá árleg útborgun í hlutfalli við lækkun örorkuprósentunnar og úttektartíminn lengist samsvarandi.
Deyi rétthafi áður en innstæða er að fullu greidd út fellur hún til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Hlut barns undir 13 ára aldri ber að skipta með jöfnum greiðslum á þau ár sem vantar á að barnið nái 18 ára aldri. Hafi barn náð 13 ára aldri við andlát rétthafa skal hlutur þess greiddur út á fimm árum. Hlut eftirlifandi maka ber að skipta með jöfnum greiðslum á 15 ár eða á þann tíma sem makann vantar á 75 ára aldur við andlát rétthafa.
Í reglugerð skal kveðið á um styttri útborgunartíma ef um lágar upphæðir er að ræða.
12. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að gera sérstakan samning um mánaðarlega útborgun tiltekinnar krónutölu. Útborgunin skal þá breytast í samræmi við vísitölu neysluverðs. Samningur þessi getur að hluta til eða öllu leyti verið til ákveðins tíma, sbr. skilyrði 11. gr. um lágmarkstíma eða til æviloka rétthafa.
III. KAFLI
Réttindi í lífeyrissjóðum.
13. gr.
Heimilt er að ákveða í samþykktum hvernig iðgjald skiptist á milli einstakra tegunda lífeyris en á grundvelli tryggingafræðilegrar úttektar skv. 24. gr. skal við það miðað að ekki minna en 50% iðgjalds fari til greiðslu ellilífeyris og ekki minna en 20% til greiðslu örorku-, maka- og barnalífeyris.
Réttur til lífeyris samkvæmt lögum þessum reiknast frá þeim tíma sem iðgjald berst lífeyrissjóði. Iðgjöld launþega sem launagreiðandi hefur sannanlega innheimt en ekki staðið lífeyrissjóði skil á, svo og iðgjaldshluti hans, skal þó meta að fullu til réttinda frá eindaga iðgjaldagreiðslu, enda hafi sjóðnum borist vitneskja um iðgjaldagreiðsluskyldu innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits skv. 18. gr. Þó ber lífeyrissjóðurinn ekki ábyrgð á réttindum sjóðfélaga vegna þeirra iðgjalda sem glatast við gjaldþrot og ábyrgðasjóður launa ber ekki ábyrgð á skv. 6. gr. laga nr. 53/1993, um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota.
14. gr.
Ellilífeyrir skal borgaður út mánaðarlega með jöfnum greiðslum til æviloka. Mánaðarlegur lífeyrir skal verðtryggður og breytast til samræmis við breytingu á vísitölu neysluverðs. Nánar skal kveðið á um fjárhæð ellilífeyris, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans í samþykktum.
15. gr.
Örorkulífeyrir skal framreiknaður samkvæmt reglum, sem nánar er kveðið á um í samþykktum, enda hafi sjóðfélagi greitt til lífeyrissjóðs í a.m.k. fjögur ár á undanfarandi fimm árum þar af a.m.k. 6 mánuði á síðasta 12 mánaða tímabili og ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja má til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna.
Eigi sjóðfélagi ekki rétt á framreikningi skal fjárhæð örorkulífeyris miðast við áunnin réttindi.
Heimilt er að ákveða að örorkulífeyrir greiðist ekki fyrstu þrjá mánuði eftir orkutap. Sama gildir ef orkutap hefur varað skemur en sex mánuði.
Í samþykktir lífeyrissjóðs skulu sett frekari ákvæði um örorkulífeyri svo sem um örorkumat, fjárhæð örorkulífeyris, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans.
16. gr.
Makalífeyrir skal aldrei greiddur skemur en í 24 mánuði en hafi makinn barn yngra en 18 ára á framfæri sínu, sem sjóðfélaginn hafði áður á framfæri sínu, eða ef makinn er a.m.k. 50% öryrki og yngri en 67 ára skal makalífeyrir greiddur á meðan það ástand varir.
Maki samkvæmt þessari grein telst sá eða sú sem við andlátið var í hjúskap með sjóðfélaga, staðfestri samvist, sbr. lög nr. 87/1996, eða óvígðri sambúð, enda hafi fjárfélagi ekki verið slitið fyrir andlát sjóðfélagans. Með óvígðri sambúð er átt við sambúð karls og konu sem eiga sameiginlegt lögheimili, eru samvistum, eiga barn saman eða konan er þunguð eða sambúðin hefur varað samfleytt í a.m.k. eitt ár. Réttur til makalífeyris fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný, stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar eða stofnar til staðfestrar samvistar , nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Í samþykktum lífeyrissjóðs skulu sett frekari ákvæði um makalífeyri svo sem um fjárhæð hans, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans.
17. gr.
Í samþykktum lífeyrissjóðs skulu sett frekari ákvæði um barnalífeyri svo sem um fjárhæð hans, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans.
18. gr.
Lífeyrissjóður skal samhliða greiðsluyfirliti eigi sjaldnar en einu sinni á ári senda upplýsingar um áunnin og væntanlegan lífeyrisrétt sjóðfélaga, rekstur og fjárhagsstöðu sjóðsins og breytingar á samþykktum. Sömu upplýsingar skal senda þeim sjóðfélögum sem náð hafa ellilífeyrisaldri.
Heimilt er að kveða á um kerfisbundna skráningu upplýsinga um iðgjöld og lífeyrisréttindi í reglugerð svo og veitingu upplýsinga úr slíkri skrá.
19. gr.
Ekki skal skipta máli hvort menn eiga lífeyrisréttindi í einum eða fleiri lífeyrissjóðum og hvorki skulu menn glata réttindum né öðlast meiri rétt vegna þess að iðgjaldagreiðslur skiptast milli tveggja eða fleiri sjóða.
Heimilt er að flytja iðgjöld og þar með réttindi sem þeim fylgir milli lífeyrissjóða þegar að töku lífeyris kemur í því skyni að auðvelda framkvæmd þessarar greinar.
Heimilt er að endurgreiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara þegar þeir flytjast úr landi enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningi sem Ísland er aðili að. Óheimilt er að takmarka endurgreiðsluna við tiltekinn hluta iðgjaldsins.
Í reglugerð er heimilt að kveða á um útborgun lífeyris í einu lagi ef um lágar upphæðir er að ræða.
IV. KAFLI
Almenn skilyrði lífeyrissjóðsrekstrar.
20. gr.
Starfsemi lífeyrissjóða skal lúta að móttöku, varðveislu og ávöxtun iðgjalda, greiðslu lífeyris og hafa að markmiði sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum á grundvelli áhættudreifingar samkvæmt fyrir fram kunngerðri fjárfestingarstefnu.Lífeyrissjóður skal ekki hafa með höndum aðra starfsemi en þá sem nauðsynleg er til að ná þeim tilgangi er um ræðir í 2. mgr. 1. gr. og 1. mgr. þessarar greinar. Lífeyrissjóði er ekki heimilt að inna af hendi framlög í öðrum tilgangi.
21. gr.
Ekki er heimilt að starfrækja lífeyrissjóð nema hann hafi fullgilt starfsleyfi samkvæmt V. eða XI. kafla.Að jafnaði skulu minnst 800 sjóðfélagar greiða iðgjöld til lífeyrissjóðs reglulega í mánuði hverjum, nema sjóðurinn tryggi áhættudreifingu vegna skuldbindinga sinna með öðrum hætti.
22. gr.
23. gr.
Lífeyrissjóður ábyrgist skuldbindingar sínar með eignum sínum. Iðgjaldagreiðendur bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins með öðru en iðgjöldum sínum.24. gr.
Eigi sjaldnar en þriðja hvert ár skal stjórn lífeyrissjóðs láta fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins í samræmi við 39. gr. og ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur. Í reglugerð skal kveðið á um almennar tryggingafræðilegar forsendur, m.a. um dánaráhættu, þá raunvexti sem athugunin skal byggjast á og þá ávöxtunarkröfu sem nota skal við núvirðingu eigna sjóðsins.
Athugun skv. 1. mgr. skal framkvæmd af tryggingafræðingi eða öðrum þeim, sem hlotið hefur viðurkenningu vátryggingaeftirlitsins til slíks starfs, sbr. 37. gr. laga nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi.
Fyrir 1. júlí ár hvert skal senda bankaeftirliti Seðlabanka Íslands tryggingafræðilega athugun skv. 1. mgr. eða framreiknaða niðurstöðu slíkrar athugunar sem miðuð er við áramótin á undan.
V. KAFLI
Starfsleyfi lífeyrissjóða.
25. gr.
Fjármálaráðherra skal veita lífeyrissjóði starfsleyfi að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:Umsókn um starfsleyfi skal vera skrifleg. Skulu fylgja henni samþykktir sjóðsins ásamt öðrum þeim upplýsingum og gögnum sem ráðherra ákveður. Áður en umsókn um starfsleyfi er afgreidd skal leita umsagnar bankaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Birta skal tilkynningar um starfsleyfi lífeyrissjóða í Lögbirtingablaði.
26. gr.
Ákvörðun um starfsleyfi skal rökstudd og send umsækjanda skriflega eigi síðar en þremur mánuðum eftir að fullbúin umsókn barst ráðherra.Uppfylli lífeyrissjóður, sem sótt er um starfsleyfi fyrir, ekki skilyrði laga þessara skal synja honum um það.
Áður en ákvörðun er tekin um synjun starfsleyfis skv. 2. mgr. skal leita umsagnar bankaeftirlitsins.
27. gr.
Samþykktir lífeyrissjóðs skulu við það miðaðar að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar.Samþykktir lífeyrissjóðs skulu m.a. kveða á um eftirtalin atriði:
28. gr.
Allar breytingar á samþykktum lífeyrissjóðs skal tilkynna fjármálaráðherra og öðlast þær ekki gildi fyrr en ráðherra hefur staðfest að þær fullnægi ákvæðum laga þessara og starfsleyfi sjóðsins. Samtök lífeyrissjóða geta tilkynnt breytingar á samþykktum í umboði aðildarsjóða sinna. Tilkynning um breytingar á samþykktum lífeyrissjóða skulu birtar í Lögbirtingablaði. Jafnframt skal tilkynna bankaeftirliti um breytingar á stjórn, framkvæmdastjóra, endurskoðanda og tryggingafræðingi lífeyrissjóðs.VI. KAFLI
Rekstur og innra eftirlit.
29. gr.
