Ferill 456. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 786 – 456. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um starfssvið tölvunefndar.
Frá Ástu B. Þorsteinsdóttur.
1. Telur ráðherra eðlilegt með hliðsjón af þrígreiningu ríkisvaldsins að tölvunefnd fari með eftirfarandi hlutverk:
a. að hafa frumkvæði að rannsókn einstakra mála,
b. að rannsaka þau og
c. að kveða upp endanlegan úrskurð í þeim?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að rannsóknar- og úrskurðarvald nefndarinnar verði aðgreint?