Ferill 511. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 882 – 511. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um Vinnuklúbbinn.
Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.
1. Hver er reynslan af tilraunaverkefni félagsmálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar sem gengur undir nafninu Vinnuklúbburinn?
2. Hvaða sveitarfélög geta og eiga rétt á að nýta sér þjónustu Vinnuklúbbsins?
3. Hvaða áform eru um áframhaldandi störf Vinnuklúbbsins og þá undir forræði hvers?