Stjórn lífeyrissjóðs skal tilnefnd af samningsaðilum, sbr. 2. mgr. 2. gr., og skipuð fulltrúum stéttarfélaga og atvinnurekenda að jöfnu. Þó er heimilt að kveða á um annað í samþykktum sjóðsins. Stjórnin ber ábyrgð á starfsemi sjóðsins í samræmi við lög þessi, reglugerðum settum samkvæmt þeim og samþykktum sjóðsins. Stjórn lífeyrissjóðs skal einnig hafa með höndum almennt eftirlit með rekstri, bókhaldi og ráðstöfun eigna sjóðsins. Stjórnin setur sér starfsreglur og gerir tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins á ársfundi.Stjórn lífeyrissjóðs annast m.a. eftirfarandi verkefni:
30. gr.
Ársfund skal boða skriflega með tryggilegum hætti.
Á ársfundi skal gerð grein fyrir skýrslu stjórnar, ársreikningum, tryggingafræðilegum úttektum, fjárfestingarstefnu og tillögum stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins.
31. gr.
Um hæfi stjórnarmanns lífeyrissjóðs til meðferðar máls fer eftir ákvæðum II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Halda skal gerðarbók um það sem gerist á fundum stjórnar. Allir stjórnarmenn, sem mættir eru, skulu undirrita fundargerðina.
32. gr.
Framkvæmdastjóra er óheimilt að taka þátt í atvinnurekstri nema að fengnu leyfi stjórnar. Eignarhlutur í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórn þess.
Um hæfi framkvæmdastjóra fer skv. 1. og 2. mgr. 31. gr.
33. gr.
34. gr.
Við lífeyrissjóð skal endurskoðunardeild eða sjálfstætt starfandi eftirlitsaðili annast innra eftirlit, sbr. 2. tölul. 2. mgr. 29. gr. Innra eftirlit skal vera hluti af skipulagi lífeyrissjóðs og þáttur í eftirlitskerfi hans.Sjálfstætt starfandi eftirlitsaðili getur verið löggiltur endurskoðandi eða sá sem hlotið hefur viðurkenningu bankaeftirlitsins.
Lífeyrissjóði er skylt að tilkynna bankaeftirliti ef skipt er um eftirlitsaðila.
35. gr.
Bankaeftirlit setur nánari reglur um verkefni endurskoðunardeilda og eftirlitsaðila lífeyrissjóða.
VII. KAFLI
Fjárfestingarstefna lífeyrissjóða.
36. gr.
Stjórn lífeyrissjóðs skal móta fjárfestingarstefnu og ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Lífeyrissjóði er heimilt að ávaxta fé sitt með eftirfarandi hætti:Verðbréf samkvæmt 1., 2. og 5.–8. tölul. 1. mgr. skulu hafa skráð kaup- og sölugengi á skipulegum markaði. Með skipulegum markaði er átt við skipulegan verðbréfamarkað innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sem starfar reglulega, er opinn almenningi og viðurkenndur með þeim hætti sem bankaeftirlitið metur gildan. Sé markaðurinn utan ríkja OECD skal bankaeftirlitið hafa viðurkennt hann.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er heimilt að fjárfesta fyrir samtals allt að 10% af hreinni eign sjóðsins í verðbréfum sem falla undir 1., 2., 5. og 8. tölul. 1. mgr. og ekki eru skráð á skipulegum markaði, enda séu verðbréfin gefin út af innlendum aðilum.
Eign lífeyrissjóðs samkvæmt 2., 5., 7. og 8. tölul. hverjum um sig og 6. og 9. tölul. 1. mgr. samanlagt skal ekki vera meiri en 35% af hreinni eign sjóðsins. Þó skal eign skv. 9. tölul. ekki vera meiri en 10% af hreinni eign sjóðsins.
Samanlögð eign sjóðsins í verðbréfum skv. 2.–9. tölul. 1. mgr. útgefnum af sama aðila eða aðilum sem tilheyra sömu samstæðunni skal ekki vera meiri en 10% af hreinni eign sjóðsins. Þessi takmörkun skal vera 5% fyrir verðbréf skv. 8. tölul. Eigi er lífeyrissjóði heimilt að eiga meira en 10% af hlutafé í hverju fyrirtæki né meira en 25% af hlutdeildarskírteinum útgefnum af sama verðbréfasjóði.
Lífeyrissjóður skal takmarka gengisáhættu í heild við 40% af hreinni eign sjóðsins.
Með hreinni eign í 3.–6. mgr. er átt við hreina eign lífeyrissjóðs til greiðslu lífeyris samkvæmt síðasta endurskoðaða ársuppgjöri. Takmarkanir í 3.–6. mgr. skulu halda á hverjum tíma.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu lífeyrissjóðir gæta þess að hafa ætíð yfir að ráða nægjanlegu lausu fé til að geta innt af hendi lífeyrisgreiðslur.
37. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er lífeyrissjóði heimilt án takmarkana að yfirtaka eignir til að tryggja fullnustu kröfu. Eignirnar skulu seldar jafnskjótt og það er talið hagkvæmt og eigi síðar en innan 18 mánaða frá yfirtöku eignanna. Heimilt er þó að draga sölu lengur sé það augljóslega í þágu hagsmuna sjóðsins. Slíkan drátt á sölu eigna skal tilkynna bankaeftirliti sem getur þá krafist sölu þeirra innan viðeigandi frests.
38. gr.
Lífeyrissjóði er óheimilt að veita lán til stjórnarmanna, varamanna þeirra, starfsmanna sjóðsins, endurskoðenda, eftirlitsaðila, þeirra er framkvæma tryggingafræðilega athugun á hag sjóðsins eða maka þessara aðila, nema þeir séu félagar í viðkomandi sjóði og þá eftir þeim reglum sem gilda um lán til sjóðfélaga almennt.
39. gr.
Leiði tryggingafræðileg athugun í ljós að meira en 7,5% munur er á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga skv. 1. mgr. er hlutaðeigandi lífeyrissjóði skylt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins.
Stjórn lífeyrissjóðs er skylt að fá álit tryggingafræðings á áhrifum breytinga á samþykktum lífeyrissjóðs á getu hans til þess að greiða lífeyri. Tryggingafræðingi lífeyrissjóðs er skylt að skýra stjórn sjóðsins þegar í stað frá því ef tryggingafræðileg úttekt leiðir í ljós að sjóðurinn stendur ekki við skuldbindingar sínar. Hann skal skila tillögum til úrbóta til stjórnar og gera bankaeftirliti viðvart.
VIII. KAFLI
Ársreikningur og endurskoðun.
40. gr.
Ársreikningur skal undirritaður af stjórn lífeyrissjóðs og framkvæmdastjóra hans. Hafi stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri mótbárur fram að færa gegn ársreikningi skal hann gera grein fyrir því í áritun sinni.
Ársreikningur skal gefa glögga mynd af fjárhagsstöðu lífeyrissjóðs og breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris. Hann skal gerður í samræmi við lög, reglur og góða reikningsskilavenju.
Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands skal sjá til þess í samráði við reikningsskilaráð að á hverjum tíma liggi fyrir skilgreining á góðri reikningsskilavenju við gerð ársreiknings lífeyrissjóðs.
Bankaeftirlitið setur reglur að höfðu samráði við reikningsskilaráð um uppsetningu ársreiknings, innihald einstakra liða efnahagsreiknings, yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris og fjárstreymisyfirlit og skýringar og mat á einstökum liðum.
41. gr.
Í skýrslu stjórnar skal enn fremur upplýst um eftirfarandi:
Skýrsla stjórnar skal veita upplýsingar um fjölda greiðandi sjóðfélaga á árinu, fjölda virkra sjóðfélaga, þ.e. sjóðfélaga sem að jafnaði greiða iðgjöld til sjóðsins með reglubundnum hætti í mánuði hverjum, fjölda lífeyrisþega, fjölda starfsmanna að meðaltali á reikningsárinu, heildarfjárhæð launa, þóknana eða annarra greiðslna til starfsmanna, stjórnar og annarra í þjónustu sjóðsins.
42. gr.
Endurskoðun hjá lífeyrissjóði skal gerð af löggiltum endurskoðanda.
Endurskoðandi lífeyrissjóðs má ekki sitja í stjórn hans, vera starfsmaður hans eða starfa í þágu hans að öðru en endurskoðun og innra eftirliti, sbr. 35. gr.
Um endurskoðun hjá lífeyrissjóði gilda ákvæði VII. kafla laga nr. 144/1994, um ársreikninga, eftir því sem við á nema annað komi fram í þessum lögum.
Verði endurskoðandi var við verulega ágalla í rekstri lífeyrissjóðs eða atriði er varða innra eftirlit, iðgjaldainnheimtu, greiðslutryggingar útlána, meðferð fjármuna eða önnur atriði sem veikt geta fjárhagsstöðu lífeyrissjóðsins, svo og ef hann hefur ástæðu til að ætla að lög, reglugerðir eða reglur sem gilda um starfsemina hafi verið brotnar, skal hann þegar í stað gera stjórn sjóðsins og bankaeftirliti viðvart. Ákvæði þessarar málsgreinar brjóta ekki í bága við þagnarskyldu endurskoðanda skv. 33. gr. laga þessara eða ákvæði annarra laga.
Bankaeftirlitið skal sjá til þess, í samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og aðra hlutaðeigandi aðila, að á hverjum tíma liggi fyrir skilgreining á góðri endurskoðunarvenju við endurskoðun hjá lífeyrissjóðum. Bankaeftirlitið setur reglur um endurskoðun lífeyrissjóða.
43. gr.
IX. KAFLI
Eftirlit.
44. gr.
Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur eftirlit með að rekstur og fjárhagsstaða lífeyrissjóða sé í samræmi við ákvæði laga þessara, reglugerðir og reglur settar samkvæmt þeim og staðfestar samþykktir lífeyrissjóða. Skal bankaeftirlitið eiga aðgang að öllum gögnum og upplýsingum lífeyrissjóða sem það telur nauðsynlegt vegna eftirlitsins. Um eftirlitið gilda, eftir því sem við getur átt, lög um Seðlabanka Íslands.Bankaeftirlitið getur lagt fyrir stjórn lífeyrissjóðs að láta fara fram tryggingafræðilega athugun á hag sjóðs á öðrum forsendum en gefnar eru í reglubundnum athugunum sjóðsins, telji eftirlitið að hagur sjóðsins gefi tilefni til þess.
