Ferill 529. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 906 – 529. mál.



Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um skipun tilsjónarmanna.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hvernig er staðið að skipun tilsjónarmanna ósakhæfra geðsjúklinga skv. 62. gr. almennra hegningarlaga? Eru í gildi sérstakar reglur þar að lútandi? Ef ekki, mun ráðherra beita sér fyrir því að slíkar reglur verði settar?