Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 466 – 332. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997.
Frá umhverfisnefnd.
1. Við 3. gr. Í stað orðanna „Að afloknum“ í upphafi efnismálsgreinar komi: Þegar að loknum.
2. Á eftir 3. gr. frumvarpsins komi ný grein er orðist svo:
Eftirfarandi breytingar verða á 27. gr. laganna:
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Meiri háttar framkvæmdir, sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breyting lands með jarðvegi eða efnistöku, skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir og úrskurð um mat á umhverfisáhrifum þar sem það á við.
b. Við greinina bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ráðherra skal kveða nánar á um útgáfu framkvæmdaleyfa í reglugerð.
Landgræðslu- og skógræktaráætlanir skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir og mat á umhverfisáhrifum þar sem það á við.
3. Við 6. gr., b-lið:
a. Í stað orðanna „álagsprófunar á mannvirki“ komi: álagsprófunar mannvirkis.
b. Í stað orðsins „virknisprófun“ komi: virkniprófun.
4. Við 7. gr. Í stað orðsins „prófnefndar“ í b-lið komi: prófanefndar.
5. Við 12. gr. Við 1. efnismálsl. a-liðar bætist: í síðasta lagi 1. júlí 1998.