Er bankaeftirlitinu berst tilkynning skv. 4. mgr. 42. gr. eða það telur af öðru tilefni ástæðu til að ætla að rekstri lífeyrissjóðs og fjárhagsstöðu sé ábótavant í verulegum atriðum skal það krefja stjórnendur og endurskoðanda þegar í stað um nauðsynleg gögn sem þeim ber að afhenda innan tveggja vikna frá því þeim barst krafan.
Telji bankaeftirlitið að starfsemi lífeyrissjóðs brjóti gegn ákvæðum laga þessara, reglugerðum og reglum settum samkvæmt þeim, staðfestum samþykktum lífeyrissjóða eða sé að öðru leyti óeðlileg, óheilbrigð eða ótraust getur það veitt viðkomandi sjóði hæfilegan frest til úrbóta, nema brot sé alvarlegt.
45. gr.
Kröfur, athugasemdir og fyrirhugaðar aðgerðir bankaeftirlitsins samkvæmt þessum kafla skulu þegar í stað tilkynntar fjármálaráðherra, stjórn lífeyrissjóðs og endurskoðanda.
X. KAFLI
Umsjónaraðili, slit og samruni.
46. gr.
Fullnægi lífeyrissjóður ekki lengur skilyrði laga þessara til þess að öðlast starfsleyfi, sbr. V. kafla, reynist lífeyrissjóður ekki gjaldhæfur að mati bankaeftirlits Seðlabanka Íslands, brjóti hann gegn ákvæðum laga þessara, reglugerða og reglum settra samkvæmt þeim, staðfestum samþykktum lífeyrissjóðs eða sé rekstri hans ábótavant og kröfum bankaeftirlitsins skv. 44. gr. er ekki sinnt er ráðherra heimilt að skipa lífeyrissjóði umsjónaraðila um tiltekinn tíma að fengnum tillögum bankaeftirlits.Stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs skulu víkja frá störfum þann tíma sem umsjónaraðili starfar. Tekur umsjónaraðili við réttindum og skyldum þessara aðila, eftir því sem nánar er kveðið á um í erindisbréfi hans sem ráðherra gefur út. Kostnaður við starf umsjónaraðila greiðist af viðkomandi lífeyrissjóði.
47. gr.
Skipun umsjónaraðila skal rökstudd og tilkynnt hlutaðeigandi lífeyrissjóði skriflega. Jafnframt skal birta tilkynningu um skipunina í Lögbirtingablaði og auglýsa hana í fjölmiðlum.Skylda til greiðslu iðgjalds til hlutaðeigandi lífeyrissjóðs fellur niður frá og með þeim tíma sem tilkynning um skipun umsjónaraðila birtist í Lögbirtingablaði. Ef iðgjaldagreiðslu til sjóðsins er hætt skal tryggingaskyldu fullnægt með aðild að og greiðslu iðgjalds til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda eða annars lífeyrissjóðs sem viðurkenndur er af fjármálaráðherra.
Að tillögu umsjónaraðila getur ráðherra ákveðið slit lífeyrissjóðs. Skal ráðherra þá skipa skilanefnd þriggja manna sem sér um slit á sjóðnum eða flutning á starfsemi hans til annars lífeyrissjóðs. Skilanefnd tekur við öllum heimildum sjóðsstjórnar og falla jafnframt niður heimildir stjórnarinnar frá sama tíma. Skilanefnd skal taka ákvörðun um hvort sjóðnum skuli slitið með sameiningu við annan sjóð eða með öðrum hætti, sbr. 2. og 3. mgr. 49. gr.
48. gr.
Ákvörðun um slit lífeyrissjóðs, hvort heldur er með sameiningu eða öðrum hætti, skal tekin af stjórn hans, nema samþykktir sjóðsins kveði á um annað eða ákvæði 47. gr. eigi við.Ákvörðun um slit lífeyrissjóðs skal þegar í stað tilkynna fjármálaráðuneytinu og bankaeftirlitinu.
Sé gert samkomulag um að sameina lífeyrissjóð algjörlega öðrum sjóði skal gefa út innköllun skv. 2. mgr. 49. gr. og halda eignunum aðgreindum þar til fresturinn er útrunninn og lýstum kröfum fullnægt. Ekki þarf þó að halda eignum aðgreindum ef allir lánardrottnar samþykkja eða þeim er sett fullnægjandi trygging.
Eignir lífeyrissjóðs skulu renna til þess lífeyrissjóðs sem lífeyrissjóðurinn sameinast. Skulu réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega jafnframt metin til réttar í hinum sameinaða sjóði í sama hlutfalli og er milli þeirra eigna sjóðsins er til hins sameinaða sjóðs renna og heildarlífeyrisskuldbindinga sjóðsins metinna í samræmi við ákvæði laga þessara. Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um hvernig lífeyrisréttindi skulu metin í þessu sambandi.
49. gr.
Stjórn sjóðs eða sá aðili sem samkvæmt samþykktum sjóðs hefur ákveðið að honum skuli slitið skal þegar í stað tilnefna þriggja manna skilanefnd er taki við störfum stjórnar og framkvæmdastjóra sjóðsins, enda hafi skilanefnd ekki þegar verið skipuð skv. 3. mgr. 47. gr.Skilanefnd skal láta birta tvisvar í Lögbirtingablaði áskorun til lánardrottna sjóðsins um að lýsa kröfum sínum innan tveggja mánaða frá fyrstu birtingu áskorunarinnar og hefur sömu réttaráhrif og gildir um innköllun krafna við gjaldþrotaskipti.
Eignir lífeyrissjóðs, sem eftir standa þegar skuldir hafa verð greiddar, skulu renna til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Skulu réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega jafnframt metin til réttar í Söfnunarsjóðnum í sama hlutfalli og er milli þeirra eigna sjóðsins er til Söfnunarsjóðsins renna og heildarlífeyrisskuldbindinga sjóðsins metinna í samræmi við ákvæði laga þessara. Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um hvernig lífeyrisréttindi skulu metin í þessu sambandi.
XI. KAFLI
Lífeyrissjóðir sem starfa við gildistöku laga þessara.
50. gr.
51. gr.
52. gr.
53. gr.
Hafi lífeyrissjóður ekki sent umsókn um starfsleyfi ásamt tilskyldum gögnum innan þess tíma sem greinir í 1. mgr. telst sjóðurinn ekki fullnægja ákvæðum laga þessara til þess að öðlast starfsleyfi og fer þá um málefni hans samkvæmt ákvæðum X. kafla.
54. gr.
Lífeyrissjóðir, sem starfandi eru við gildistöku laga þessara, og séreignarsjóðir sem fengið hafa staðfesta reglugerð samkvæmt lögum nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, og hyggjast einvörðungu veita lífeyri vegna áunninna réttinda, skulu tilkynna fjármálaráðuneytinu um þá fyrirætlun innan eins árs frá gildistöku laganna og skal þeim veitt starfsleyfi í því skyni, að fenginni umsögn bankaeftirlits Seðlabanka Íslands. Um greiðslu lífeyris úr séreignarsjóðum skal fara eftir reglugerðum hlutaðeigandi sjóða sem í gildi eru við gildistöku laga þessara. Að öðru leyti skulu ákvæði laga þessara, önnur en ákvæði III. kafla og 21. og 23. gr. gilda um þá sem starfsleyfi hafa samkvæmt þessari grein eftir því sem við getur átt.55. gr.
Séreignarsjóðum, sem hyggjast halda áfram að taka við iðgjöldum eftir gildistöku laga þessara, er heimilt að reka sérstaka deild vegna varðveislu iðgjalda sem greidd voru fyrir og allt að sex mánuðum eftir gildistöku laga þessara. Eigi síðar en sex mánuðum frá gildistöku laganna skulu öll iðgjöld til sjóðsins fara annaðhvort til ávinnslu réttinda samkvæmt samningi um lífeyrissparnað skv. II. kafla eða til ávinnslu réttinda skv. III. kafla þessara laga.
56. gr.
Kjósi sjóðurinn að taka við iðgjöldum frá nýjum sjóðfélögum skulu þeir eiga aðild að sérstakri deild í sjóðnum og skulu samþykktir hennar uppfylla skilyrði laga þessara. Um starfsleyfi fyrir slíka deild skal sótt innan sömu tímamarka og í 1. mgr. greinir.
Í að minnsta kosti eitt ár eftir gildistöku laga þessara skal gefa þeim sem eiga aðild að lífeyrissjóði er þessi grein tekur til kost á aðild að réttindakerfi eða öðrum lífeyrissjóði sem uppfyllir skilyrði laga þessara.
XII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
57. gr.
Brot gegn lögum þessum varða sektum eða fangelsi allt að einu ári, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum hegningarlögum. Sé brot framið í þágu lögaðila er heimilt að beita stjórnendur lögaðilans framangreindum viðurlögum og einnig er heimilt að gera lögaðilanum sekt.58. gr.
Fjármálaráðherra fer með framkvæmd laga þessara og er honum heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þeirra með reglugerð.59. gr.
Kostnaður við birtingu tilkynninga samkvæmt lögum þessum skal greiddur af viðkomandi lífeyrissjóði.60. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í erindisbréfi nefndarinnar kom fram að meginverkefni hennar væri að útfæra það markmið ríkisstjórnarinnar að treysta starfsgrundvöll lífeyrissjóðakerfisins þannig að allir landsmenn nytu sambærilegra lífeyrisréttinda. Sérstök áhersla skyldi lögð á að finna leiðir til að auka valfrelsi í lífeyrissparnaði, innleiða samkeppni milli lífeyrissjóða og tryggja bein áhrif sjóðfélaga á stefnumörkun og stjórn sjóðanna. Jafnframt var nefndinni falið að skilgreina stöðu og hlutverk séreignarsjóða lífeyrisréttinda og að leita leiða til þess að auka þátttöku lífeyrissjóða í atvinnulífinu.
Eftir viðræður við fulltrúa aðila vinnumarkaðarins og umræðu í ríkisstjórn var nefndin leyst frá störfum 26. mars sl. Þó að niðurstaða nefndarstarfsins liggi ekki fyrir er frumvarp þetta að nokkru leyti byggt á því starfi sem fram fór í nefndinni.
