Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 170 – 170. mál.


Tillaga til þingsályktunar



um aðgang nemenda að tölvum og tölvutæku námsefni.

Flm.: Pétur H. Blöndal, Árni M. Mathiesen, Drífa Hjartardóttir, Egill Jónsson,


Einar Oddur Kristjánsson, Gísli S. Einarsson, Guðjón Guðmundsson,
Guðmundur Hallvarðsson, Guðni Ágústsson, Guðný Guðbjörnsdóttir,
Guðrún Helgadóttir, Gunnlaugur M. Sigmundsson, Hjálmar Árnason, Hjálmar Jónsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Kristinn H. Gunnarsson, Kristín Halldórsdóttir,
Kristján Pálsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, Magnús Stefánsson,
Margrét Frímannsdóttir, Sighvatur Björgvinsson, Sigríður Jóhannesdóttir,
Stefán Guðmundsson, Steingrímur J. Sigfússon, Sturla Böðvarsson,
Svanfríður Jónasdóttir, Tómas Ingi Olrich, Össur Skarphéðinsson.

    Alþingi skorar á ríkisstjórnina að gera áætlun um að innan þriggja ára hafi sérhver nem andi í opinberum skólum aðgang að tölvum og tölvutæku námsefni minnst einn tíma á dag.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var flutt á síðast þingi en varð ekki útrædd og er því flutt hér aftur í lítið breyttri mynd.

Stefna ríkisstjórnar.

    Í framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið er sett fram það megin markmið að Íslendingar verði í fararbroddi þjóða heims við nýtingu upplýsingatækni í þágu bætts mannlífs og aukinnar hagsældar. Skilgreind eru eftirfarandi þrjú forgangsverkefni sem eru sögð mikilvæg til að stefna stjórnvalda í málefnum upplýsingasamfélagsins nái fram að ganga:
— átak á sviði menntamála,
— áhersla á flutningsgetu og flutningsöryggi tölvutækra upplýsinga,
— að útboðsstefnu ríkisins verði framfylgt við kaup hugbúnaðar fyrir ríkisstofnanir og ráðu neyti.
    Menntamálaráðuneytið hefur mótað mjög ítarlega stefnu sem sett er fram í ritinu Í krafti upplýsinga. Þar kemur meðal annars fram að kenna verði notkun upplýsingatækni á öllum skólastigum. Við námsgagnagerð verði að nýta kosti margmiðlunar til að efla menntun og auka fjölbreytni í skólastarfi. Lögð er áhersla á að í skólum landsins eigi að vera fullnægjandi tölvubúnaður til að nemendum og starfsmönnum sé gert kleift að nýta sér möguleika upp lýsingatækni í námi, kennslu, rannsóknum, stjórnun og samskiptum innan lands og utan. Að þessu er nú unnið og hluti stefnunnar hefur þegar verið framkvæmdur.

Afleiðing niðurskurðar.

    Mikill og flatur niðurskurður undangenginna ára hefur bitnað mest á þeim stofnunum sem síst skyldi, þ.e. þeim sem reyna að fara að fjárlögum. Slíkur niðurskurður leiðir stefnuna frá raunverulegu markmiði velferðarkerfisins: Hvert viljum við stefna og hver á þáttur ríkisins að vera? Nokkur hluti menntakerfisins er þegar í höndum einkaaðila og má þar nefna Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, listaskóla og tölvuskóla. Almenna skólakerfið er þó að mestu í höndum opinberra aðila og það varðar þjóðina miklu, fjölskyldur og atvinnulíf, hvernig til tekst með menntun barnanna okkar. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að mennta kerfið sé skilvirkt og skili menntuðum, upplýstum, framtaksömum og sjálfstæðum einstakl ingum út í atvinnulífið.

Framleiðniaukning.

