Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 883 – 512. mál.



Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um kennslu í grunnskólum.

Frá Birnu Sigurjónsdóttur.



     1.      Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að tryggja nemendum í grunnskólum kennslu menntaðra kennara?
     2.      Telur ráðherra réttlætanlegt að sérkennsla í grunnskóla sé í höndum einstaklinga sem hvorki hafa menntun í sérkennslufræðum né almenna kennaramenntun?