Frumvarpið tekur mið af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. apríl 1995. Útfærslan er jafnframt ákveðin málamiðlun enda málefnið búið að vera lengi í deiglunni. Þannig var fjallað nær samfellt um málefni lífeyrissjóða og skyldutryggingu lífeyrisréttinda í stjórnskipaðri nefnd frá 1976 til 1987. Þetta starf skilaði fyrst ýmsum bráðabirgðaúrlausnum, en lauk með tillögu um starfsemi lífeyrissjóða. Í framhaldinu var lagt fram frumvarp um þetta efni á Alþingi sem ekki náði fram að ganga. Síðast var þessu frumvarpi vísað til sérstakrar milliþinganefndar sem starfaði frá 1990 til 1991. Það starf skilaði ekki árangri. Loks voru á vegum fjármálaráðherra samin drög að frumvarpi árið 1994 sem byggði á þessu starfi. Þar var jafnframt tekið tillit til framvindu ýmissa lífeyrismála og breytinga á skilyrðum og viðhorfum til lífeyrissparnaðar sem hafa verið að eiga sér stað á undanförnum árum. Þetta frumvarp tekur óhjákvæmilega mið af þessari vinnu þótt það sé eins og áður segir fyrst og fremst útfærsla á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Inngangur.
Í byrjun mars 1997 voru starfræktir 66 lífeyrissjóðir en af þeim taka 10 sjóðir ekki lengur við iðgjöldum. Samtryggingasjóðir eru alls 54 og starfa 35 án ábyrgðar launagreiðenda og 19 með ábyrgð launagreiðenda. Séreignarsjóðir voru 13. Lífeyrissjóðum hefur fækkað á undanförnum árum og má þar t.d. nefna að í ársbyrjun 1996 sameinuðust sex lífeyrissjóðir og stofnuðu lífeyrissjóðinn Framsýn og í ársbyrjun 1997 voru sameinaðir þrír lífeyrissjóðir og mynduðu þeir lífeyrissjóðinn Lífiðn. Jafnframt var stofnaður nýr séreignarsjóður í byrjun þessa árs og er hann rekinn af verðbréfadeild Búnaðarbanka Íslands.
Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris í árslok 1995 nam 262,6 ma.kr. samanborið við 234,2 ma.kr. í árslok 1994. Aukningin á árinu var 12,1% sem samsvarar 10,3% raunaukningu miðað við neysluverðsvísitölu. Ráðstöfunarfé samkvæmt sjóðstreymi á árinu 1995 nam samtals 46,8 ma.kr. samanborið við 43,9 ma.kr. árið á undan. Raunávöxtun eigna allra lífeyrissjóðanna á árinu 1995 var 6,88% en á árinu 1994 7,07%. Hrein raunávöxtun eigna allra lífeyrissjóðanna á árinu 1995 reyndist vera 6,58% miðað við neysluverðsvísitölu en sambærileg tala á árinu 1994 var 6,75%. Á árinu 1995 námu iðgjöld samtals 17,0 ma.kr. en samsvarandi tala árið 1994 var 15,7 ma.kr. Á árinu 1995 nam gjaldfærður lífeyrir 8,4 ma.kr. en 7,5 ma.kr. árið 1994. Kostnaður á árinu 1995, þ.e. rekstrargjöld að frádregnum rekstrartekjum, nam samtals 691 m.kr. en sambærileg fjárhæð á árinu 1994 var 652 m.kr. Sem hlutfall af eignum, þ.e. meðaltali hreinnar eignar til greiðslu lífeyris, nam kostnaður 0,28% árið 1995 en 0,29% árið 1994 fyrir lífeyrissjóðina í heild. Þess má geta að þetta hlutfall var 0,41% árið 1991, 0,38% árið 1992 og 0,34% árið 1993. Kostnaður sem hlutfall af eignum hefur þannig farið stöðugt lækkandi á þessu tímabili.
Allt fram á þennan áratug hefur framtíð lífeyrissjóðakerfisins verið háð mikilli óvissu. Ekki eru nema 15 ár síðan flest benti til þess að markmið kerfisins og tilætlaður árangur næðist ekki; kerfið mundi sigla í strand og liðast í sundur. Fjárhagsstaða flestra lífeyrissjóða sem starfa án ábyrgðar launagreiðanda hefur hins vegar gjörbreyst á undanförnum árum og telst nú viðunandi. Í stað neikvæðrar raunávöxtunar á fyrstu árum almennu sjóðanna hafa þeir á undanförnum árum náð að ávaxta ráðstöfunarfé sitt langt umfram tryggingafræðilegar forsendur. Sjóðir hafa þar að auki verið sameinaðir og réttindi löguð að eignastöðunni. Nú er svo komið að óhætt er að fullyrða að með samkomulagi aðila vinnumarkaðarins árið 1969 hafi tekist að byggja upp lífeyristryggingakerfi á Íslandi sem jafnast á við það besta í heiminum. Til að undirstrika þetta má geta þess að ýmsar þjóðir eru nú í óða önn að breyta sínum lífeyriskerfum í hátt við það sem Íslendingar búa við.
Samhliða bættri fjárhagsstöðu lífeyrissjóða er almenningur meðvitaðri en áður um þá hagsmuni sem eru í húfi. Frá sjónarhóli einstaklingsins er um að ræða uppsöfnun verðmæta sem vænta má að samsvari skuldlausu íbúðarhúsnæði við starfslok og upphaf töku ellilífeyris. Frá sjónarhóli heildarinnar ætti þessi sparnaður hins vegar að draga úr skattheimtu og kostnaði við almannatryggingakerfið.
Hrein eign lífeyrissjóða til greiðslu lífeyris er nú nálægt 50% af VLF. Frá 1981 hefur hlutur lífeyrissjóða í innlendu fjármagni lánakerfisins aukist úr 22% í 44%. Áætlað er að uppsöfnun fjár haldi áfram hjá lífeyrissjóðunum til ársins 2040 og samsvari þá a.m.k. 150% af VLF.
Lög hafa verið sett um rekstur allra annarra fjármálastofnana en lífeyrissjóða og almenn samstaða er um nauðsyn sambærilegrar löggjafar fyrir lífeyrissjóðina. Margar tilraunir hafa verið gerðar án árangurs. Veigamikil ástæða er sú óvissa sem ríkt hefur um framtíð sjóðanna og sjóðsöfnunarkerfisins almennt, m.a. vegna opinberu lífeyrissjóðanna og annarra „sjóða“ sem hafa að stórum hluta verið reknir sem gegnumstreymissjóðir. Með bættum fjárhag almennu sjóðanna og nýjum lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga hefur þessum hindrunum verið rutt úr vegi.
Helstu atriði frumvarpsins.
Skyldutrygging lífeyrisréttinda.
Gert er ráð fyrir því skylduiðgjaldið verði áfram 10% af launum og heimilt að semja um hærra hlutfall. Lágmarksiðgjald til samtryggingar er skilgreint sem 10% af launum og almennt skylt að ráðstafa því til lífeyrissjóðs. Gert er ráð fyrir að aðild að lífeyrissjóði verði almennt ákveðin í kjarasamningi, sérlögum eða ráðningarsamningi og að sjóðirnir veiti sambærileg réttindi og nú gilda.
Samhliða því sem öllum er gert að eiga aðild að samtryggingarsjóði er einstaklingum tryggður réttur til að ráðstafa iðgjaldinu umfram lágmarksiðgjald til séreignar hjá annarri fjármálastofnun en þeim lífeyrissjóði sem þeir eiga aðild að.
Samningar um lífeyrissparnað.
Réttindi í lífeyrissjóðum.
Skilyrði lífeyrissjóðsrekstrar og starfsleyfi.
Í V. kafla frumvarpsins er lagt til að lífeyrissjóðir þurfi sérstakt starfsleyfi, en nú starfa þeir eingöngu á grundvelli reglugerða sem fjármálaráðherra staðfestir.
Rekstur og innra eftirlit.
Eignir og skuldbindingar standist á.
Fjárreiður og eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða.
Hvað varðar gerð ársreikninga og endurskoðun og eftirlit, byggir frumvarpstextinn að meginefni til á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga, og gildandi lögum um fjármálastofnanir.
Gert er ráð fyrir að eftirlitið verði í höndum bankaeftirlits Seðlabanka Íslands. Með hliðsjón af allítarlegum kröfum frumvarpsins um fjárhagslega stöðu sjóðanna og skýlausum ákvæðum um tryggingafræðilegar úttektir þykir rétt að bankaeftirlitið, sem þegar hefur nokkra reynslu í þessum efnum, hafi eftirlit með því að sjóðirnir starfi í samræmi við ákvæði laganna og uppfylli þær kvaðir sem á þá eru lagðar. Sé þörf á sérstökum ráðstöfunum í þeim tilgangi að tryggja réttindi sjóðfélaga skal bankaeftirlitið gera því stjórnvaldi sem fer með málefni sjóðanna viðvart og það grípa til ráðstafana í samræmi við ákvæði laganna.
Núgildandi löggjöf um lífeyrissjóði.
Lög nr. 55/1980, um starfskjör launþega og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Í þessum lögum er kveðið á um skylduaðild að lífeyrissjóðum, lágmarksiðgjald og endurgreiðslu iðgjalda.
Lög nr. 91/1980, um skráningu lífeyrisréttinda. Í lögunum er kveðið á um að færa skuli í eina heildarskrá lífeyrisréttindi allra landsmanna. Skráningin skal byggð á upplýsingum lífeyrissjóða en lögunum er ætlað að tryggja almenningi aðgang að upplýsingum um lífeyrisaðild.
Lög nr. 27/1991, um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða. Í lögunum er kveðið á um skyldu lífeyrissjóða til þess að senda bankaeftirlitinu ársreikninga sína. Jafnframt er bankaeftirlitinu veitt heimild til þess að krefja stjórnendur lífeyrissjóða um nauðsynleg gögn ef rekstri og fjárhagsstöðu lífeyrissjóðs er ábótavant í verulegum atriðum og getur eftirlitið krafist þess að gerðar séu úrbætur á rekstrinum og fjárhagsstöðunni. Á grundvelli laganna hafa verið settar reglur um gerð ársreiknings lífeyrissjóðs og um framkvæmd endurskoðunar hjá lífeyrissjóðum.
Eftirtalin lög gilda um einstaka lífeyrissjóði, með síðari breytingum:
Lög nr. 46/1965, um eftirlaun alþingismanna.
Lög nr. 47/1965, um eftirlaun ráðherra.
Lög nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.
Lög nr. 50/1984, um Lífeyrissjóð bænda.
Lög nr. 94/1994, um Lífeyrissjóð sjómanna.
Lög nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Lög nr. 2/1997, um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga.
