Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Alþingi er löggjafarstofnun og vettvangur pólitískra skoðanaskipta, ekki lögreglustöð eða endurskoðunarskrifstofa.
Þáltill. stjórnarandstöðunnar er vanhugsuð því málið er í réttum stjórnskipulegum farvegi. Ég segi já við þessari tillögu að rökstuddri dagskrá.