Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 573 . mál.


946. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skattalega meðferð lífeyris og bóta almannatrygginga.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Er af hálfu ríkisstjórnarinnar fyrirhugað að breyta skattalegri meðferð og tekjutengingu lífeyris til hagsbóta fyrir þá lífeyrisþega sem verst eru settir?
    Áformar ríkisstjórnin að breyta skattalegri meðferð og tekjutengingu bóta almannatrygginga til hagsbóta fyrir þá bótaþega sem verst eru settir?