Ferill 47. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 47 – 47. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um áhrif lýsingar við Reykjanesbraut á slysatíðni.

Frá Ágústi Einarssyni.



1.      Hver er fjöldi og umfang slysa sem hafa orðið á Reykjanesbraut eftir að lýsing var sett upp við veginn, borið saman við sambærileg tímabil á fyrri árum?
2.      Hafi slysum fækkað, hver er áætlaður sparnaður þjóðfélagsins frá því að lýsingin var sett upp?
3.      Telur ráðherra að brýnt sé að setja lýsingu við aðra fjölfarna vegi landsins, t.d. á Hellisheiði, og hyggst hann beita sér fyrir slíkum framkvæmdum?