Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 824 – 485. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um staðsetningu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
1. Hverjar voru ástæður þess að skrifstofum Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins var ekki valinn staður á landsbyggðinni?
2. Hefði það hamlað starfsemi fyrrnefndra stofnana ef þær hefðu verið staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins?