Ferill 606. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 606 . mál.


1149. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um eftirlit með samningnum um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



    Hvað er áætlað að umsjón með samningnum um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna muni árlega hafa mikinn kostnað í för með sér fyrir Hollustuvernd ríkisins?
    Hvernig hyggst ríkisstjórnin bæta stofnuninni útgjaldaaukann vegna samningsins?