Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 577 – 362. mál.



Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um nauðasamninga samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hve margir einstaklingar hafa leitað heimildar til samninga um greiðslu eignarskatts eða tekjuskatts skv. 2. efnismgr. 1. gr. laga nr. 64/1996, um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, og hversu margir hafa leitað nauða samnings við skuldheimtumenn skv. 3. efnismgr. sömu greinar frá 1. maí 1997 til des ember 1997?
     2.      Hversu margir samningar hafa verið gerðir samkvæmt lögum nr. 64/1996 frá 1. maí 1997 til desember 1997 sundurliðað skv. 2. og 3. efnismgr. 1. gr. laganna?
     3.      Hverjar eru fjárhæðir sem samið hefur verið um á framangreindu tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir umsóknum.
     4.      Mun ráðherra beita sér fyrir breytingu á lögunum sem miðar að því að gera úrræðið skilvirkara fyrir fólk í fjárhagsörðugleikum?


Skriflegt svar óskast.