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda hefur þá sérstöðu að hann tekur ekki til ákveðinna starfsstétta eða starfshópa heldur er honum ætlað að vera lífeyrissjóður þeirra sem ekki eiga vísa aðild að öðrum sjóðum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um I. kafla.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Í 2. mgr. segir að aðild að lífeyrissjóði fari eftir því sem kveðið er á um í sérlögum, kjarasamningum milli atvinnurekenda og stéttarfélaga eða ráðningarsamningum. Með kjarasamningi aðila vinnumarkaðarins frá 19. maí 1969 var almennri skylduaðild launamanna að tilteknum lífeyrissjóðum komið á. Aðildarskylda að einstökum sjóðum hefur þannig byggst á kjarasamningum að hluta til þótt hún hafi orðið víðtækari þegar lög nr. 55/1980 tóku gildi. Þau lög hafa verið skýrð með hliðsjón af samningnum frá 1969, en skv. 2. gr. laganna getur sjálfstæðum atvinnurekanda eða þeim sem stundar atvinnurekstur verið skylt að vera í lífeyrissjóði sinnar starfsstéttar, sbr. hæstaréttardóm frá 26. september 1996 í máli Trésmiðjunnar K–14 hf. gegn Sameinaða lífeyrissjóðnum. Hér er því lagt til að heimild til þess að velja sér lífeyrissjóð verði gerð víðtækari þegar menn tilheyra starfsgreinasviði en eru utan kjarasamninga. Atvinnurekendur og stéttarfélög geta þó eftir sem áður í kjarasamningum kveðið á um skyldu hlutaðeigandi félagsmanna til að greiða í tiltekna sjóði. Þá er lagt til að aðild að lífeyrissjóði geti byggst á ráðningarsamningi milli launþega og atvinnurekanda hans enda sé það ekki í andstöðu við ákvæði sérlaga eða kjarasamninga. Aðild að lífeyrissjóði samkvæmt ráðningarsamningi mundi þannig víkja fyrir aðild samkvæmt sérlögum eða kjarasamningi hafi stéttarfélag starfsmannsins gert kjarasamning um aðildina við atvinnurekandann eða félag hans. Sé ekki kveðið á um aðildina í sérlögum eða kjarasamningi getur vinnuveitandi gert þá kröfu í ráðningarsamningi að starfsmaður hans greiði í tiltekinn lífeyrissjóð. Til aðildar að Samvinnulífeyrissjóðnum gæti t.d. verið stofnað á þessum grundvelli. Sveitarfélagi sem rekur lífeyrissjóð og ætlar að gera svo áfram, sbr. 56. gr., er jafnframt með ákvæðinu tryggð ótvíræð heimild til að gera starfsmönnum sínum að greiða til lífeyrissjóðs sveitarfélagsins. Þetta er þó háð því að sveitarfélagið hafi ekki samið svo um að starfsmennirnir eða tilteknir hópar þeirra greiði í aðra sjóði eða slíkt ákveðið í lögum, sbr. aðild hjúkrunarfræðinga og kennara að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Ákvæði þessarar málsgreinar um að nánar skuli kveðið á um aðild í samþykktum hlutaðeigandi lífeyrissjóðs ber ekki að skilja svo að í samþykktum sé hægt að leggja á einstaklinga skyldu til þess að vera í tilteknum lífeyrissjóði ef ekki er kveðið á um slíkt í sérlögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi, heldur er eingöngu átt við að í samþykktunum verði fjallað nánar um réttinn til þess að vera í tilteknum sjóði. Sé ekki kveðið á um aðildina í kjarasamningi, sérlögum eða ráðningarsamningi gæti einstaklingurinn því valið sér lífeyrissjóð.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Það skal tekið fram að viðmiðun við gjaldstofn tryggingagjalds hefur í för með sér að þegar iðgjaldastofn er reiknað endurgjald vegna starfa við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi getur iðgjaldastofninn aldrei orðið lægri en segir í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sbr. 36. gr. laga nr. 122/1993. Um er að ræða lágmarkstryggingu jafnvel þótt tekjur samkvæmt ársuppgjöri kunni að reynast lægri í einhverjum tilvikum.
Verði gerð breyting á gjaldstofni tryggingagjalds getur orðið nauðsynlegt að endurskoða þetta ákvæði.
Um 5. gr.
Gert er ráð fyrir að menn geti í sérlögum ákveðið hærra lágmarksiðgjald en 10%, sbr. t.d. lög nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Þá er gert ráð fyrir að í kjarasamningi eða með öðrum sambærilegum hætti geti menn samið um hærra lágmarksiðgjald sem renni til samtryggingar í lífeyrissjóði. Þannig má geta þess, svo dæmi sé tekið, að flugmenn og viðsemjendur þeirra hafa samið um 20% iðgjald til Eftirlaunasjóðs FÍA. Menn verða hins vegar ekki með samþykktum lífeyrissjóðs einum saman skyldaðir til að greiða hærra iðgjald til sjóðsins en sem nemur 10% af iðgjaldastofni.
Í 2. mgr. er kveðið á um það að lágmarksiðgjald skuli renna til lífeyrissjóðs. Það sem er umfram lágmarksiðgjaldið er viðbótariðgjald en um það er fjallað í 3. mgr.
Í 3. mgr. er fjallað nánar um viðbótariðgjaldið og gert ráð fyrir að einstaklingar ráðstafi þeim hluta iðgjaldsins sem er umfram lágmarksiðgjald á þann hátt að greiða hann til lífeyrissjóðs eða með gerð samnings um lífeyrissparnað. Loks er lagt til í 3. mgr. að ákveði launamaður ekki innan hæfilegs frests hvert þetta viðbótariðgjald eigi að renna skuli það fara til þess lífeyrissjóðs sem tekur við lágmarksiðgjaldinu. Er þetta talið nauðsynlegt til að koma í veg fyrir óvissu og til að tryggja að viðbótariðgjaldið verði greitt enda er það hluti af skyldutryggingunni.
Um 6. gr.
Í 2. mgr. eru settar reglur um lengd iðgjaldagreiðslutímabils og eindaga iðgjalda en þetta eru lágmarkskröfur.
Í 3. mgr. er að finna sérreglu um skyldu launagreiðanda til þess að halda iðgjaldshluta launþegans eftir og standa skil á honum ásamt eigin iðgjaldshluta. Sjálfstætt starfandi atvinnurekendur verða sjálfir að skila sínu iðgjaldi til lífeyrissjóðs og aðila skv. 8. gr. í samræmi við ákvæði 1. og 2. mgr.
Loks er í 4. mgr. lagt til að launagreiðendur og sjálfstætt starfandi atvinnurekendur tilkynni viðkomandi lífeyrissjóði og aðilum skv. 8. gr., ef þeim ber ekki lengur að standa skil á iðgjöldum.
Um II. kafla.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Um 10. gr.
Um 11. gr.
Í 2.–4. mgr. er fjallað um hvenær hægt er að fá inneignina greidda út og á hvað löngum tíma. Sparnaði þessum er ætlað svipað hlutverk og elli-, örorku- og fjölskyldulífeyri úr lífeyrissjóðum, sbr. III. kafla.
Í fyrsta lagi getur rétthafi byrjað að fá greiðslur þegar hann hefur náð 60 ára aldri og er þá greiðslutíminn 15 ár að lágmarki. Ákveði hann hins vegar að byrja seinna að taka út innstæðstæðuna styttist lágmarkstíminn sem því nemur. Sá sem t.d. byrjar 65 ára getur tekið innstæðuna út á 10 árum. Í öðru lagi getur hann tekið innstæðuna út ef hann verður öryrki og þá í réttu hlutfalli við örorkuna. Þannig gæti t.d. 40% öryrki, sem ekki hefur náð ellilífeyrisaldri, tekið út árlega 40% af þeirri innstæðu sem hann ella á rétt á að taka út árlega frá og með 60 ára aldri. Útborgunin getur átt sér stað á mislöngum tíma allt eftir því hve mikil örorkan er og hvað öryrkjann vantar mörg ár til að ná 60 ára aldri. Loks er í 3. mgr. fjallað um greiðslu til maka, barna og annarra erfingja. Lagt er til að greiðsla til maka og barna, þ.e. skylduerfingja, dreifist á ákveðið tímabil en greiðsla til annarra erfingja, ef um þá er að ræða, verði greidd út í einu lagi.
Um 12. gr.
Um III. kafla.
Um 13. gr.
Í 2. mgr. er lagt til að sjóðir geti ákveðið fyrir fram hvernig iðgjaldið skiptist á milli elli-, örorku-, maka- og barnalífeyris og geti þar af leiðandi ákveðið deildaskiptingu eftir tegundum lífeyris. Nokkrir sjóðir hafa tekið upp deildaskiptingu. Nauðsynlegt þykir, óháð deildaskiptingu, að setja lágmörk til viðmiðunar á það hve stór hluti iðgjalds fer í einstakar tegundir lífeyris til þess að tryggja eðlilega skiptingu á milli ellilífeyris annars vegar og örorku-, maka- og barnalífeyris hins vegar.
Í 3. mgr. er leitast við að skilgreina hvenær lífeyrisréttur stofnast. Lagt er til að meginreglan verði sú að réttur til lífeyris reiknist frá þeim tíma sem iðgjald er greitt til lífeyrissjóðs. Í flestum tilvikum eru iðgjöld greidd til lífeyrissjóða reglulega og engin vandkvæði fyrir hendi að þessu leyti. Hins vegar er nauðsynlegt að tekin séu af tvímæli um þetta þegar um vangoldin iðgjöld er að ræða. Hér er lagt til að gagnvart þeim sem bera sjálfir ábyrgð á greiðslum eigin iðgjalda gildi meginreglan um reikning réttinda frá þeim tíma er greiðslan fer fram. Með hliðsjón af samningsákvæðum, svo og tillögu þessa frumvarps um skyldu launagreiðanda til að halda eftir iðgjaldshluta launþega og að standa lífeyrissjóði skil á honum ásamt iðgjaldshluta sínum, þykir eðlilegt að rýmri regla gildi um það frá hvaða tíma lífeyrisréttur launþega stofnast. Hér er lagt til að sé um vangoldin iðgjöld vegna launþega að ræða reiknist lífeyrisréttur frá eindaga viðkomandi greiðslu, enda hafi lífeyrissjóði borist vitneskja um að greiðsluna hefði átt að inna af hendi innan 60 daga frá dagsetningu þess yfirlits sem skylt er að senda sjóðfélögum. Þessi tímamörk eru jafnframt í samræmi við III. kafla laga nr. 53/1993, um ábyrgðasjóð launa. Þessi rýmri regla gildir þó ekki um þá launþega sem falla undir 6. gr. laganna um ábyrgðasjóð launa, en það eru t.d. stjórnarmenn í gjaldþrota félögum, forstjóri og framkvæmdastjóri gjaldþrota félaga svo og makar og skyldmenni í beinan legg. Ábyrgðasjóðurinn ber ekki ábyrgð á kröfum þessara aðila og því þykir ekki eðlilegt að láta lífeyrissjóði veita réttindi á grundvelli iðgjalda sem tapast hafa við gjaldþrot.