    Mikil framleiðniaukning einkennir alla þætti atvinnulífsins hin síðari ár. Stór þáttur í þessari framleiðniaukningu er notkun örgjörva eða tölva í iðnaði, verslun, sjávarútvegi og landbúnaði. Opinbera stjórnsýslan hefur og tekið þetta verkfæri í auknum mæli í þjónustu sína. Í menntamálum hafa margir einstaklingar lagt hönd á plóginn við að tölvuvæða mennta kerfið á ýmsan hátt og nægir þar að nefna Íslenska menntanetið. Enn fremur hafa einstök foreldrafélög, kennarar og skólastjórnendur lyft grettistaki í því að tölvuvæða einstaka skóla. Það vekur svo aftur upp spurningar um stöðu þeirra nemenda sem ekki verða þeirrar gæfu að njótandi að kynnast tölvukennslu. En þrátt fyrir þetta gleðilega framtak er ljóst að betur má ef duga skal. Nýleg könnun á getu íslenskra nemenda í raungreinum sýnir að þeir hafa hugs anlega ekki þá þekkingu eða færni sem er æskileg og nauðsynleg ef þjóðin ætlar að standa sig í samkeppni þjóðanna í framtíðinni. Því er þörf úrbóta. Í framangreindri könnun stóðu sig nemendur frá Singapúr áberandi best og því gæti virst eðlilegt að fólk leitaði þangað að fyrir myndum. En aðrar námsgreinar og önnur atriði eru ekki síður mikilvæg í kennslu en raun greinar. T.d. er nauðsynlegt að hafa mikla færni í tungumálum í ört vaxandi alþjóðasamskipt um. Frumkvæði, sjálfstæði, áhættugleði og hugmyndaauðgi eru ekki síður nauðsynleg. Einnig hefur verið bent á hugsanlegar skuggahliðar samfara námsárangrinum. Of mikill metnaður og streita kann að fylgja þessum árangri barnanna í Singapúr. Því er nauðsynlegt að huga að mörgum þáttum þegar leitað er leiða til að auka metnað og færni íslenskra skólabarna.

Möguleikar tölvuhugbúnaðar.

    Á undanförnum mánuðum og árum hefur sýnt sig þvílíkir möguleikar búa í tölvum og net kerfum þegar litið er til upplýsingaöflunar og miðlunar. Nú er ekkert mál að senda bréf og flókinn hugbúnað heiminn á enda á nokkrum sekúndum sem áður tók vikur og mánuði. Unnt er að afla upplýsinga frá öllum heimshornum um ákveðið málefni sem áður fyrr var ekki hægt nema með miklum tilkostnaði og tíma. Þar sem kennsla er aðallega fólgin í miðlun þekkingar og upplýsinga er ljóst að tölvan getur verið mjög mikilhæft verkfæri í menntakerfinu. Nægir í því sambandi að benda á sambland texta, tóna, mynda og kvikmynda sem hægt er að miðla yfir net eða á ódýrum geisladiskum í margmiðlunartölvu. Kostir þessa miðils umfram bókina og skólatöfluna eru ótvíræðir. Tölvuvæðing getur komið öllum námsgreinum til góða. Mögu leikar tölvunnar sem verkfæris í íslenskukennslu og tungumálakennslu eru ekki síðri en í stærðfræði og eðlisfræði. Hugmyndaauðgi kennara og hugbúnaðarfólks mun skapa nýjar víddir í kennslu með aðstoð þessa verkfæris þar sem blandað er saman texta (bók), hljóði (framburður), myndum (lýsing) og kvikmyndum. Nemandinn stjórnar hraðanum og að vissu leyti stefnunni. Tölvan hefur auk þess þann kost að hún er alltaf til staðar fyrir nemandan og hann er virkur. Tölvan þreytist aldrei, verður ekki óþreyjufull, þegar nemandinn spyr í þrítug asta skipti hvað sama orðið í dönsku þýðir. Ásókn ungmenna í tölvuleiki sýnir einnig þá möguleika sem gott námsefni í tölvutæku formi gæti haft til örvunar og hvatningar. Þannig munu ekki aðeins færustu nemendurnir njóta slíks námsefnis heldur munu aðrir nemendur, fá þann tíma sem þeir þurfa því að þeir stjórna hraðanum sjálfir. Tölvuvæðingin mun því nýtast öllum nemendum vel án tillits til námsgetu.

Breyting á kennsluháttum.

