Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1021, 121. löggjafarþing 405. mál: einkahlutafélög (EES-reglur).
Lög nr. 31 6. maí 1997.
Á bréfsefni, pöntunareyðublöðum og svipuðum skjölum einkahlutafélaga og útibúa þeirra skal greina heiti, kennitölu og heimilisfang félags, svo og skráningaraðila og hugsanlegt skráningarnúmer, annað en kennitölu. Að því er varðar útibú félags skal auk þess greina hugsanlega skrá og skráningarnúmer félagsins í heimalandi þess. Ef heiti einkahlutafélags eða útibús er notað skal bæta við upplýsingum um gjaldþrotaskipti eða félagsslitameðferð ef um slíkt er að ræða.
Þingskjal 1021, 121. löggjafarþing 405. mál: einkahlutafélög (EES-reglur).
Lög nr. 31 6. maí 1997.
Lög um breytingu á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög.
1. gr.
4. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Á bréfsefni, pöntunareyðublöðum og svipuðum skjölum einkahlutafélaga og útibúa þeirra skal greina heiti, kennitölu og heimilisfang félags, svo og skráningaraðila og hugsanlegt skráningarnúmer, annað en kennitölu. Að því er varðar útibú félags skal auk þess greina hugsanlega skrá og skráningarnúmer félagsins í heimalandi þess. Ef heiti einkahlutafélags eða útibús er notað skal bæta við upplýsingum um gjaldþrotaskipti eða félagsslitameðferð ef um slíkt er að ræða.
2. gr.
Orðin „og verulega hlutdeild í afrakstri þess“ í 3. mgr. 2. gr. laganna falla brott.3. gr.
Síðari málsliður 1. mgr. 74. gr. laganna fellur brott.4. gr.
Við 2. mgr. 79. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Ákvæði 1.–2. málsl. eiga þó ekki við um kaup starfsmanna félagsins eða tengds félags á hlutum eða kaup á hlutum fyrir þá. Gætt skal ákvæða 74. gr.5. gr.
Við 1. mgr. 123. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Þegar breytingar á félagssamþykktum eða stofnsamningi að öðru leyti eru tilkynntar skal leggja fram nýjan heildartexta með innfelldum breytingum. Félagsstjórn eða sá aðili, sem kemur í hennar stað, skal tilkynna upphaf og lok félagsslitameðferðar.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 125. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Ákvæði 1. málsl. taka þó ekki til ráðstafana sem gerðar eru innan sextán daga eftir birtingu ef viðkomandi maður sannar að hann hafi ekki getað aflað vitneskju um það sem birt var.
- Við greinina bætist ný málsgrein sem orðast svo:
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 23. apríl 1997.