Um 14. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um það að ellilífeyrir skuli greiddur út mánaðarlega með jöfnum greiðslum. Með því er átt við að greiðslur geti ekki verið háar í tiltekinn árafjölda og síðan lækkað eftir það. Ákvæðið kemur hins vegar ekki í veg fyrir að greiðslur hækki eða skerðist vegna vísitölutengingar eða niðurstöðu tryggingafræðilegrar úttektar á stöðu sjóðsins, sbr. 24. gr.
Um 15. gr.
Um 16. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um þann lágmarkstíma sem makalífeyrir skal greiddur. Þessi tími getur stystur verið 24 mánuðir, en ef makinn er með börn á framfæri eða er öryrki ber að greiða makalífeyri til þess tíma er börnin ná 18 ára aldri, eða á meðan örorkan varir, en þó ekki lengur en til 67 ára aldurs. Ekki skiptir máli fyrir rétt makans til aukins makalífeyris hvort hinn látni hefur verið kynforeldri barnsins, kjörforeldri eða fósturforeldri heldur eingöngu hvort barnið hefur verið á framfæri hins látna við andlátið. Í 3. mgr. er hugtakið maki skilgreint en í 4. mgr. er kveðið á um að frekari reglur um makalífeyri skuli settar í samþykktir lífeyrissjóða.
Um 17. gr.
Um 18. gr.
Í 2. mgr. er lagt til að lífeyrissjóðum verði skylt að senda sjóðfélögum sínum yfirlit um iðgjaldagreiðslur eigi sjaldnar en á hálfs árs fresti. Þetta er gert í því skyni að sjóðfélagar geti sjálfir haft eftirlit með því að iðgjöld vegna þeirra komist til skila. Sjóðfélaginn yrði að gera athugasemdir ef yfirlitið sýndi að iðgjöld væru í vanskilum að öðrum kosti gæti hann tapað réttindum.
Um 19. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um réttarstöðu þeirra sem eiga lífeyrisréttindi í fleiri sjóðum en einum en þess má geta að milli fjölmargra lífeyrissjóða eru nú í gildi samningar sem tryggja sjóðfélögum, er greitt hafa iðgjöld til fleiri en eins sjóðs, sömu réttindi og þeir hefðu haft með greiðslu til eins og sama sjóðs allan iðgjaldsgreiðslutíma sinn. Eru þá að jafnaði fastar reglur um flutning réttinda milli sjóða í tilteknum tilvikum.
Í 3. mgr. er kveðið á um heimild til þess að flytja réttindi milli sjóða í því skyni að tryggja þau réttindi sem greinin kveður á um. Flutningur iðgjalda, og þar með réttinda milli sjóða, í öðrum tilvikum yrði óheimill, sbr. þó hér síðar. Gert er ráð fyrir að í reglugerð yrðu sett nánari ákvæði um flutninginn en eins og áður sagði eru ákvæði um þetta efni nú í samningum milli sjóða. Jafnframt er kveðið á um heimild til handa lífeyrissjóðum til að endurgreiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara í samræmi við samþykktir sjóðanna. Eðli málsins samkvæmt mætti endurgreiða iðgjöld sem greidd eru vegna mistaka, svo sem vegna manna sem orðnir eru 70 ára, og flytja réttindi frá einum sjóði til annars ef greitt hefur verið í rangan sjóð.
Um 20. gr.
Í 1. mgr. er kveðið á um það til hvers starfsemi lífeyrissjóða tekur en í 2. mgr. er áskilið að lífeyrissjóður megi ekki hafa aðra starfsemi með höndum en þá sem nauðsynleg er til að ná tilgangi 2. mgr. 1. gr. og 1. mgr. Jafnframt er kveðið á um að sjóði sé ekki heimilt að inna af hendi framlög í öðrum tilgangi, svo sem til líknar- eða íþróttafélaga. Þetta aðhaldsákvæði þykir nauðsynlegt með hliðsjón af þeim markmiðum sem lífeyrissjóður á að keppa að, þ.e. að greiða sem hæstan lífeyri á hverjum tíma.Um 21. gr.
Í þessari grein er í 1. mgr. kveðið á um að heimild til lífeyrissjóðsrekstrar sé bundin því skilyrði að lífeyrissjóðurinn hafi fengið starfsleyfi. Um umsóknir um starfsleyfi og veitingu þeirra er fjallað í V. kafla, en í XI. kafla er fjallað sérstaklega um veitingu leyfa til þeirra sjóða sem starfandi eru við gildistökuna.
Í 2. mgr. er kveðið á um lágmarksstærð lífeyrissjóða. Lagt er til að sjóður verði ekki starfræktur ef fjöldi sjóðfélaga, sem greiða iðgjald til hans reglulega í mánuði hverjum, nær ekki tilteknu lágmarki, þ.e. 800. Fari félagatalan niður fyrir þá tölu um lengri tíma yrði að taka til athugunar hvort svipta ætti sjóðinn starfsleyfi. Lífeyrissjóðir geta þó tryggt áhættudreifingu vegna skuldbindinga sinna með öðrum hætti, t.d. með kaupum á tryggingu og ef það er gert er ekki nauðsynlegt að 800 félaga markinu sé náð. Jafnframt gætu sjóðir, sem ættu á hættu að missa starfsleyfi vegna of fárra sjóðfélaga, varist því með kaupum á tryggingum.
Ákvæði 2. mgr. hefur tvennan tilgang, að stuðla að því að rekstrarkostnaður lífeyrissjóða í hlutfalli við iðgjaldstekjur þeirra verði sem lægstur og að tryggja meiri áhættudreifingu en er í litlum sjóðum.
Hvað fyrra atriðið snertir er ljóst, m.a. af tölum úr bókhaldi lífeyrissjóða, að rekstrarkostnaður sem hlutfall af tekjum er yfirleitt þeim mun lægri sem sjóðir eru stærri. Þetta er skiljanlegt þegar til þess er litið að sjóðirnir hafa talsverðan fastan kostnað af starfsemi sinni óháð stærð auk þess sem ýmis breytilegur kostnaður á hvern sjóðfélaga lækkar eftir því sem þeir eru fleiri. Lögmál stærðarhagkvæmni á því vel við um starfsemi af þessu tagi. Loks má nefna það sem augljóst er, að markmiðið með starfsemi lífeyrissjóða er að greiða lífeyri og sjóðir geta greitt því meiri lífeyri til sjóðfélaga sem rekstrarkostnaðurinn er minni.
Áhættudreifing í mörgum íslenskum lífeyrissjóðum er alls ófullnægjandi. Í þessu sambandi er gagnlegt að greina ferns konar dæmi um áhættu sem dregið er úr með stækkun lífeyrissjóða.
Í fyrsta lagi er áhætta sem tekin er með loforðum um greiðslu örorkulífeyris, barnalífeyris og jafnvel makalífeyris. Þeim mun smærri sem sjóðir eru þeim mun meiri áhætta er tekin í að ganga þurfi mjög á eignir sjóðs ef til stórslysa kemur eða mikilla áfalla. Hættan er þá sú að sjóður geti ekki staðið við skuldbindingar sínar, bæði í bráð og lengd.
Í öðru lagi er nú algengt að sjóðir séu bundnir við ákveðin byggðarlög og séu mjög fámennir. Tímabundnir erfiðleikar í byggðarlaginu gætu reynst lífeyrissjóði þungbærir og varanlegir erfiðleikar riðið honum að fullu.
Í þriðja lagi gildir hið sama um þá sjóði sem eru bundnir við fámennar starfsstéttir. Í slíkum sjóðum felst enn fremur sú áhætta að örorkulífeyrislíkur reynist meiri hjá einni tiltekinni starfsstétt en gera má ráð fyrir að meðaltali hjá mörgum starfsstéttum.
Í fjórða lagi má loks nefna að í litlum sjóðum er tekin mun meiri áhætta í að aldursdreifing sé óhagstæð en í stórum sjóðum. Sé aldursdreifing óhagstæð eða breytist til hins verra getur það hæglega rýrt gjaldþol sjóða, þ.e. möguleika þeirra á að greiða ellilífeyri í framtíðinni.
Um 22. gr.
Hér er kveðið á um það að lífeyrissjóðum sé skylt og einum heimilt að nota orðið lífeyrissjóður í heiti sínu. Sambærilegt ákvæði er í lögum um ýmsar fjármálastofnanir, svo sem í lögum um viðskiptabanka og sparisjóði og í lögum um verðbréfasjóði. Ákvæðinu er ætlað að koma í veg fyrir misskilning og einnig að aðilar, sem ekki uppfylla skilyrði frumvarpsins til, að stunda starfsemi sem það tekur til villi á sér heimildir. Í greininni er þó gerð sú undantekning að lífeyrissjóðum, sem starfandi eru við gildistöku laganna, er heimilað að halda heiti sínu óbreyttu svo framarlega sem það er ekki bannað í öðrum lögum.
Um 23. gr.
Í þessari grein er gert ráð fyrir að almenna reglan verði sú að lífeyrissjóðir ábyrgist skuldbindingar sínar með eigum sínum og að aðrir, þar á meðal atvinnurekendur beri ekki ábyrgð á skuldbindingunum. Ljóst er að lífeyrissjóðir sem við gildistöku laganna eru starfræktir með ábyrgð atvinnurekenda, svo sem lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins og sveitarfélaga, verða að fá undanþágu frá þessari reglu, sbr. XI. kafla.
Um 24. gr.
Hér er kveðið á um skyldu til þess að láta fara fram tryggingafræðilega úttekt á lífeyrissjóðum með ákveðnu árabili en í samþykktum flestra lífeyrissjóða eru nú þegar ákvæði um gerð slíkra úttekta. Athuguninni er ætlað að taka bæði til tryggingafræðilegra og fjárhagslegra forsendna.
