Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 368 – 296. mál.



Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um minnismerki um breska sjómenn á Vestfjörðum.

Frá Ágústi Einarssyni.



     1.      Hver hafa verið afskipti ráðuneytisins eða annarra stjórnvalda í tengslum við hugmynd Egils Ólafssonar á Hnjóti um að reisa minnismerki um drukknaða breska sjómenn að Hnjóti?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fyrrgreint minnismerki verði reist að Hnjóti eða mun hann leggja því lið að minnismerkið verði reist á Patreksfirði?