Skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 12:32:47 (7605)

1998-06-05 12:32:47# 122. lþ. 146.7 fundur 723. mál: #A skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.# þál., VS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:32]

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Sú tillaga til rökstuddrar dagskrár sem er flutt af formönnum þingflokka stjórnarflokkanna eru viðbrögð við því sem hv. 1. flm. þáltill. lagði til í lok máls síns að málinu yrði vísað til síðari umræðu. Það var samkomulag milli þingflokkanna um að tillagan yrði tekin til einnar umræðu en ekki meir.

Þeir efnisþættir sem koma fram í tillgr. eru allir til meðferðar í þjóðfélaginu, eru allir í ákveðnum farvegi. Þess vegna er tillagan óþörf og ég segi já við frávísun.