Ferill 155. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 155 – 155. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Guðjón Guðmundsson .
1. gr.
Við 7. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Telji útgerð skips að ekki náist að veiða upp í úthlutað aflamark skips af einhverri tegund skal útgerðin tilkynna Fiskistofu um hve mikið af aflamarki tegundarinnar hún hyggst ekki nýta á fiskveiðiárinu. Aflamarki hverrar tegundar sem þannig er skilað til Fiskistofu skal út
Umsýslugjald skal miðast við 5% af meðalverði viðkomandi tegundar á fiskmörkuðum inn
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
a. 2. mgr. orðast svo:
Við eigendaskipti að fiskiskipi fylgir aflahlutdeild þess.
b. 6. mgr. fellur brott.
3. gr.
12. gr. laganna orðast svo:
Heimilt er að skipta á aflamarki milli skipa, enda sé um jöfn skipti á tegundum að ræða að mati Fiskistofu. Þó er óheimilt að skipta aflamarki þeirra tegunda sem skipið fær til sín sam
Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um skipti á aflamarki tegunda milli skipa og eru skiptin ekki heimil fyrr en Fiskistofa hefur staðfest móttöku tilkynningar um þau frá þeim sem hlut eiga að máli.
Annar flutningur á aflamarki milli skipa er óheimill.
4. gr.
Ákvæði til bráðabirgða V í lögunum fellur brott.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 1998.
Prentað upp.
Greinargerð.
Það frumvarp til laga sem hér er lagt fram hefur þann tilgang að afnema að mestu leyti heimildir til framsals veiðiheimilda samkvæmt lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að veiðiheimildum, sem ekki veiðast á fisk
Framsal veiðiheimilda á grundvelli heimilda í lögum um stjórn fiskveiða hefur verið gagn
Yfirlýstur tilgangur með setningu laga um stjórn fiskveiða var af tvennum toga. Í fyrsta lagi átti kerfið að tryggja að heildarafli tegunda í kvóta skyldi vera innan þeirra marka sem stjórn
Afar erfitt er að mæla hreinan ávinning í sjávarútvegi, ef einhver er, af framsali veiðiheim
Eins og áður segir er vafasamt að framsal veiðiheimilda hafi skilað sjávarútveginum þeim ávinningi sem upphaflega var reiknað með. Hins vegar bendir ýmislegt til þess að framsalið leiði til aukins kostnaðar fyrir greinina og þjóðarbúið í heild. Ef heldur áfram sem horfir með óbreytt kerfi um stjórn fiskveiða má búast við vaxandi ósætti meðal þjóðarinnar í afstöðu hennar til kvótakerfisins. Við slíkar aðstæður verður ekki unað til langframa og er því nauð
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er um að ræða ný ákvæði um að útgerð geti skilað Fiskistofu veiðiheimildum sem ekki verða nýttar á fiskveiðiárinu og verði þeim þá úthlutað til annarra skipa gegn umsýslugjaldi. Jafnframt er gert ráð fyrir að veiðiheimildum, sem ekki nýttust á fiskveiðiárinu, verði úthlutað á næsta fiskveiðiári. Þessi úthlutun miðast við aflahlutdeild viðkomandi tegundar sérhvers skips. Ef einhverjar útgerðir óska ekki eftir úthlutun þessara veiðiheimilda skal úthluta þeim til skipa í eigu útgerða sem óska eftir viðbótarveiðiheimildum. Fyrir veiðiheimildir sem úthlut
Þetta eru ný ákvæði og nauðsynleg til að tryggja að auðlindin verði nýtt á sem hagkvæmast
Um 2. gr.
Í a-lið er tekinn af allur vafi um að aflahlutdeild fylgir skipi við sölu þess innan lands. Þetta ákvæði á augljóslega ekki við þegar skip er selt úr landi eða það úrelt. Komi annað skip í stað þess sem úrelt var eða selt úr landi skal aflahlutdeild flytjast til þess. Þannig er ekki gert ráð fyrir því að rýra veðhæfni skips þar sem útgerðin, sem átti skipið eða keypti það, heldur ávallt aflahlutdeild skipsins.
Þar sem frumvarpið veldur því að hvorki má leigja kvóta innan ársins né færa varanlega hluta af aflamarki milli skipa er sjálfgefið að 6. mgr. 11. gr. núgildandi laga falli brott, eins og kveðið er á um í b-lið.
Um 3. gr.
Hér er kveðið á um að ávallt sé öllum frjálst að skipta á jöfnum heimildum af þeim tegund
Þá er jafnframt tekið fyrir það í 1. mgr. greinarinnar að skip, sem fær til sín aflaheimildir í tegund gegn greiðslu umsýslugjalds vegna vöntunar í þeirri tegund, noti þá tegund í skipti
Loks er tekið fram að önnur skipti en jöfn séu óheimil. Fiskistofa staðfestir að flutningur sé heimill í jöfnum skiptum.
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 5. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.