    Hægt er að sjá fyrir miklar breytingar ef notkun tölva verður almenn í menntakerfinu. Hið hefðbundna form kennslu, sem hefur verið við lýði í hundruð ára, kann að riðlast. Í stað hefð bundinnar skólastofu þar sem kennarinn er virkur og hópur nemenda er meira og minna óvirk ur, verður skólastofan opin og nemendur eða litlir hópar nemenda eru virkir við hverja tölvu en kennari eða kennarar ganga á milli, örva nemendur, leysa vandamál og stýra verkum. Kennarinn verður verkstjóri. Gera má ráð fyrir að kennsla verði virkari og því mun tími til að þjálfa nemendur í framkomu og tjáningu aukast en nokkuð hefur skort á slíka þjálfun. Vegna mikilvægis innsláttar á tölvu mætti huga að því að kenna hann strax í byrjun grunn skóla, þ.e. um leið og börnin læra að lesa og skrifa.

Félagsleg einangrun.

    Bent hefur verið á að seta við tölvu geti leitt til félagslegrar einangrunar. En það á ekki síður við setu í hefðbundnum bekk. Þess vegna er mjög mikilvægt að hugað sé að frímínútum sem brjóta upp kennsluna og jafnframt að láta börnin vinna saman í litlum hópum við að leysa verkefni og ætti kröfulýsing til námsgagna að miða að því. Þar sem tölvutækt námsefni getur gert miklar kröfur til nemandans þarf að gæta vel að því að ofgera ekki börnunum. Við fram kvæmd þingsályktunarinnar mætti t.d. miða við að yngstu börnin, 5–8 ára, væru ekki lengur en eina kennslustund á dag fyrir framan tölvuna. Lengja mætti þennan tíma í áföngum þannig að 15 ára nemendur væru e.t.v. 75% af virkum kennslutíma við tölvuna.

Hugbúnaðargerð.

    Til að ná fram markmiðum þessarar þingsályktunartillögu er ekki nóg að kaupa tölvur. Má jafnvel orða það þannig að tölvukaup ættu að vera aukaatriði. Aðalatriðið er gerð nýs hug búnaðar eða að þýða og staðfæra erlendan kennsluhugbúnað. Mikilvægt er að koma á greiðslu fyrir afnot af kennsluhugbúnaði sem hvetji kennara, hugbúnaðarfólk og fjárfesta til þess að taka höndum saman við að búa til eða staðfæra hugbúnað. Greiðslurnar gætu verið í því formi að greitt sé fyrir notkun á forriti á netinu eða að skólarnir fengju stórauknar fjár veitingar til að kaupa hugbúnað. Þannig myndaðist eftirspurn eftir góðum hugbúnaði sem hvetti kennara og hugbúnðarfólk til dáða.
    Hugbúnaðurinn þarf bæði að fræða og kenna, hvetja og vera skemmtilegur. Enn fremur þarf hugbúnaðurinn að geta mælt árangur nemandans. Átak í kennsluhugbúnaðargerð getur verið mikil hvatning fyrir kennara og ef vel tekst til gæti það leitt til útflutnings á kennsluhug búnaði.

Stöðug fjárfesting.

     Margir átta sig ekki á því hve þróun tölva og hugbúnaðar er ör um þessar mundir. Tölvur, sem þóttu nýjasta nýtt fyrir þremur árum, teljast varla gjaldgengar lengur. Hugbúnaðurinn er jafnvel enn skammlífari. Þetta þarf að hafa í huga þegar ákveðið er að fjárfesta samkvæmt ályktuninni. Ekki má gera ráð fyrir að nóg sé að þróa hugbúnað og kaupa tölvur í eitt skipti fyrir öll. Hér verður að vera um stöðuga fjárfestingu að ræða, fjárfestingu sem fyrst mun skila arði eftir áratugi. Hún er hins vegar nauðsynleg ef við ætlum að halda stöðu okkar meðal þjóða sem búa við bestu lífskjörin. Hluti af framkvæmd ályktunarinnar gæti falist í því að vaka yfir og fylgjast með því sem er nýjast í kennsluhugbúnaði á alþjóðamarkaði. Í þessu felst leit að hugbúnaði, kaup á honum, aðlögun og prófun. Oft vill gleymast að kennsla og umsjón og viðhald tölvukerfa og hugbúnaðar er mjög viðamikið starf. Því þarf að gera ráð fyrir þjálfun starfsfólks og kennara á þessum sviðum.

Upplýsingar til kennara.

