Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 642 – 43. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 18. des.)
1. gr.
1. mgr. 24. gr. laganna orðast svo:
Slysatryggðir samkvæmt þessum kafla eru:
a. Launþegar sem starfa hér á landi að undanskildum erlendum ríkisborgurum sem gegna embætti fyrir erlend ríki og erlendu starfsliði slíkra embættismanna. Starf um borð í ís
b. Nemendur við iðnnám samkvæmt iðnfræðslulögum.
c. Útgerðarmenn sem sjálfir eru skipverjar.
d. Þeir sem vinna að björgun manna úr lífsháska eða vörnum gegn yfirvofandi meiri háttar tjóni á verðmætum.
e. Íþróttafólk sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur er æfingum, sýningum eða keppni og orðið er 16 ára. Með reglugerðarákvæði má ákveða nánar gildissvið þessa ákvæðis.
f. Sjúklingar sem eru til meðferðar á sjúkrastofnunum sem starfa samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og heilsutjónið eða örorkan er vegna læknisaðgerða eða mistaka starfsfólks sem starfar á þessum stofnunum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.