Ásta B. Þorsteinsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég get ekki orða bundist við ræðu hv. þm. Guðna Ágústssonar. Það er enginn sem efast um góðan starfsvilja og þekkingu starfsfólks á heilbrigðisstofnunum, Ljósheimum sem öðrum stofnunum, en það er lágmark að öryggissjónarmið séu í heiðri höfð þannig að starfsfólk sé ekki sett í þær aðstæður að geta ekki bjargað fólki út ef eitthvað kæmi upp á.