Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 566 – 167. mál.
Frumvarp til laga
um Kennaraháskóla Íslands.
(Eftir 2. umr., 16. des.)
I. KAFLI
Hlutverk.
1. gr.
Nánari fyrirmæli um skilgreiningu þess náms sem háskólinn veitir og hvernig samstarfi við aðra háskóla á sviði kennara- og uppeldismenntunar skuli háttað skal setja í reglugerð.
II. KAFLI
Kennarar og nemendur.
2. gr.
Prófessorar, dósentar og lektorar skulu vera þeir einir sem hafa kennslu og rannsóknir að aðalstarfi. Aðjúnktar eru ráðnir til eins árs hið skemmsta. Stundakennarar eru ráðnir til eins árs eða skemmri tíma.
Háskólaráð setur nánari reglur um starfsskyldur fastráðinna kennara.
3. gr.
Rektor ræður prófessora, dósenta, lektora, aðjúnkta og stundakennara.Umsækjendur um prófessorsstöður, dósents- og lektorsstöður skulu láta fylgja umsókn sinni upplýsingar um háskólamenntun sína, vísindastörf og önnur störf, svo og ritsmíðar og rannsóknir.
Rektor skipar þriggja manna dómnefnd eftir tilnefningu háskólaráðs og menntamála
Menntamálaráðherra tilnefnir einn mann í nefndina. Í dómnefnd má skipa þá eina sem lokið hafa meistaraprófi úr háskóla.
Rektor skal eftir ábendingu viðkomandi deildar tilnefna sérfræðing, hverju sinni, er skal vera dómnefnd til ráðgjafar þegar fræðistörf umsækjenda eru metin.
Dómnefnd skal láta uppi rökstutt álit um það hvort ráða megi af vísindagildi rita og rann
Háskólaráði er heimilt að setja reglur sem kveða á um að sambærileg ákvæði gildi við ráðningu sérfræðinga á sviði rannsókna og annarra fræðistarfa við skólann.
Heimilt er að flytja lektor úr lektorsstöðu í dósentsstöðu og dósent úr dósentsstöðu í prófessorsstöðu samkvæmt nánari reglum sem háskólaráð setur.
4. gr.
Háskólaráð tekur ákvörðun um fjárhæð skrásetningargjalds sem nemendum er gert að greiða við upphaf skólaárs. Skrásetningargjald skal taka mið af kostnaði vegna innritunar, kennsluefnis og pappírsvara sem skólinn lætur nemendum í té og nauðsynlegt er vegna starfsemi háskólans. Skrásetningargjald skal ekki vera hærra en sem nemur 25.000 kr.
Heimilt er að taka 15% hærra gjald af þeim sem skrá sig til náms eftir að auglýstu skrá
Þeir einir teljast nemendur við Kennaraháskóla Íslands sem skrásettir hafa verið til náms.
III. KAFLI
Stjórnskipulag.
5. gr.
Í háskólaráði eiga sæti:
1. rektor sem er sjálfkjörinn í ráðið og jafnframt forseti þess,
2. fjórir fulltrúar fastráðinna kennara og fjórir til vara kjörnir á almennum fundi fastráðinna kennara hlutfallsbundinni kosningu til tveggja ára í senn,
3. tveir fulltrúar nemenda og tveir til vara kjörnir hlutfallsbundinni kosningu til tveggja ára í senn samkvæmt reglum nemendafélags skólans,
4. tveir fulltrúar skipaðir af menntamálaráðherra til tveggja ára í senn.
Varaforseta og ritara kýs ráðið úr hópi háskólaráðsfulltrúa fastráðinna kennara.
6. gr.
Rektor boðar til funda í háskólaráði eftir þörfum. Óski þrír háskólaráðsfulltrúar eftir fundi er rektor skylt að boða til hans. Rektor stýrir fundum ráðsins.Háskólaráðsfundur er ályktunarbær ef tveir þriðju hlutar atkvæðisbærra manna sækja fund hið fæsta. Afl atkvæða ræður úrslitum mála. Ef atkvæði falla jöfn sker atkvæði for
Varamenn sitja fundi háskólaráðs í forföllum aðalmanna.
