Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 236 – 223. mál.



Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um afla dragnótarbáta í Faxaflóa.

Frá Guðjóni Guðmundssyni.



    Hve mikill dragnótarafli barst á land úr Faxaflóa sl. fjögur fiskveiðiár:
     a.      heildarmagn hvert ár, sundurliðað eftir fisktegundum,
     b.      löndunarstaðir?


Skriflegt svar óskast.