Ferill 525. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 901 – 525. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um geðheilbrigðismál barna og unglinga.
Frá Ástu B. Þorsteinsdóttur.
1. Er unnið að heildstæðri stefnumörkun fyrir landið allt í geðheilbrigðismálum barna og unglinga?
2. Ef svo er, hvernig miðar þeirri vinnu og hvenær má vænta niðurstöðu?