Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
600
. mál.
1051. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um dóma, skaðabætur og fjölda grófra líkamsárása.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
Hver var fjöldi grófra líkamsárása á tímabilinu 1. janúar 1993 til 1. maí 1997?
Hve oft hlutu þolendur örorku vegna þessara líkamsárása og hve háar voru skaða- og miskabætur til þeirra í hverju tilviki?
Hve þunga dóma hlutu gerendur líkamsárásanna á framangreindu tímabili?