Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 362 . mál.
1013. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 22. apríl.)
1. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr liður, svohljóðandi:
D. Heimilt er að gefa út atvinnuskírteini samkvæmt eldri lögum til þeirra sem hófu nám fyrir gildistöku laga nr. 62/1995, um breytingu á lögum þessum, en þó ekki lengur en til 31. ágúst 1999.
2. gr.
Lög þessi taka þegar gildi.