Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Ég tel að þetta sé alveg skýrt og ítreka það sem ég hef áður sagt. Ég pressa ekki á málið. Ég vil að það fái ítarlega og opna umræðu og að hún hefjist sem allra fyrst. Málið er þá komið í hendur þingsins og ef þingið telur þetta afskaplega jákvætt mál og vill hraða því þá ætla ég ekki að bregða fæti fyrir það og það hef ég alltaf sagt í umræðunni.