Í greininni er lagt til að sett verði óundanþægt ákvæði um að slík athugun eigi sér stað á þriggja ára fresti og jafnframt er lagt til að þau ár sem úttekt er ekki gerð verði niðurstöður síðustu úttektar framreiknaðar. Til skamms tíma hafa slíkar athuganir verið mjög tímafrekar auk þess sem skortur hefur verið á sérmenntuðu fólki á þessu sviði. Með tilkomu tölvubókhalds og þróun tölvukerfa til úttekta á stöðu sjóðanna, sem þegar er talsverð reynsla af, þykir eðlilegt að gera ráð fyrir reglubundnum tryggingafræðilegum athugunum á þriggja ára fresti en að þess á milli verði niðurstöður síðustu athugunar framreiknaðar. Í 44. gr. er síðan gert ráð fyrir því að eftirlitsaðili geti krafist þess að tryggingafræðileg úttekt fari fram ef sérstök ástæða þykir til.
Um V. kafla.
Í V. kafla er fjallað um starfsleyfi lífeyrissjóða. Efnið í þennan kafla er einkum sótt í lög nr. 10/1993, um verðbréfasjóði, og lög nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti. Talin eru upp helstu skilyrði starfsleyfis en síðan er fjallað um það hvernig fara skuli með synjun starfsleyfis. Þessi ákvæði eru sambærileg við ákvæði laga um verðbréfasjóði. Þá er fjallað um samþykktir sjóðanna og efni þeirra. Loks er gert ráð fyrir að allar breytingar á samþykktum þurfi að staðfesta með svipuðum hætti og verið hefur.
Um 25. gr.
Í greininni er lagt til að lífeyrissjóðum verði skylt að sækja um starfsleyfi en hingað til hafa þeir starfað á grundvelli laga eða staðfestra reglugerða. Til þess að fá starfsleyfi verða þeir að fullnægja ákvæðum laganna og ber að synja um starfsleyfi ef svo er ekki, sbr. 26. gr.
Í 1. mgr. eru helstu skilyrði starfsleyfis talin upp. Með 2. mgr. eru settar þær formkröfur að umsókn um starfsleyfi skuli vera skrifleg enda þótt gera megi ráð fyrir að svo verði almennt. Samþykktum sjóðsins verður að fylgja umsókn en að öðru leyti er fjármálaráðherra veitt heimild til þess að ákveða hverjar aðrar upplýsingar skuli lagðar fram með umsókn. Eðli málsins samkvæmt skulu kröfur um upplýsingar vera almennar og gilda fyrir alla umsækjendur. Þá er einnig gert ráð fyrir að leitað sé álits bankaeftirlits áður en leyfi er veitt.
Um 26. gr.
Í greininni er fjallað um þær formreglur sem gilda um veitingu og synjun starfsleyfis. Ákvörðun um starfsleyfi skal vera skrifleg og rökstudd. Þar sem hér er um veigamikla ákvörðun að ræða sem almennt varðar umsækjanda miklu þykir eðlilegt að ákvörðunin sé rökstudd. Enn fremur er kveðið á um sérstaka tímafresti í þessu sambandi en við það er miðað að ákvörðun ráðherra skuli liggja fyrir eigi síðar en þremur mánuðum frá því að fullbúin umsókn berst ráðherra. Aðstaðan kann að vera sú að ófullnægjandi gögn eða upplýsingar hafi borist frá umsækjanda og þykir því eðlilegt að miða upphaf frestsins við það tímamark er fullnægjandi upplýsingar berast að mati ráðherra, sbr. 25. gr. frumvarpsins.
Í 3. mgr. er kveðið á um það að áður en ákvörðun er tekin um synjun starfsleyfis skv. 2. mgr. skuli leitað umsagnar bankaeftirlitsins. Enda þótt ráðherra sé ekki bundinn við umsögn bankaeftirlitsins verður að ætla að síður komi til synjunar telji bankaeftirlitið ekki ástæðu til hennar.
Um 27. gr.
Í 2. mgr. eru talin upp þau atriði sem fram þurfa að koma í samþykktum lífeyrissjóðs. Um flest þessi atriði eru nánari ákvæði í einstökum greinum, svo sem um réttindi, ákvörðun iðgjalda, ávöxtun o.fl., og verða samþykktirnar að vera í samræmi við þau ákvæði. Frumvarpið er ekki því til fyrirstöðu að í samþykktum séu tekin frekari ákvæði, að því tilskildu að þau fjalli almennt um gerð og rekstur viðkomandi sjóðs og samrýmist frumvarpinu að öðru leyti.
Flest þeirra atriða sem talin eru upp í 1.–11. tölul. 2. mgr. eru nú í samþykktum sjóðanna. Í greininni er greint á milli sjóðfélaga, þ.e. einstaklinga sem eiga aðild að lífeyrissjóði og aðildar að sjóðnum, sbr. 2. og 3. tölul. 2. mgr. Með aðild almennt í 3. tölul. er auk sjóðfélaga eftir atvikum átt við hvaða vinnuveitendur eða félög þeirra og hvaða stéttar- eða starfsmannafélög eiga aðild að sjóðnum. Gert er ráð fyrir að það komi fram með almennum hætti hvernig aðild og brottfalli aðildar skuli háttað, hvort sem um einstaklinga eða félög er að ræða, og hvernig hætta má aðild að sjóðnum. Sé sjóður stofnaður eða rekinn af verðbréfafyrirtæki eða öðrum slíkum aðila yrði það einnig að koma fram.
Um 28. gr.
Hér er kveðið á um það að fjármálaráðuneytið þurfi að staðfesta breytingar á samþykktum lífeyrissjóða en sambærilegt ákvæði er nú í 2. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launþega og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Í greininni er lagt til að samtök lífeyrissjóða geti tilkynnt um breytingar í umboði aðildarsjóða sinna en um skilyrði þess yrði nánar kveðið á í reglugerð. Telja verður að mikið hagræði sé af slíku fyrirkomulagi en nú er það svo að sjóðir t.d. innan Sambands almennra lífeyrissjóða verða hver og einn að fá breytingar á reglugerðum sínum staðfestar jafnvel þótt um sams konar breytingar sé að ræða.
Um VI. kafla.
Um 29. gr.
Í 1. mgr. er gert ráð fyrir að stjórn lífeyrissjóðs verði tilnefnd af hálfu stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda og að jafnvægi sé í fjölda fulltrúa þessara aðila í stjórn. Þó er heimilt að kveða á um annað fyrirkomulag að þessu leyti í lífeyrissjóðssamþykktum. Jafnframt er kveðið á um hlutverk og skyldur stjórnarmanna til almenns eftirlits með starfsemi lífeyrissjóðsins og skal það m.a. felast í því að fylgjast með að starfsemin sé í samræmi við lög og samþykktir sjóðsins og að hafa eftirlit með rekstri, bókhaldi og ráðstöfun eigna sjóðsins. Í síðasta málslið 1. mgr. er kveðið á um að það falli undir verkefni stjórnar að setja sér starfsreglur og að tillögur til breytinga á samþykktum skuli lagðar fyrir ársfund skv. 30. gr. af hálfu stjórnar.
Í 2. mgr. eru talin upp veigamestu verkefnin sem stjórnin skal annast en ekki er þar um tæmandi talningu að ræða.
Um 30. gr.
Um 31. gr.
Um 32. gr.
Í 1. mgr. er fjallað um verkefni framkvæmdastjóra en í 2. mgr. er framkvæmdastjóra gert óheimilt að taka þátt í atvinnurekstri nema með leyfi stjórnar. Í 3. mgr. er fjallað um hæfi framkvæmdastjóra og er gert ráð fyrir að sambærilegar reglur gildi um hann og stjórnarmenn.
Um 33. gr.
Um 34. gr.
Um 35. gr.
Um VII. kafla.
Um 36. gr.
Í 1. mgr. er gerð sú almenna krafa til stjórnar lífeyrissjóðs að hún ávaxti fé sjóðsins á þeim kjörum sem best eru í boði hverju sinni en síðan talið upp í hvaða verðbréfum sjóðunum verði heimilað að fjárfesta að gættum almennum skilyrðum í ákvæðinu. Tilgangurinn er að stuðla að því að lífeyrissjóðir nái sem bestri ávöxtun á fé sjóðfélaga sinna og jafnframt að áhættunni sé dreift með eðlilegum hætti.
Í 1.–10. tölul. 1. mgr. er tilgreint með hvaða hætti lífeyrissjóðum er heimilt að ávaxta fé sitt. Í 2. mgr. er skilgreint hvað átt er við með skipulegum markaði en í 3. mgr. er lífeyrissjóðum heimilað að kaupa innlend verðbréf sveitarfélaga, banka, sparisjóða, lánastofnana og þeirra aðila sem falla undir 8. tölul. enda þótt ekki sé um skráð bréf að ræða. Heildarfjárfestingin í slíkum bréfum má nema allt að 10% af hreinni eign til greiðslu lífeyris. Í 6. mgr. er lífeyrissjóðum gert að takmarka heildargengisáhættu sína. Í 8. mgr. er loks kveðið á um það að lífeyrissjóðir verða ávallt að hafa yfir að ráða nægjanlegu lausu fé til þess að geta innt af hendi lífeyrisgreiðslur en þess má geta að skv. 38. gr. er lífeyrissjóðum óheimilt að taka lán í því skyni.
Um 37. gr.
Ákvæðið er í samræmi við þær reglur sem hafa verið í gildi hjá lífeyrissjóðum. Ekki er talin ástæða til að heimila slíka fjárfestingu nema að því marki sem nauðsynlegt er vegna starfsemi viðkomandi lífeyrissjóðs. Miðað er við að slík fjárfesting sé innan eðlilegra marka og ber að skýra ákvæðið þröngt. Í 2. mgr. er sú undanþága gerð frá 1. mgr. að lagt er til að lífeyrissjóðum verði heimilað að yfirtaka eignir til að tryggja fullnustu kröfu, svo sem að kaupa eignir á nauðungaruppboði.
Um 38. gr.
Í 1. mgr. er lagt til að lífeyrissjóði verði óheimilt að taka lán nema til kaupa á húsnæði undir starfsemi sína. Skýra verður ákvæðið þröngt og yrðu slíkar lántökur að vera innan eðlilegra marka. Lántökur til annars en fasteignakaupa ættu að vera óþarfar þar sem lögð er sú skylda á lífeyrissjóði í 36. gr. að hafa ávallt yfir nægjanlegu lausu fé að ráða til þess að greiða lífeyri.
Í 2. mgr. er lagt til að óheimilt verði að veita lán til þeirra sem tengjast sjóðnum með ákveðnum hætti nema þeir séu sjóðfélagar. Ef svo væri yrði að meðhöndla lánsumsóknir þeirra með sama hætti og annarra sjóðfélaga. Ákvæði þetta þykir nauðsynlegt til þess að koma í veg fyrir hagsmunaárekstur.
