Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):
Herra forseti. Hv. þm. ber fram eftirfarandi fyrirspurn á þskj. 232: Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja á íslenskum matvælamarkaði?
Ég vitna enn til skýrslu Samkeppnistofnunar frá desember 1994, um stjórnun og eignatengsl í íslensku atvinnulífi. Samkvæmt henni voru Sláturfélag Suðurlands og Kjötumboðið hf. stærst á þessum markaði árið 1993. Markaðshlutdeild Sláturfélagsins var það ár 26% samkvæmt skýrslunni og Kjötumboðsins hf. 11%. Tekið er mið af fyrirtækjum í slátrun og kjötvinnslu.
Í fyrrgreindri skýrslu er getið um markaðshlutdeild einstakra fyrirtækja. Síðan sú skýrsla var unnin hafa orðið breytingar á markaðnum þannig að hlutfallstölur sem þá giltu eiga ekki lengur við og upplýsinga hefur ekki verið aflað frá þeim tíma.
Sem svar við annarri spurningu hv. þm. á þskj. 232 vitna ég til svars míns sem ég fór með áðan við annarri fyrirspurn á þskj. 230 sem er efnislega samhljóða því sem hér er spurt um.