Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Hér er hafin ný umræða um málið. En það var örugglega ekki það sem forseti ætlaðist til þegar hann gaf orðið um að bera af sér sakir.
Já, ég sagði hér áðan að það hafi fallið stór orð. Ef það er nægilegt til þess að hefja umræðu upp á nýtt þá þarf nú varlega að fara í þingsal.