Um 39. gr.
Í þessari grein er að finna eitt veigamesta ákvæði frumvarpsins en í henni er kveðið á um það að eignir og skuldbindingar þurfi að standast á.
Í 1. mgr. er kveðið á um skyldur lífeyrissjóða til þess að standa við skuldbindingar sínar eins og þær eru metnar á hverjum tíma. Er gert ráð fyrir fullri eignamyndun til að tryggja að lífeyrissjóðir standi við þær skuldbindingar sem bótaákvæði þeirra hafa í för með sér. Við mat á eignum og skuldbindingum skal taka tillit til væntanlegra iðgjaldagreiðslna vegna starfandi sjóðfélaga og þeirra skuldbindinga er af þeim hljótast, auk áfallinna skuldbindinga.
Í 2. mgr. er kveðið á um skyldu lífeyrissjóðs til að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins ef meiri en 7,5% munur verður á milli eigna og skuldbindinga.
Í 3. mgr. segir að stjórn lífeyrissjóðs sé skylt að fá álit tryggingafræðings áður en gerðar eru breytingar á samþykktum hlutaðeigandi sjóðs. Ákvæði um skyldur og athuganir tryggingafræðings lífeyrissjóðs eru einnig í 24. gr.
Um VIII. kafla.
Um 40.–43. gr.
Ákvæði greinanna skýra sig sjálf að efni til.
Um IX. kafla.
Um 44. gr.
Í 1. mgr. er kveðið á um að bankaeftirlitið hafi eftirlit með því að rekstur og fjárhagsstaða lífeyrissjóða sé í samræmi við ákvæði frumvarpsins, reglugerðir og reglur sem settar kunna að verða, svo og samþykktir einstakra sjóða. Í 2. málsl. 1. mgr. er kveðið á um aðgang bankaeftirlitsins að gögnum og upplýsingum um starfsemi sjóðanna. Ákvæðið tryggir bankaeftirlitinu víðtækan aðgang að þeim gögnum og upplýsingum sem það telur nauðsynleg til að rækja skyldur sínar til eftirlits með starfsemi lífeyrissjóðanna.
Auk þeirra gagna um hag lífeyrissjóða sem bankaeftirlitinu berst reglulega er því nauðsynlegt sem eftirlitsaðila að geta aflað frekari gagna um hag og starfsemi lífeyrissjóðs ef sérstök ástæða þykir til. Í 2. mgr. er veitt heimild til eftirlits í því skyni. Í 3. mgr. er eftirlitinu síðan veitt almenn heimild til þess að krefjast gagna. Slík heimild er nú í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 27/1991, um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða.
Ákvæði 4. mgr. er að hluta byggt á 3. mgr. 4. gr. laga nr. 27/1991. Þess ber þó að geta að samkvæmt því ákvæði skal bankaeftirlitið vísa máli til fjármálaráðherra sé ekki orðið við kröfum eftirlitsins um úrbætur. Ráðherra getur hins vegar ekki gripið til neinna ráðstafana af því tilefni. Í 46. gr. frumvarpsins er hins vegar gert ráð fyrir því að sé kröfum bankaeftirlitsins ekki sinnt geti það leitt til sviptingar starfsleyfis. Þetta eru sambærilegar heimildir við það sem bankaeftirlitið og viðskiptaráðherra hafa samkvæmt lögum nr. 10/1993, um verðbréfasjóði, og 13/1996, um verðbréfaviðskipti.
Um 45. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa. Sambærileg ákvæði eru nú í 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 27/1991, um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða.
Um X. kafla.
Í fyrri hluta kaflans er fjallað um skipun umsjónaraðila. Hún getur m.a. verið nauðsynleg ef lífeyrissjóðurinn fullnægir ekki lengur skilyrðum laganna ef rekstri er ábótavant.
Í síðari hluta hans er fjallað um slit lífeyrissjóða. Gert er ráð fyrir að hægt verði að slíta sjóði annaðhvort með því að tveir eða fleiri sjóðir sameinist eða að sjóður hætti starfsemi og eignir og skuldbindingar renni inn í annan lífeyrissjóð. Jafnframt getur komið til þess að réttindin renni til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Réttindi sjóðfélaga mundu síðan metin í sjóðnum sem hann sameinast eða sem yfirtekur hann í samræmi við eignir og skuldbindingar sjóðsins sem slitið er.
Um 46. gr.
Í 1. mgr. er kveðið á um skipan umsjónaraðila um tiltekinn tíma. Í fyrsta lagi er kveðið á um heimild til skipunar umsjónaraðila uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði frumvarpsins til þess að öðlast leyfi. Með þessu er lögð áhersla á að ekki sé nægjanlegt að uppfylla skilyrði til leyfisveitingar á þeim tíma er leyfis er óskað heldur skuli viðkomandi sjóður ávallt fullnægja þeim skilyrðum sem sett eru fyrir leyfisveitingu. Í öðru lagi getur komið til slíkrar skipunar ef sjóðurinn er ekki gjaldhæfur, í þriðja lagi ef reglur eru brotnar og loks, í fjórða lagi, ef rekstri sjóðs er ábótavant og kröfum bankaeftirlits um úrbætur ekki sinnt.
Í 2. mgr. er kveðið á um að stjórnin og framkvæmdastjórinn skuli víkja frá störfum á meðan umsjónaraðilinn starfar og að umsjónaraðilinn taki við starfi þeirra. Gert er ráð fyrir að ráðherra setji honum erindisbréf. Umsjónaraðili gæti ráðið sér aðstoðarmenn og einnig væri hugsanlegt að skipa fleiri en einn aðila í stórum málum.
Um 47. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um að skylda til greiðslu iðgjalds til viðkomandi sjóðs falli niður við birtingu tilkynningar. Sjóðfélagarnir verða þá að velja sér annan sjóð til að greiða til meðan þetta ástand varir eða greiða til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Jafnvel þótt lífeyrissjóði verði aldrei slitið með þeim hætti að greidd iðgjöld verði endurgreidd til sjóðfélaga er engu að síður talið eðlilegt og sanngjarnt að sjóðfélagar þurfi ekki að sæta því að greiða iðgjöld til sjóðsins á meðan umsjónaraðili starfar, en svo getur farið að sjóðnum verði slitið, sbr. 3. mgr.
Í 3. mgr. er kveðið á um að ráðherra geti, að tillögu umsjónaraðila, ákveðið að slíta viðkomandi lífeyrissjóði. Ráðherra skal þá skipa skilanefnd sem sér um uppgjör og slit á sjóðnum. Niðurstaða skilanefndar getur annars vegar orðið sú að leita eftir sameiningu við annan sjóð, sbr. 48. gr., eða að slíta honum með þannig að eignir hans renni til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, sbr. 49. gr.
Um 48. gr.
Í 1. mgr. er kveðið á um að það skuli að jafnaði vera stjórn lífeyrissjóðs sem tekur ákvörðun um slit lífeyrissjóðs nema samþykktir kveði á um annað svo sem að fulltrúaráð eða ársfundur skuli taka slíka ákvörðun.
Í 3. og 4. mgr. er síðan kveðið á um það hvernig með eigi að fara þegar ákveðið er að sameina sjóð öðrum sjóði. Sameiningin getur bæði átt sér stað þannig að einn sjóður yfirtekur eignir og skuldbindingar annars sjóðs eða þannig að tveir eða fleiri sjóðir sameinuðust um að mynda nýjan sjóð og fengju þá nýtt starfsleyfi samkvæmt ákvæðum V. kafla frumvarpsins. Gera má ráð fyrir að sjóðfélagarnir í gamla sjóðnum yrðu í flestum tilvikum félagar í nýja sjóðnum. Í 3. mgr. er fjallað um ýmis atriði er varða framkvæmd sameiningarinnar en í 4. mgr. um mat á réttindum. Lagt er til að eignir sjóðsins sem slitið er renni til þess sjóðs sem hann sameinast en skuldir sjóðsins hafa þá ýmist verið greiddar eða yfirteknar af sjóðnum sem hann sameinast. Þessar eignir mynda síðan grundvöll lífeyrisréttinda sjóðfélaganna í hinum nýja sjóði eftir að skuldbindingar hafa verið metnar.
Um 49. gr.
Í þessari grein er fjallað um skipun skilanefndar þegar ákveðið hefur verið að sjóðnum verði slitið og að hann verði ekki sameinaður öðrum sjóði eða stofnaður nýr sjóður, sbr. 48. gr. Í slíkum tilvikum renna eignir og skuldbindingar til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Helsti munurinn á framkvæmd slitanna skv. 48. gr. og þessari grein er sá að samkvæmt þessari grein skal tilnefna skilanefnd sem tekur við rekstri sjóðsins og sér um slit hans en engin slík krafa er gerð í 48. gr. Greiða yrði upp skuldir en annað er varðar framkvæmd slitanna er svipað og sams konar reglur sem gilda um mat á eignum og lífeyrisskuldbindingum.
Um XI. kafla.
Í XI. kafla er fjallað um lífeyrissjóði sem starfa við gildistöku laganna og undanþágur frá einstökum ákvæðum laganna.
Um 50. gr.
Um 51. gr.
Um 52. gr.
Um 53. gr.
Í 2. mgr. er gert ráð fyrir því að hafi lífeyrissjóður ekki sótt um starfsleyfi innan frestsins skv. 1. mgr. teljist sjóðurinn ekki fullnægja ákvæðum laganna og verður honum því slitið skv. ákvæðum X. kafla.
Um 54. gr.
Um 55. gr.
Hvora leiðina sem séreignarsjóður fer, sem ætlar að halda áfram að taka við iðgjöldum, er honum þó heimilt að reka sérstaka deild við sjóðinn sem varðveiti þau iðgjöld sem greidd eru samkvæmt lífeyrissjóðssamþykktum fyrir gildistöku frumvarpsins ef að lögum verður.
Um 56. gr.
Um 57. gr.
Hér er fjallað um viðurlög. Brot gegn lögunum getur varðað sektum eða fangelsi en sá fyrirvari er gerður að brot geti varðað þyngri refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum. Sambærilegt ákvæði er í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti.
Um 58. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 59. gr.
Hér er kveðið á um það að lífeyrissjóðirnir beri kostnað við tilkynningar skv. frumvarpinu. Þykir eðlilegt að þeir beri þennan kostnað á sama hátt og t.d. verðbréfasjóðir gera samkvæmt lögum nr. 10/1993, um verðbréfasjóði.
Um 60. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða.