Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1025, 121. löggjafarþing 217. mál: skráning skipa (eignarhlutur útlendinga).
Lög nr. 39 6. maí 1997.
Aðeins má skrá til fiskveiða hér á landi skip sem eru í eigu eftirtalinna aðila:
Þingskjal 1025, 121. löggjafarþing 217. mál: skráning skipa (eignarhlutur útlendinga).
Lög nr. 39 6. maí 1997.
Lög um breytingu á lögum nr. 115 31. desember 1985, um skráningu skipa, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað 4. málsl. 1. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Aðeins má skrá til fiskveiða hér á landi skip sem eru í eigu eftirtalinna aðila:
- Íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hér á landi.
- Íslenskra lögaðila sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eigu íslenskra ríkisborgara, sem eiga lögheimili hér á landi, eða íslenskra lögaðila sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Eru undir yfirráðum íslenskra aðila.
- Eru í eigu erlendra aðila að hámarki 25% sé miðað við hlutafé eða stofnfé. Fari eignarhlutur íslensks lögaðila í öðrum lögaðila, sem er skráður eigandi skips, ekki yfir 5% má eignarhlutur erlendra aðila þó vera allt að 33%.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 23. apríl 1997.