    Hluti átaksins hlýtur að vera að upplýsa kennara um möguleika og kosti þessa nýja kennslumiðils og kenna þeim á þann hugbúnað sem stendur til boða. Einnig þarf að gera ráð fyrir að kennarar taki þátt í að þróa nýjan hugbúnað og aðlaga erlendan hugbúnað íslenskum aðstæðum. Tryggja þarf leiðir sem styðja og hvetja til að gert sé nýtt kennsluefni. Þeir sem koma með skynsamlega hugmynd fái styrk, hlutafé eða víkjandi lán til þess að koma henni í framkvæmd með aðstoð hugbúnaðarfólks. Eins og áður sagði þarf að setja reglur um greiðsl ur fyrir afnot slíks efnis. Það yrði hvatning til kennara, hugbúnaðarfólks og fjárfesta að gera forritin skemmtileg og áhugaverð.

Lauslegt mat á kostnaði.

    Ljóst er að slíkt átak kostar mikið fé en líta má á það sem langtímafjárfestingu. Til þess að árangur náist er nauðsynlegt að verja ekki minna fé í þróun hugbúnaðar en kaup á tölvum. Í grunnskólum landsins eru um 42 þús. nemendur, ef gert er ráð fyrir að þrír verði um hverja tölvu þarf 14 þús. tölvur í grunnskólana. Í framhaldskólunum eru um 17 þús. nemendur. Ef gert er ráð fyrir að hver þeirra þurfi eina tölvu þyrfti alls um 30 þús. tölvur. Þannig þyrfti að kaupa um 10.000 tölvur á ári ef ná ætti markmiðinu á þremur árum. Áætla má að sá kostnaður verði um 600–900 millj. kr. Samkvæmt framansögðu væri eðlilegt að verja sömu upphæð til hugbúnaðargerðar. Átakið mundi því kosta 1.200–1.800 millj. kr. á ári. Kanna þarf hvernig þeim kostnaði mætti dreifa á ríki, sveitarfélög, styrktaraðila og foreldrafélög.

Þátttaka sveitarfélaga.

    Ljóst er að hafa þarf samstarf við sveitarfélög um framkvæmd þessarar stefnu þar sem þau sjá um rekstur grunnskólans. Mikilvægt er að þeim sé séð fyrir fjármunum í því skyni að kaupa tölvur og hugbúnað og ekki síður að nemendur eigi jafnan kost á að nota það verkfæri sem tölvan er. Þess vegna er brýnt að átakið, sem lagt er til í tillögunni, nái til allra opinberra skóla, jafnt í dreifbýli sem þéttbýli. Slík tölvu- og upplýsingavæðing mun auka möguleika á fjarkennslu sem aftur mun styrkja hefðbundna kennslu og jafna þannig muninn á skólum í þéttbýli og dreifbýli.

Framkvæmd áætlunarinnar.

    Áætlun þessa má framkvæma t.d. með því að velja nokkra skóla til þess að ríða á vaðið. Þar yrði sett upp net og fengið tölvufólk til þess að vinna með kennurum við að velja kennslu hugbúnað. Kennarar þessara skóla mundu svo leysa þau vandamál sem efalaust munu koma upp við framkvæmd þessarar nýju stefnu. Einnig má hugsa sér að tölvuvæða skólakerfið ofan frá, háskólastigið fyrst, síðan framhaldsskólstigið og að lokum grunnskólastigið.

Þróunin undanfarið.

    Undanfarið hafa borist fréttir af því að foreldrafélög og ýmis félagasamtök hafi gefið tölv ur til skóla. Fréttir eru af því að 600 börn muni stunda nám í Framtíðarbörn 800. Minna má á myndarlegt frumkvæði Verkmenntaskólans á Akureyri á sviði fjarkennslu og Globe-umhverfisfræðsluverkefnið. Breska stjórnin hyggst leggja ríka áherslu á samvinnu stjórnar innar og einkafyrirtækja um að öllum skólum landsins verði séð fyrir tölvum ekki síðar en árið 2002. Frá Bandaríkjunum berast þær fréttir að sett hafi verið það markmið að tölva verði í hverri kennslustofu fyrir árið 2000. Þannig mætti lengi telja og verður vikið að því nánar við umfjöllun málsins í þinginu.