Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 604 . mál.
1096. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um læknisþjónustu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Frá Hjálmari Jónssyni.
Geta sjúklingar, sem eru búsettir hér á landi, leitað sér lækninga á Evrópska efnahagssvæðinu á kostnað íslenska ríkisins þegar ekki er unnt að veita þeim þjónustu hérlendis innan eðlilegra tímamarka, og þá með hvaða skilyrðum?