7. gr.
8. gr.
Deildarfundir og deildarráð, í umboði háskólaráðs og rektors, stjórna málefnum hverrar deildar og fer deildarforseti með framkvæmdarvald í málefnum deildarinnar.
Háskólaráð setur reglur um skipan deildarráða og val á deildarforsetum. Háskólaráð setur reglur um deildarfundi, hverjir hafi rétt til setu á deildarfundum og hvert skuli vera verksvið þeirra, vald og ábyrgð. Háskólaráð setur deildarráðum starfsreglur. Háskólaráð setur jafn
Stofnanir og einstakir starfsmenn innan háskólans, sem ekki lúta sérstakri stjórn, heyra beint undir embætti rektors.
9. gr.
Háskólaráð staðfestir námskrár og kennsluskrá en deildarráð bera ábyrgð á gerð þeirra.
IV. KAFLI
Rannsóknir.
10. gr.
Rannsóknarstofnun skal, eftir því sem aðstæður leyfa, veita uppeldisstéttum og nemendum skólans ráðgjöf og fræðslu um skipulagningu og framkvæmd rannsókna.
Háskólaráð skal setja reglur, sem menntamálaráðherra staðfestir, um starfsemi rann
Reglurnar skulu birtar í Stjórnartíðindum.
Heimilt er háskólaráði að stofna sérstaka rannsóknarsjóði. Skal um þá sett skipulagsskrá sem menntamálaráðherra staðfestir. Skipulagsskráin skal birt í Stjórnartíðindum.
V. KAFLI
Gildistaka, reglugerð o.fl.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
15. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
a. Nemendur, sem við gildistöku laga þessara stunda nám í þeim skólum sem eru sameinaðir með lögum þessum og ljúka námi áður en þau koma til fullra framkvæmda, eiga rétt á að ljúka prófum samkvæmt gildandi námsskipulagi skólanna við gildistöku lag
b. Núverandi rektor Kennaraháskóla Íslands er rektor hins nýja Kennaraháskóla Íslands þar til nýr rektor hefur verið skipaður, sbr. e-lið. Störf skólastjóra Fósturskóla Íslands, Íþróttakennaraskóla Íslands og Þroskaþjálfaskóla Íslands eru lögð niður frá og með 1. janúar 1998. Þó skulu þeir sem gegna þessum störfum við gildistöku laganna eiga rétt til starfa hjá Kennaraháskóla Íslands samkvæmt c- og d-lið.
c. Skipaðir og ótímabundið ráðnir kennarar við Fósturskóla Íslands, Íþróttakennaraskóla Íslands og Þroskaþjálfaskóla Íslands, sem uppfylla starfsskilyrði samkvæmt lögum um háskóla, eru starfsmenn Kennaraháskóla Íslands frá og með 1. janúar 1998. Hið sama gildir um prófessora, dósenta og lektora við Kennaraháskóla Íslands og þá starfsmenn skólanna sem gegna öðrum störfum en þeim sem upp eru talin í d-lið.
d. Störf skipaðra og ótímabundið ráðinna kennara við Fósturskóla Íslands, Íþróttakennaraskóla Íslands og Þroskaþjálfaskóla Íslands sem ekki uppfylla starfsskilyrði samkvæmt lögum um háskóla skulu lögð niður 1. janúar 1998. Þó er heimilt að fresta niðurlagningu starfanna til 31. júlí 2001. Sé heimild til frestunar á niðurlagningu starfanna nýtt teljast starfsmenn samkvæmt þessum lið vera starfsmenn Kennaraháskóla Íslands frá og með 1. janúar 1998.
e. Er Alþingi hefur samþykkt lög þessi skal menntamálaráðherra skipa níu manna háskólaráð til 31. júlí 1999. Það skal starfa í samræmi við ákvæði laga þessara og tryggja fram